Arnarlax telur „ósennilegt“ að eldi í Djúpinu skaði villta laxastofna

Fjögur fyr­ir­tæki vilja fram­leiða sam­tals um 25.700 tonn af eld­is­fiski árlega í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Sam­legð­ar­á­hrifin yrðu marg­vís­leg auk þess sem hætta á sjúk­dómum og erfða­blöndun við villta laxa­stofna eykst.

Dæmi um sýnileika eldiskvía. Myndin tekin af áningarstaðnum við Kambsnes.
Dæmi um sýni­leika eld­iskvía. Myndin tekin af áning­ar­staðnum við Kambsnes. Mynd: Úr frummatsskýrslu

Ef áform fjög­urra fyr­ir­tækja um sjó­kvía­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi ná fram að ganga mun heild­ar­fram­leiðsla á eld­is­fiski þar verða um 25.700 tonn á ári. Sam­legð­ar­á­hrif eru talin verða nokkuð nei­kvæð fyrir ástand sjávar, botn­dýra­líf og haf- og strand­nýt­ingu.

Með auknu eldi er einnig hætta á að sjúk­dómar og laxa­lús nái að breið­ast út til nær­liggj­andi eld­is­svæða. Áhrif á nátt­úru­lega laxa­stofna gætu orðið tals­vert nei­kvæð og einnig er lík­legt að hætta auk­ist á að eld­is­laxar nái að hrygna í vest­firskum ám og hafi mögu­leika á að blanda erfða­efni við villtan lax. Ef blend­ingar ná fót­festu í við­kom­andi laxa­stofni verði áhrifin var­an­leg og óaft­ur­kræf. Þá getur eldið haft tak­mark­andi áhrif á sigl­inga­leiðir og nokkuð nei­kvæð áhrif á fisk­veiðar. Sam­legð­ar­á­hrif verða hins vegar veru­lega jákvæð fyrir sam­fé­lag svæð­is­ins.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í frum­mats­skýrslu Arnarlax ehf. um mat á umhverf­is­á­hrifum sjó­kvía­eldis í Ísa­fjarð­ar­djúpi með fram­leiðslu á 10.000 tonnum af laxi á ári. Í skýrsl­unni er fyrst og fremst fjallað um mögu­leg umhverf­is­á­hrif þessa til­tekna verk­efnis, hvort sem eld­is­lax­inn verður frjór eða ófrjór, en einnig sam­an­lögð áhrif allra þeirra fisk­eld­is­verk­efna sem áformuð eru.

Arnarlax stefnir að því að hefja rekstur eld­is­ins í Djúpinu vorið 2021.

[adspot]

Fyr­ir­tækið Arnarlax ehf. var stofnað árið 2010. Stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins er norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar AS. Arnarlax starf­rækir sjó­kvía­eldi á Vest­fjörðum og er með aðstöðu á Bíldudal. Fyr­ir­tækið hefur starfs- og rekstr­ar­leyfi fyrir 10.000 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í Arn­ar­firði. Árið 2016 keypti Arnarlax eld­is­fyr­ir­tækið Fjarða­lax sem hefur starfs- og rekstr­ar­leyfi í Pat­reks­firði, Tálkna­firði og Arn­ar­firði. Árið 2012 keypti Arnarlax fisk­eld­is­stöð­ina Bæjarvík á Tálkna­firði. Með kaupum á Fjarða­laxi eign­að­ist Arnarlax einnig 50 pró­sent hlut í seiða­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Ísþór í Þor­láks­höfn. Hjá Arn­ar­laxi, Fjarða­laxi og Bæjarvík starfa nú um 110 manns.

Ísa­fjarð­ar­djúp, oft kallað Djúpið, er dýpsti fjörður á Íslandi. Fjörð­ur­inn er eitt meg­in­ein­kenna Vest­fjarða og umhverfis hann rísa sæbrött og tign­ar­leg fjöllin. Suður úr Ísa­fjarð­ar­djúpi ganga níu firðir og úr mynni hans til norð­aust­urs eru Jök­ul­firðir. Þrjár stórar eyjar eru á Ísa­fjarð­ar­djúpi; Vigur, Æðey og Borgarey.

Mörk fjög­urra sveit­ar­fé­laga liggja að Ísa­fjarð­ar­djúpi: Ísa­fjarð­ar­bær, Bol­ung­ar­vík­ur­kaup­staður, Súða­vík­ur­hreppur og Stranda­byggð.

Í frum­mats­skýrsl­unni, sem Verkís vann fyrir Arnarlax, kemur fram að áætlað sé að eld­iskvíar verði á þremur stöðum í Djúpinu; við Óshlíð, Drangs­vík og Eyjahlíð. Við val á stað­setn­ingu var horft til margra þátta eins og veðr­áttu, öldu­hæðar, sigl­inga­leiða og veiði­svæða. Við stað­ar­val var gert ráð fyrir að eld­is­svæðin yrðu utan net­laga en komið fyrir þar sem botn er í hallandi hlíð, þannig að líf­rænn úrgangur frá eld­inu dreif­ist betur. Gert er ráð fyrir að fjöldi eld­iskvía á hverju eld­is­svæði verði á bil­inu 5-15 tals­ins.

Vinda­samt er í Ísa­fjarð­ar­djúpi á vet­urna. Frá því í maí 2017 til októ­ber 2019 fór vindur yfir 26 m/s í 129 klukku­stundir, þar af var ofsa­veður eða fár­viðri í 37 klukku­stundir á tíma­bil­inu, segir í skýrsl­unni um veð­ur­far á fyr­ir­hug­uðu athafna­svæði.

Í skýrsl­unni segir að seiði verði bólu­sett í eld­is­stöð fyrir sjó­setn­ingu og ein­göngu verði „not­ast við sjúk­dóma­frí seiði sem vottuð verða af dýra­lækni“.

1,8 milljónir seiða fyrsta árið

Í end­ur­skoð­uðu áhættu­mati vegna erfða­blönd­unar, útgefnu af Haf­rann­sókn­ar­stofnun, er lagt til að leyfi­legur hámarks­lífmassi frjós lax í Ísa­fjarð­ar­djúpi verði 12.000 tonn og 14.000 tonn ef not­ast verður við stærri seiði en 400 grömm við útsetn­ingu.

Seiði sem sett yrðu í sjó­kvíar í Ísa­fjarð­ar­djúpi yrðu alin til að byrja með í fisk­eld­is­stöð­inni í Bæjarvík á Tálkna­firði. Arnarlax áætlar að setja út á fyrsta ári um 1,8 millj­ónir 90-300 gramma eld­isseiða og að eld­is­fiskur nái slát­ur­stærð á 15 til 24 mán­uðum. Eldið verður kyn­slóða­skipt og eld­is­svæði hvíld milli kyn­slóða. Samkvæmt fram­leiðslu­á­ætlun er gert ráð fyrir að árleg fram­leiðsla verði komin í um 10.000 tonn á þriðja ári eld­is­ins.

Talið er að svæðið geti borið allt að 30.000 tonna fram­leiðslu í fisk­eldi, án þess að hafa umtals­verð áhrif á súr­efn­is­inni­hald sjávar, segir í skýrsl­unni. Þá kemur fram að allt eldi Arnarlax muni lík­lega hafa óveru­leg áhrif á ástand sjávar í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Komi fram nei­kvæð áhrif verði þau aft­ur­kræf og tíma­bundin. Gera megi ráð fyrir að áhrif lax­eld­is­ins á botn­dýra­líf verði tals­vert nei­kvæð á tak­mörk­uðu svæði nærri eld­is­stað.

Gjöful fiski­mið eru í Ísa­fjarð­ar­djúpi og er þar löng hefð fyrir veiðum. Djúpið er upp­eld­is­svæði margra fisk­teg­unda en í skýrsl­unni kemur fram að ekki sé vitað til þess að hrygn­ing þeirra eigi sér þar stað. Arnarlax telur að lax­eldið muni ekki hafa bein áhrif á rækju­stofn og þorskung­viði. Ýsa er hins vegar nokkuð útbreidd utan við Æðey og gæti eldið haft áhrif á ætis­slóð hennar.

Arnarlax gerir ráð fyrir því að áhrif á villta lax­fiska megi helst vænta frá eld­is­svæð­inu við Óshlíð, fjarri Inn­djúp­inu, ef fisk­sjúk­dómar eða laxa­lús komi upp í eld­inu. „Með til­liti til umfangs Ísa­fjarð­ar­djúps verði áhrifin minni háttar og aft­ur­kræf ef til þeirra kemur,“ stendur í skýrsl­unni. Þá eru áhrif á villta lax­fiska í Ísa­fjarð­ar­djúpi vegna fisk­sjúk­dóma og laxalúsar metin óveru­leg.

Að teknu til­liti til mót­væg­is­að­gerða, í til­felli frjós lax, er talið ósenni­legt að fram­kvæmdin skaði villta laxa­stofna með erfða­blöndun. Með hlið­sjón af ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar og mót­væg­is­að­gerðum eru áhrif 10.000 tonna eldis á frjóum laxi metin óveru­leg til nokkuð nei­kvæð á erfða­efni villtra lax­fiska og talin aft­ur­kræf.

[adspot]

Eldi á ófrjóum laxi er að mati Arnarlax ekki lík­legt til að hafa áhrif á erfðir villtra laxa­stofna í Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Ekki er þó hægt að full­yrða að aðferð til að bæla gena­tján­ingu gefi 100 pró­sent ófrjóan lax. Því verða áhrif 10.000 tonna lax­eldis lík­lega í mesta lagi óveru­leg á erfðir villtra laxa­stofna í Ísa­fjarð­ar­djúpi,“ segir í frum­mats­skýrsl­unni.

Nokkuð neikvæð áhrif á fiskveiðar

Áhrif á fram­kvæmda- og rekstr­ar­tíma á fisk­veiðar eru hins vegar talin nokkuð nei­kvæð þar sem eld­iskvíar og tengdur bún­aður tak­markar svæði sem nýta má til sjó­sóknar. Áhrif á sigl­ingar eru einnig talin nokkuð nei­kvæð. Eld­is­svæðin við Drangs­hlíð og Eyjahlíð eru utan helstu sigl­inga­leiða. Eld­is­svæðið við Óshlíð er á fjöl­förnu sigl­inga­svæði og getur því haft trufl­andi áhrif ef ekki er gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana, svo sem merk­inga í sam­ræmi við þær reglur sem gilda. Sigl­inga­leiðir tengj­ast einkum fisk­veiðum, þjón­ustu við fisk­eldi, ferða­þjón­ustu, úti­vist og frí­stundum.

Á fyrsta ári eld­is­ins yrði fóð­ur­magn um 1.950 tonn og á árinu 2023 væri árlegt fóð­ur­magn í eldi komið i um 11.200 tonn á ári. Gert er ráð fyrir að allt að 200 tonn af laxi verði flutt frá sjó­kvíum til hafnar og að slát­ur­húsi félags­ins í hverri viku.

Hundruð tonna af lífrænum úrgangi

Losun á líf­rænum úrgangi til umhverf­is­ins ræðst af fram­leiðslu­magni og fóð­ur­notkun, segir í skýrsl­unni. Við mat á losun nær­ing­ar­efna til umhverf­is­ins má almennt gera ráð fyrir að fóður inni­haldi 51 pró­sent kolefni, 7 pró­sent af köfn­un­ar­efni (nitur) og 1 pró­sent af fos­fór. Við mat á losun nær­ing­ar­efna frá sjó­kvía­eldi Arnarlax í Djúpinu er gert ráð fyrir að 70 pró­sent af öllu kolefni í fóðri ber­ist í í umhverfið, 62 pró­sent af öllu köfn­un­ar­efni og 70 pró­sent af öllum fos­fór. Megin hluti þess kolefnis er berst til umhverf­is­ins er koltví­sýr­ingur (CO2). Áætluð árleg losun á köfn­un­ar­efni (nit­urs) þegar fram­leiðsla er komin í tæp 10.000 tonn er alls 483 tonn. Áætluð árleg losun fos­fórs er 65 tonn og áætluð árleg losun kolefnis 978 tonn.

Til við­bótar við fyr­ir­hugað sjó­kvía­eldi Arnarlax í Ísa­fjarð­ar­djúpi áforma fleiri fyr­ir­tæki þar sjó­kvía­eldi. Háafell ehf. áformar fram­leiðslu á 6.800 tonnum af laxi og 200 tonnum á þorski á níu stöðum í Djúpinu og var frum­mats­skýrsla lögð fram til Skipu­lags­stofn­unar árið 2016.

Arctic Sea Farm hf. áformar 8.000 tonna fram­leiðslu af laxi og sil­ungi í Djúpinu. Ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar um mats­á­ætlun um fram­leiðslu­aukn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins var birt um mitt ár 2017. Þá áformar Hábrún að auka núver­andi eldi í 700 tonn og hefur til­laga að starfs­leyfi vegna þeirrar aukn­ingar verið aug­lýst á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Ef áform um fram­leiðslu Arnarlax, Arctic Sea Farm, Háafells og Hábrúnar á eld­is­fiski ná fram að ganga mun heild­ar­fram­leiðsla í Ísa­fjarð­ar­djúpi verða um 25.700 tonn á ári.

Sam­legð­ar­á­hrif fisk­eldis í Ísa­fjarð­ar­djúpi og við Vest­firði eru í skýrslu Arnarlax metin nokkuð nei­kvæð fyrir ástand sjávar, botn­dýra­líf og haf- og strand­nýt­ingu, en gætu orðið nokkuð til tals­vert nei­kvæð fyrir nátt­úru­lega laxa­stofna, ef um er að ræða frjóan lax, en lík­lega í mesta lagi óveru­leg í til­felli ófrjós eld­is­lax.

Allir geta kynnt sér frum­mats­skýrsl­una og lagt fram athuga­semdir. Athuga­semdir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 26. maí 2020 til Skipu­lags­stofn­unar eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár