Tveir verða í framboði til forseta Íslands

Guðni Th. Jóhann­es­son og Guð­mundur Franklín Jónsson verða í kjöri til for­seta Íslands en kosn­ing­arnar fara fram þann 27. júní næst­kom­andi.

Guðmundur Franklín Jónsson (t.v.) og Guðni Th. Jóhannesson verða í kjöri til forseta.
Guð­mundur Franklín Jónsson (t.v.) og Guðni Th. Jóhann­es­son verða í kjöri til for­seta.

Guðni Th. Jóhann­es­son og Guð­mundur Franklín Jónsson verða í kjöri til for­seta Íslands. Þetta kemur fram í aug­lýs­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í Lög­birt­inga­blað­inu. RÚV greinir frá.

Frestur til að skila fram­boðum rann út síð­asta föstu­dag.

For­seta­kosn­ing­arnar fara fram laug­ar­dag­inn 27. júní en kosn­ing utan kjör­fundar erlendis er þegar hafin.

Framboð til emb­ættis for­seta Íslands telj­ast ekki gild fyrr en fram­bjóð­endur hafa skilað inn til­skildum fjölda með­mæl­enda, 1500 til 3000 á lands­vísu, en ákveðið hlut­fall und­ir­skrifta þarf að ber­ast úr hverjum lands­fjórð­ungi.

Guð­mundur Franklín ákvað að bjóða sig fram til for­seta Íslands í apríl. Í ræðu sem hann flutti í gegnum Facebook kom fram að það væri gert eftir nokkra íhugun og mikla hvatn­ingu. Framboð hans myndi í meg­in­þáttum snú­ast um að efla for­seta­emb­ættið, nýta mál­skots­rétt­inn og leggja sitt af mörkum til að berj­ast gegn spill­ingu.

Hann bauð sig líka fram til for­seta árið 2016 en dró þá fram­boð sitt til baka nokkrum vikum síðar og lýsti yfir stuðn­ingi við Ólaf Ragnar Grímsson, sem hætti stutt­lega við að hætta við að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Ólafur Ragnar dró svo fram­boð sitt til baka og var ekki í fram­boði þá um sum­arið.

Guðni Th. var kjör­inn for­seti árið 2916. Hann safn­aði hámarks­fjölda með­mæla fyrir fram­boð sitt til end­ur­kjörs á nokkrum klukku­tímum þann 8. maí síð­ast­lið­inn en hann óskaði eftir und­ir­skriftum í gegnum sam­fé­lags­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár