120 milljóna króna styrkur til rannsóknar á áhrifum hryðjuverkaógnar

Þrír fræði­menn við Félags­vís­inda­svið HÍ og nor­rænir sam­starfs­fé­lagar þeirra hafa fengið rúm­lega 120 millj­óna króna styrk til að rann­saka áhrif hryðju­verkaógnar á borg­ara og einnig áhrif laga­setn­ingar gegn hryðju­verkum á við­horf til lýð­ræðis.

Þrír fræði­menn við Félags­vís­inda­svið Háskóla Íslands og nor­rænir sam­starfs­fé­lagar þeirra hafa fengið rúm­lega 120 millj­óna króna styrk frá Nor­d­forsk til að rann­saka áhrif hryðju­verkaógnar á borg­ara og einnig áhrif laga­setn­ingar gegn hryðju­verkum á við­horf fólks til lýð­ræðis og trausts á stjórn­völdum. Af heild­ar­styrknum til verk­efn­is­ins koma 32,5 millj­ónir króna í hlut Háskóla Íslands.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands.

Eitt þeirra þriggja verk­efna sem hljóta styrk er „Hryðju­verkaógn á Norð­ur­lönd­unum: Áhrif á borg­ara, laga­setn­ingar og lög­mæti,“ segir í til­kynn­ing­unni. Meðal aðstand­enda þess eru þau Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar, Hulda Þór­is­dóttir, dós­ent í stjórn­mála­fræði, og Gunnar Helgi Krist­ins­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði. Verk­efnið lýtur for­ystu Dag Arne Christensen frá UNI Research AS í Noregi en auk þeirra koma fræði­menn Háskól­anum í Bergen og Gauta­borg­ar­há­skóla að verk­efn­inu.

Meg­in­rann­sókn­ar­spurn­ing verk­efn­is­ins er hversu vel lýð­ræð­is­ríki geti staðið af sér þá ógn sem þau standa frammi fyrir vegna hryðju­verka. Í verk­efn­inu verður leit­ast við að svara henni með grein­ingu fyr­ir­liggj­andi gagna úr fjöl­þjóð­legum spurn­inga­könn­unum og söfnun nýrra gagna í þremur rann­sókn­ar­verk­efnum sem hafa eft­ir­far­andi þemu. Í fyrsta lagi er spurt hvort ótt­inn við hryðju­verk hafi það mikil áhrif á borg­ara að þeir séu til­búnir til að fórna borg­ara­legum rétt­indum. Í öðru lagi hversu mikil áhrif laga­setn­ingar hafi gegn hryðju­verkum á við­horf fólks til lýð­ræðis og traust þess á stjórn­völdum og lög­mæti þeirra og í þriðja lagi hver tengsl mis­mun­andi stjórn­skipu­lags og ótta borg­ara séu við hryðju­verk.

„Lýð­ræð­is­ríkjum, þar á meðal nor­rænu ríkj­unum, stendur mikil ógn af hryðju­verkum sem skapa þrýst­ing á lýð­ræð­is­lega kjörin stjórn­völd. Eitt af mik­il­væg­ustu verk­efnum þeirra er að tryggja öryggi borg­ar­anna. Ef borg­arar upp­lifa óör­yggi og að lögum og reglum sé ekki fram­fylgt getur það grafið undan trausti á stjórn­völdum. Aðgerðir til að tryggja öryggi borg­ara geta þó einnig grafið undan grunn­stoðum lýð­ræð­is­ins. Harðar aðgerðir eins og hús­leitir án heim­ilda, hand­tökur, síma­hler­anir og langt gæslu­varð­hald án dóms­úr­skurðar geta legið beint við til að tryggja öryggi borg­ar­anna en um leið eru þær í and­stöðu við borg­ara­leg rétt­indi. Mikil tog­streita getur því skap­ast á milli örygg­is­sjón­ar­miða og frels­is­sjón­ar­miða í ríkjum sem byggja á lýð­ræð­is­gildum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nor­d­forsk er nor­ræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar og hefur umsjón með og styrkir rann­sókna­samt­arf á Norð­ur­löndum. Stofn­unin úthlut­aði á dög­unum þremur styrkjum til rann­sókna sem tengj­ast örygg sam­fé­laga á Norð­ur­löndum undir áætl­un­inni The Und­erp­inn­ings of Nordic Societal Security. Alls bár­ust 17 umsóknir um styrki úr áætl­un­inni en rann­sókn­ar­verk­efnin þrjú sem fengu styrk að þessu sinni fá hvert um sig 9,5 millj­ónir norskra króna, jafn­virði um 124 millj­óna íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár