Félag prófessora við ríkisháskóla mótmælir harðlega pólitískum afskiptum fjármála- og efnahagsráðuneytisins

Félags pró­fess­ora við rík­is­há­skóla hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna ráðn­ingar rit­stjóra fræði­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review.

Þorvaldur Gylfason
Þor­valdur Gylfason Mynd: Vísindavefur HÍ

Vís­inda­starf grund­vall­ast á frelsi vís­inda­manna til að velja sín við­fangs­efni og rann­saka þau af hlut­lægni með við­ur­kenndum þekk­ing­ar­að­ferðum. Skipu­lögð gagn­rýni gagn­vart eigin nið­ur­stöðum og ann­arra er órjúf­an­legur hluti af nálgun vís­ind­anna. Hæfni ein­stak­linga til starfa á vís­inda­legum vett­vangi, þar með talið rit­stjórn­ar­starfa, ber einkum að meta útfrá þekk­ingu, reynslu og árangri þeirra í vís­indum og fræðum. Vís­inda­menn geta vissu­lega verið virkir þátt­tak­endur á ýmsum sviðum sam­fé­lags­ins, þar með talið á vett­vangi stjórn­mál­anna, og í ýmsum til­vikum er virk sam­fé­lags­þátt­taka þeirra ávinn­ingur fyrir vís­inda­starfið um leið og vís­inda­starfið færir sam­fé­lag­inu marg­hátt­aðan ávinn­ing í formi nýrrar þekk­ingar og bættra vinnu­bragða.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu stjórnar Félags pró­fess­ora við rík­is­há­skóla vegna ráðn­ingar rit­stjóra fræði­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review í dag.

„Þor­valdur Gylfason hag­fræði­pró­fessor er í hópi afkasta­mestu vís­inda­manna hér­lendis og nýtur alþjóð­legrar við­ur­kenn­ingar fyrir vís­inda­störf sín. Hann hefur samið og rit­stýrt, ýmist einn eða með öðrum, alls 20 bókum á ensku, íslensku og sænsku, og er auk þess höf­undur mik­ils fjölda vís­inda­rit­gerða um hag­fræði, efna­hags­mál og stefnu­mótun í inn­lendum og erlendum vís­inda­tíma­ritum og fræði­legum bóka­köflum. Þor­valdur hefur umfangs­mikla reynslu af vís­inda- og sér­fræði­störfum innan og utan háskóla og hefur meðal ann­ars verið rit­stjóri fræði­tíma­rits­ins European Economic Review, aðstoð­ar­rit­stjóri tíma­rits­ins Macroeconomic Dynamics, og setið í rit­stjórnum tíma­rit­anna Scandinavian Journal of Economics, og Japan and the World Economy,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[links]Þá kemur fram að Nordic Economic Policy Review sé fræði­tíma­rit gefið út af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Til­gangur þess sé að gera hag­fræði­rann­sóknir aðgengi­legar stjórn­völdum í tengslum við stefnu­mótun, jafn­framt því að miðla nor­rænni þekk­ingu og reynslu af hag­stjórn og efna­hags­málum til umheims­ins. Áform í stýri­hópi fræði­tíma­rits­ins, um að Þor­valdur tæki að sér rit­stjórn þess, hafi byggt á mati á hinum mikla árangri hans í vís­inda­starfi, en vís­inda­starf Þorvalds falli innan efn­is­sviðs tíma­rits­ins. Andstaða og synjun íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á ráðn­ingu Þorvalds, eftir að honum hafði verið boðið starfið, hafi byggt að sögn ráðu­neyt­is­ins á því að hann væri of póli­tískt virkur til að taka að sér rit­stjórn­ina.

„Félag pró­fess­ora við rík­is­há­skóla mót­mælir harð­lega hinum póli­tísku afskiptum íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins af ráðn­ing­ar­málum tíma­rits­ins. Þessi afskipti skortir mál­efna­legan grund­völl og afhjúpa skiln­ing­leysi á vís­inda­starf­semi. Þau setja hið nor­ræna tíma­rit niður og eru ráðu­neyt­inu til álits­hnekkis. Íslenskt sam­fé­lag þarf síst á því að halda að stjórn­völd leggi stein í götu vís­inda­manna sem fal­ast er eftir til starfa í krafti þekk­ingar sinnar,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár