Segir stórvirka fræðimenn sem fella dóma valda sér sjálfsskaða

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að fræði­menn sem fella stóra dóma um ein­stak­linga og stjórn­mála­flokka gefi færi á því að tekið sé „á móti“. Þá séu menn komnir inn á nýtt svið sem hafi „ekk­ert endi­lega með aka­dem­í­una“ að gera.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun að vara­samt væri þegar menn í valda­stöðu vægju að heiðri fræði­manna. „En þegar fræði­menn segja um stjórn­mála­menn eða stjórn­mála­flokka [...] að þeir séu að verða and­lit spill­ing­ar­innar þá ætla ég að fá að lýsa þeirri skoðun minni að það sé ekki akademísk nið­ur­staða. Það er eitt­hvað allt annað,“ sagði hann.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata og for­maður nefnd­ar­innar, spurði ráð­herr­ann hvort eðl­is­munur væri á því hvernig fræði­menn tjáðu sig um þá sem valdið hafa og hvernig ráða­menn tjáðu sig um fræði­menn.

„Ég les svo­lítið út úr þessu að ráð­herra finn­ist að fræði­menn eigi ekki að gagn­rýna stjórn­völd eða að það sé ein­hvers konar lína sem fræði­menn mega ekki ganga yfir til þess að telj­ast ekki nógu góðir aka­demikar,“ sagði hún og spurði hvort honum hefði fund­ist Þor­valdur Gylfason, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, ganga of langt í sinni gagn­rýni á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Menn komnir út fyrir fræðistörf sín“

[links]Bjarni svar­aði og sagði að þegar fræði­menn tækju ákvörðun um að fara inn á vett­vang stjórn­mál­anna og ger­ast þar stór­virkir, jafn­vel fara í fram­boð og „fella stóra dóma um ein­stak­linga og stjórn­mála­flokka“ og grípa til sam­lík­inga við hel­för­ina og nas­ista í Þýska­landi, þá væru þeir að valda sér sjálfs­skaða sem fræði­menn – frekar en að efla sig.

„Það er mín nið­ur­staða – mín skoðun. Og þá eru menn líka um leið að gefa færi á því að það sé tekið á móti, því þá eru menn komnir út fyrir fræði­störf sín. Þá eru menn komnir inn á nýtt svið, nýjan vett­vang þjóð­fé­lags­um­ræð­unnar sem hefur ekk­ert endi­lega með aka­dem­í­una að gera. Og menn bregða fyrir sig þeim skildi, akademískum skildi: „Heyrðu, hér hef ég minn akademíska skjöld og menn geta ekki vegið að mér á þessum vett­vangi vegna þess að ég er með þennan skjöld.“.“

Bjarni telur að þeir fræði­menn séu búnir að leggja þennan skjöld frá sér og séu komnir inn í allt aðra umræðu. Þeir verði þá að þola að þeim sé svarað og mætt. „Þá koma sjón­ar­miðin um sam­tal valds­haf­anna og fræði­manna­sam­fé­lags­ins í algjör­lega nýtt ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár