Bjarni spyr „hvers vegna í ósköpunum“ hann eigi að biðja Calmfors afsökunar

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir spurði Bjarna Bene­dikts­son í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma Alþingis hvort hann ætli að biðja Lars Calmfors afsök­unar. Bjarni sagði Íslend­inga eiga skilið afsök­un­ar­beiðni en ekki „ein­hver pró­fessor úti í Svíþjóð.“

Bjarni Benediktsson svaraði spurningum Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur í óundirbúnum fyrirspurnatíma í dag.
Bjarni Bene­dikts­son svar­aði spurn­ingum Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra út í mál Þor­valdar Gylfa­sonar Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Í fyr­ir­spurn sinni las hún upp úr yfir­lýs­ingu frá Félagi pró­fess­ora við rík­is­há­skóla þar sem meðal ann­ars segir um afskipti fjár­mála­ráðu­neytis af ráðn­ingu í rit­stjóra­stöðu NEPR: „Þessi afskipti skortir mál­efna­legan grund­völl og afhjúpar skiln­ings­leysi á vís­inda­starf­semi.“

Þá sagði hún frá því að Lars Calmfors, fyrrum rit­stjóri NEPR, ótt­ist það að afstaða Íslands að leggj­ast gegn því að Þor­valdur komi til greina af póli­tískum ástæðum geti skaðað trú­verð­ug­leika tíma­rits­ins. Í kjöl­farið spurði hún Bjarna hvort hann hefði mót­tekið skila­boð aka­dem­í­unnar, hvort hann taki þau til sín og hvort þau hafi breytt afstöðu hans.

Bjarni svar­aði því til að það væri ekki meint póli­tísk þátt­taka Þorvalds Gylfa­sonar sem vakin var athygli á á sínum tíma, heldur var verið að vekja athygli á því að hann hefði verið virkur á sínum tíma sem for­maður stjórn­mála­flokks.

Bjarni segir prófessora hafa „fallið á prófinu“

Bjarni sagði enn fremur að aldrei hefði verið full­yrt að við­kom­andi væri enn for­maður í stjórn­mála­flokki. Eins og fram hefur komið í umfjöllun Kjarnans stóð engu að síður í tölvu­pósti frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu að Þor­valdur væri enn „sam­kvæmt okkar bestu vit­und“ for­maður Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar. Í tölvu­póst­inum var einnig sagt að það væri mat starfs­manna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu að það væri ekki við­eig­andi að ein­stak­lingur sem er póli­tískt virkur væri ráð­inn í starfið, sér­stak­lega ekki ein­hver sem er for­maður stjórn­mála­flokks.

Í svari sínu til Þór­hildar Sunnu sagði Bjarni Félag pró­fess­ora við rík­is­há­skóla hafa fallið á próf­inu um það raun­hæfa verk­efni sem væri umræðan um rit­stjóra­stöð­una. „Ekki er tekið til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, ekki getið heim­ilda og svo fram­vegis, byggt á ein­hliða frá­sögn af mál­inu. Og kom­ist að nið­ur­stöðu algjör­lega án þess að ígrunda allar hliðar máls­ins,“ sagði Bjarni um afstöðu félags­ins.

Undir lok svars síns sagði Bjarni aðal­at­riði máls­ins vera það að Íslend­ingar áttu ekki að vera hafðir með í ráðum þegar ráð var í stöð­una. „Ég bendi hátt­virtum þing­manni á að reyna að átta sig á aðal­at­riði máls­ins sem er það að menn ætl­uðu sjálfur án þess að spyrja okkur Íslend­inga að ráða þessu máli til lykta. Það er hneykslið í þessu máli.“

Þórhildur spyr hvort Bjarni ætli að biðjast afsökunar

Þór­hildur Sunna tók í kjöl­farið til máls í annað sinn. Hún sagði Bjarna hafa lýst þeirri skoðun sinni að kunn­ings­skapur Lars Calmfors við Þorvald Gylfason hefði ef til vill ráðið því að Lars hefði til­nefnt Þorvald í starfið. Hún vitn­aði í kjöl­farið í við­tal við Calmfors þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Það hendir alla að segja eitt­hvað í hugs­un­ar­leysi undir álagi. Engu að síður þætti mér við hæfi að fá afsök­un­ar­beiðni frá ráð­herr­anum þegar hann er búinn að hugsað málið.“

Þór­hildur spurði Bjarna að lokum hvort hann væri búinn að hugsa málið og hvort hann hygð­ist ætla að biðja Lars afsök­unar.

Hafði ekki hugmynd um að þeir þekktust

Í svari sínu þvertók Bjarni fyrir það að hafa full­yrt að vin­skapur Lars við Þorvald hafi ráðið för. Hann sagð­ist hafa sagt að „úr fjar­lægð lítur þetta þannig út eins og hér séu tveir gamlir kunn­ingjar að spjalla sín í milli og ráð­stafa þess­ari til­teknu stöðu.“

Hann seg­ist ekki hafi ekki haft neinar for­sendur til að full­yrða um vin­skap­inn: „En ég veit nátt­úr­lega ekk­ert um það, tók það skýrt fram. Og ég hafði ekki einu sinni hug­mynd um það hvort þeir þekkt­ust vel, þessir tveir ein­stak­lingar.“

Undir lok svars síns sagði Bjarni það ekki vera sitt hlut­verk að biðj­ast afsök­unar, en kall­aði hins vegar eftir því að Íslend­ingar væru beðnir afsök­unar. „Hvers vegna í ósköp­unum ætti ég að biðja ein­hvern pró­fessor úti í Svíþjóð afsök­unar á því að benda á það sem allir sjá eftir að gögn máls­ins hafa núna komið fram? Að án þess að við Íslend­ingar værum spurðir þá voru menn byrj­aðir að tala saman og póstur far­inn á íslenska pró­fess­or­inn þar sem staðan var boðin. Hver ætlar að biðja okkur afsök­unar á því?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár