Þyngri refsingar við ölvunarakstri á nýju ári

Umferð­ar­laga­brotum hefur fjölgað mikið á síð­ustu árum en alls voru skráð 78 þús­und umferð­ar­laga­brot árið 2018. Um ára­mótin tók gildi ný reglu­gerð þar sem ýmsar sektir við umferð­ar­laga­brotum eru hækk­aðar og refs­ingar við ölv­un­arakstri þyngdar til muna.

Refs­ingar vegna umferð­ar­laga­brota munu þyngj­ast nú á nýju ári eftir að ný reglu­gerð um umferð­ar­lög tók gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þar á meðal hafa sektir verið hækk­aðar vegna ölv­un­arakst­urs og svipt­ingar öku­rétt­inda lengdar.

Með nýju reglu­gerð­inni varð til nýtt efsta refsi­þrep við ölv­unar­akstri sem felur í sér að ef vín­anda­magn í blóði öku­manns mælist yfir 2,51 pró­mill varðar það svipt­ingu öku­rétt­ar í þrjú ár og sex mán­uði auk 270.000 króna sekt­ar.

Með til­komu nýs efsta þreps varð jafn­framt til nýtt milli­þrep en það er ef vín­andi í blóði mælist 2,01 til 2,50 pró­mill á öku­maður yfir höfði sér svipt­ingu öku­rétt­ar í þrjú ár og 240.000 króna sekt, en áður var slíkt magn í efsta þrepi og varð­aði svipt­ingu öku­rétt­inda í tvö ár auk 210.000 króna sektar.

Jafn­framt var svipt­ing öku­rétt­inda lengd um sex mán­uði ef öku­menn mæl­ast með vín­anda­magn í blóði á bil­inu 1,20 til 1,50 pró­mill og er því nú eitt ár og sex mán­uðir, auk 180 þús­und króna sektar.

50 þúsund krónur fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi

Aðrar hækk­anir í kjöl­far nýju reglu­gerð­ar­innar eru hærri sekt við akstri gegn rauðu ljósi en sú sekt hækk­aði úr 30.000 í 50.000 krónur um ára­mótin. Auk þess verður sekt við því að veg­far­andi sinni ekki skyldu við umferð­ar­ó­happ 30 þús­und krónur.

Umferð­ar­laga­brotum hefur fjölgað mikið á síð­ustu árum. Í afbrota­töl­fræði­skýrslu lög­regl­unnar kemur fram að umferð­ar­laga­brot voru rúm­lega 78 þús­und á árinu 2018. Mikil fjölgun var á umferð­ar­laga­brotum milli ára en flest umferð­ar­laga­brot á íbúa eru á Norð­ur­landi vestra og Vest­ur­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár