Guðni Th. safnar meðmælum á Facebook

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur hafið raf­ræna söfnun á með­mælum fyrir fram­boð sitt í kom­andi for­seta­kosn­ingum.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það stytt­ist í að for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son ljúki kjör­tíma­bili sínu. Hann hyggst bjóða sig fram til for­seta að nýju. Um þessar mundir eru einmitt fjögur ár frá því að hann bauð sig fram. „Senn er kjör­tíma­bilið á enda og sú sjálf­sagða skylda fram undan að safna með­mælum fyrir fram­boð mitt á nýjan leik,“ skrifar Guðni á Facebook-síðu sína í morgun.

„Sú söfnun hlýtur hins vegar að verða með öðrum hætti en síð­ast. Því miður gefst ekki sama færi nú og þá að hitta fólk sem víð­ast og oft­ast. Í stað­inn reiðum við okkur á sam­fé­lags­miðla og raf­rænar und­ir­skriftir.“

[adspot]

Guðni skrifar að þetta komi til af aug­ljósum ástæðum; vegna nauð­syn­legra varna gegn veirunni skæðu, eins og hann orðar það.

„Þótt vel hafi gengið hingað til er bar­áttu okkar gegn þeim vágesti ekki lokið. En það mun birta til! Það býr kraftur í þess­ari þjóð. Stefnum að því saman að vinna bug á far­sótt­inni. Og stefnum svo að því saman að skapa hér enn betra sam­fé­lag en áður. Með það í huga ákvað ég að bjóða mig fram til end­ur­kjörs. Með það í huga vil ég þjóna landi og þjóð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár