Mögulega hafi „gamla góða kunningjasamfélagið“ ætlað að ráða för

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að mögu­lega megi skýra hörð við­brögð sænska pró­fess­ors­ins Lars Calmfors við því að Ísland lagð­ist gegn ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar með því að þeir séu kunn­ingjar frá fornu fari.

Bjarni Benediktsson sat fyrir svörum á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun og var meðal annars spurður út í gagnrýni fyrrverandi ritstjóra NEPR um afstöðuna sem sett var fram í garð Þorvalds Gylfasonar
Bjarni Bene­dikts­son sat fyrir svörum á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun og var meðal ann­ars spurður út í gagn­rýni fyrr­ver­andi rit­stjóra NEPR um afstöð­una sem sett var fram í garð Þorvalds Gylfa­sonar Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son telur að við­brögð Lars Calmfors, sænsks hag­fræði­pró­fess­ors og fyrr­ver­andi rit­stjóra fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review, við því að íslensk stjórn­völd hafi lagst gegn því að Þor­valdur Gylfason yrði feng­inn í starf tíma­rits­ins á grund­velli stjórn­mála­skoð­ana, megi mögu­lega rekja til þess að þarna hafi „gamla góða kunn­ingja­sam­fé­lagið“ ætlað að fá ráða því hver yrði ráð­inn til verks­ins.[links]

Þetta sagði Bjarni á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun, er Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar spurði hann út í þá gagn­rýni sem sænski pró­fess­or­inn setti fram í við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku.

Calmfors sagði það ótækt að íslenska ráðu­neytið hefði notað stjórn­mála­skoð­anir Þor­valdar sem ástæðu fyrir því að hann nyti ekki stuðn­ings í starfið. Hann sagð­ist vona að slíkar ástæður myndu sænsk stjórn­völd aldrei bera fram.

Bjarni segir að hann telji mögu­legt að þessi hörðu við­brögð megi einnig rekja til þess að búið var að stinga upp á Þorvaldi og bjóða honum starfið, í umboðs­leysi, en eins og rakið var í frétt Kjarnans í morgun bauð starfs­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar Þorvaldi að taka að sér starfið í lok októ­ber í fyrra með vit­und bæði títt­nefnds Calmfors og Kjell Nilsson, yfir­manns nor­rænu rann­sókna­stofn­un­ar­innar Nor­dregio.

Calmfors segir að hann telji Hedberg hafa talið sig vera kom­inn í tíma­þröng með að finna ein­hvern í starfið, en fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagð­ist aðspurður ekki vita til þess að stýri­hóp­ur­inn hefði verið kom­inn í tíma­þröng með að finna nýjan rit­stjóra.

Bjarni sagð­ist telja að Calmfors og Þor­valdur „fylgd­ust vel hvor með öðrum“ þar sem þeir hefðu starfað saman á árum áður.

„Ég ætla að leyfa mér að velta upp þeirri spurn­ingu hér, af því að hér eru menn að segja að það sé nú ekki gott að póli­tíkin komi of nálægt svona hlutum, hvort að þarna kunni mögu­lega svona gamla góða kunn­ingja­sam­fé­lagið hafa verið á störfum, svona tveir full­orðnir menn sem hafa þekkst lengi í gegnum ára­tug­ina, þeir ætla bara að ákveða þetta svona sín á milli,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár