Persónuupplýsingar notaðar til að ná til íslenskra kjósenda

Per­sónu­vernd hefur birt nið­ur­stöðu í frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­máli stofn­un­ar­innar á notkun stjórn­mála­sam­taka á sam­fé­lags­miðlum fyrir kosn­ingar til Alþingis í októ­ber 2016 og októ­ber 2017 til þess að afmarka mark­hópa og beina mark­aðs­setn­ingu að þeim.

Allir flokkarnir sem buðu sig fram til Alþingis árin 2016 og 2017 notuðu Facebook til að ná til kjósenda.
Allir flokk­arnir sem buðu sig fram til Alþingis árin 2016 og 2017 not­uðu Facebook til að ná til kjós­enda. Mynd: EPA

Á síð­ustu árum hefur sú þróun orðið að stjórn­mála­sam­tök hafa nýtt sam­fé­lags­miðla til að beina skila­boðum til kjós­enda í aðdrag­anda kosn­inga. Er þar um nýja aðferð við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga að ræða þar sem telja má mik­il­vægt að mótuð séu við­mið til að tryggja gagn­sæi gagn­vart hinum skráðu og full­nægj­andi vernd upp­lýs­ing­anna.

Þetta kemur fram í áliti sem Per­sónu­vernd hefur birt og er nið­ur­staða í frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­máli stofn­un­ar­innar á notkun stjórn­mála­sam­taka á sam­fé­lags­miðlum fyrir kosn­ingar til Alþingis í októ­ber 2016 og októ­ber 2017 til þess að afmarka mark­hópa og beina mark­aðs­setn­ingu að þeim.

Meg­in­mark­mið álits­ins, sam­kvæmt Per­sónu­vernd, er að gefa leið­bein­ingar og gera til­lögur þar að lút­andi með hlið­sjón af því sem fyrir liggur um hvernig umrædd vinnsla hefur farið fram á vegum hér­lendra stjórn­mála­sam­taka.

Samfélagsmiðlarnir Facebook, Instagram, Google og Youtube notaðir í auglýsingar

Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Per­sónu­vernd hefur undir höndum not­uðu allir þeir flokkar sem buðu fram til Alþingis í októ­ber 2016 og 2017 per­sónu­upp­lýs­ingar til að ná til skil­greindra hópa á sam­fé­lags­miðlum.

Allir flokk­arnir, Flokkur fólks­ins, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, Píratar, Sam­fylk­ingin, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, not­uðu Facebook til að ná til ákveð­inna hópa og þar af leið­andi kjós­enda fyrir kosn­ingar. Jafn­framt not­uðu sumir flokkar Instagram, Google og Youtube til að ná til kjós­enda.

Tilkoma samfélagsmiðla hafa skapað nýjar hættur gagnvart persónuvernd

Þá kemur fram í álit­inu að góð kosn­inga­þátt­taka sé eft­ir­sókn­ar­verð í hverju lýð­ræð­is­ríki. „Því er af hinu góða að hvetja kjós­endur til að nýta sér kosn­ing­ar­rétt sinn. Hins vegar hefur til­koma sam­fé­lags­miðla skapað nýjar hættur gagn­vart per­sónu­vernd vegna nýrra aðferða við vinnslu stjórn­mála­sam­taka á per­sónu­upp­lýs­ingum í því skyni að koma áherslum sínum til kjós­enda. Tækni­þró­unin síð­ast­lið­inn ára­tug hefur verið gíf­ur­lega hröð og meðal ann­ars leitt til þess að kjós­endur eru ekki með­vit­aðir um að per­sónu­upp­lýs­ingar þeirra eru not­aðar til að ná til þeirra með póli­tískum skila­boðum.“

Per­sónu­vernd bendir á að Evrópska per­sónu­vernd­ar­ráðið, sem stofn­un­ini á aðild að, hafi látið sig þessi mál varða, en í því sam­bandi fjallar stofn­unin um álit ráðs­ins um notkun per­sónu­upp­lýs­inga til þess að hafa áhrif á ein­stak­linga á Netinu.

Netið býr til afmörkuð samfélög manna

Nið­ur­staða álits Evrópska per­sónu­vernd­ar­ráðs­ins felur meðal ann­ars í sér að slík skýr­ing á Netinu ógni sam­fé­lögum nútím­ans þar sem Netið búi til afmörkuð sam­fé­lög manna og ein­stak­lingar fái ekki jafnan aðgang að öllum þeim upp­lýs­ingum sem þar er að finna.

Það leiði svo til þess að ein­stak­lingar eigi erf­ið­ara með að deila reynslu sinni og skilja hver annan. Allt þetta geti grafið undan lýð­ræð­inu sem og öðrum grund­vall­ar­rétt­indum og frelsi manna. Rót vand­ans sé meðal ann­ars óábyrg, ólög­leg og sið­ferð­is­lega röng notkun á per­sónu­upp­lýs­ingum. Gagnsæi sé nauð­syn­legt en ekki nóg og mik­il­vægt sé að beita per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf Evr­ópu­sam­bands­ins til hins ýtrasta sam­hliða almennum reglum um kosn­ingar og fjöl­breytni og frelsi fjöl­miðla.

Stjórnmálaöfl í Bretlandi nota háþróaða greiningartækni til að ná til einstakra kjósenda

Þá bendir Per­sónu­vernd jafn­framt á að í skýrslu bresku per­sónu­vernd­ar­stofn­un­ar­innar, sem gefin var út þann 11. júlí 2018, Democracy dis­r­upted? - Personal information and political influence, komi auk þess fram að stjórn­mála­sam­tök og stjórn­mála­öfl í Bret­landi og víðar hafi notað per­sónu­upp­lýs­ingar og háþró­aða grein­ing­ar­tækni til að ná til ein­stakra kjós­enda í því skyni að fá þá til að kjósa á ákveð­inn hátt.

Um sé að ræða gerð per­són­u­sniða um kjós­endur almennt, til að mynda á grund­velli notk­unar þeirra á sam­fé­lags­miðlum, og notkun þess­ara per­són­u­sniða til að sér­sníða skila­boð að ein­stökum kjós­endum.

Enn fremur nefnir Per­sónu­vernd að á fundi Evrópska per­sónu­vernd­ar­ráðs­ins í Brussel þann 25. sept­em­ber 2018 hafi dóms­mála­ráð­herra Evr­ópu­sam­bands­ins kynnt aðgerðir til að tryggja frjálsar og sann­gjarnar kosn­ingar, bæði vegna vænt­an­legra kosn­inga til Evr­ópu­þings­ins á árinu 2019 og einnig vegna þá fyr­ir­hug­aðra þing­kosn­inga í að minnsta kosti 13 þjóð­ríkjum sam­bands­ins.

Hætta á að grafið verði undan trúverðugleika og lögmæti kosninga

Aðgerðir sam­bands­ins á þessum vett­vangi hafi verið settar fram í ljósi mála sem hafa komið upp í ríkjum Evrópu á und­an­förnum árum, meðal ann­ars mis­notk­unar fyr­ir­tæk­is­ins Cambridge Analytica á per­sónu­upp­lýs­ingum í tengslum við þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu (Brexit) árið 2016.

„Í þessum málum hefur komið í ljós að mikil hætta er fyrir hendi á því að herjað verði á borg­ara í Evr­ópu­ríkjum, aðal­lega á sam­fé­lags­miðlum, með þeim hætti að flókin algrím séu notuð til þess að beina röngum, vill­andi og per­són­u­sniðnum upp­lýs­ingum að ein­stak­lingum án þeirra vit­undar. Getur afleið­ingin orðið sú að grafið sé undan trú­verð­ug­leika og lög­mæti kosn­inga, auk þess sem þannig er reynt að hafa bein áhrif á nið­ur­stöður þeirra,“ segir í áliti Per­sónu­verndar.

Sömu sjónarmið eiga við hér á landi – og jafnvel enn frekar

Samkvæmt Per­sónu­vernd eiga sömu sjón­ar­mið við á Íslandi. Þá telur stofn­unin að jafn­vel megi færa fyrir því rök að þau eigi enn frekar við hér en ann­ars staðar í Evrópu í ljósi þeirrar umfangs­miklu og eins­leitu notk­unar sam­fé­lags­miðla sem hér við­gang­ist.

„Sú stað­reynd að rúm­lega níu af hverjum tíu full­orðnum ein­stak­lingum á Íslandi nota sama sam­fé­lags­mið­il­inn gerir úrvinnslu upp­lýs­inga úr þjóð­fé­lags­um­ræðu auð­veld­ari en ella fyrir þá sem búa yfir tækni­legri þekk­ingu til þess og skapar kjörað­stæður fyrir ólög­mæta vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga,“ segir í álit­inu.

Krafa til stjórnmálasamtaka að þau umgangist tækni samfélagsmiðlanna af ábyrgð

Í því upp­lýs­inga­um­hverfi sem nú ríkir séu margir, ekki hvað síst ungt fólk, sem ekki lesa prent­miðla og sækja í reynd allar sínar upp­lýs­ingar um og fréttir af því sem fram fer í sam­fé­lag­inu á vett­vang sam­fé­lags­miðla. Mik­il­vægt sé að sam­fé­lagið og stofn­anir þess geri þá kröfu til stjórn­mála­sam­taka að þau umgang­ist þá tækni sem sam­fé­lags­miðlar bjóða upp á af ábyrgð. Séu per­sónu­upp­lýs­ingar not­aðar á sam­fé­lags­miðlum í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög ættu þeir að geta gegnt upp­byggi­legu og góðu hlut­verki við miðlun upp­lýs­inga og ættu sem slíkir að geta ýtt undir lýð­ræð­is­lega þátt­töku og bætt getu kjós­enda til að geta tekið ákvarð­anir á grund­velli réttra upp­lýs­inga.

Til þess að svo megi verða þurfi eft­ir­lits­stofn­anir að gegna hlut­verki sínu á skil­virkan hátt og tryggja að lög­unum sé fylgt. Þannig verndi þær ekki ein­ungis stjórn­ar­skrár­var­inn rétt ein­stak­linga til frið­helgi einka­lífs heldur einnig lýð­ræð­is­legar stoðir íslensks sam­fé­lags.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár