Steinunn Ólína vill verða útvarpsstjóri

Magnús Geir Þórð­ar­son tók nýverið við hlut­verki Þjóð­leik­hús­stjóra og því bíður það stjórnar RÚV að ráða nýjan útvarps­stjóra.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir sæk­ist eftir því að verða útvarps­stjóri RÚV. Frá þessu greinir hún á Facebook síðu sinni, og gerir ítar­lega grein fyrir afstöðu sinni til RÚV á hvaða tíma­mótum það stendur.

„Þrátt fyrir að Rík­is­út­varpið eigi að vera fjöl­mið­ill allra lands­manna er það ekki svo í allra augum. Fólk ætti samt að staldra við þegar ráða­menn og háværar raddir slá því fram að til­vist Rík­is­út­varps­ins sé úrelt, að útvarps­gjaldið ætti ekki að inn­heimta og að stofn­unin ætti ekki að njóta tekna af aug­lýs­ingum. Aug­lýs­inga­tekjur Rík­is­út­varps­ins, sem bæt­ast ofan á tæp­lega 17.000 króna útvarps­gjald, eru 20% af þeim heild­ar­tekjum sem fjöl­miðlar hafa af aug­lýs­inga­gerð í land­inu. Stór hluti þeirra tekna er af sjón­varps­aug­lýs­ingum sem myndu ekki fær­ast til ann­ara miðla nema í litlum mæli ef Rík­is­út­varpið væri ekki á aug­lýs­inga­mark­aði. Þá myndi fjöldi hæfi­leika­fólks, hönn­uða og leik­stjóra missa fram­færi sitt og þekk­ing flytj­ast burt eða glat­ast. Sjálf­sagt ætti að þykja að hafa íslenskt aug­lýs­inga­efni, því aug­lýs­ingar varð­veita sér­kenni þjóða og menn­ingu. Á eftir Rík­is­út­varp­inu tekur Morg­un­blaðið mest til sín, þrátt fyrir að hafa sterkastan bak­hjarl­inn, þá Vísir/365 og Frétta­blaðið og svo reka lest­ina miklu minni miðlar sem eiga ekki eins ríka vild­ar­vini. Fjöl­miðla­frum­varp mennta­mála­ráð­herra er til­raun til að skapa sann­gjarn­ara umhverfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla sem halda úti ólíkum sjón­ar­miðum og eru lýð­ræð­inu lífs­nauð­syn.

[adspot]Að fjár­mála­ráð­herra sam­þykki frum­varp Lilju mennta­mála­ráð­herra með fyr­ir­vara um end­ur­skoðun á aug­lýs­inga­stöðu Rík­is­út­varps­ins á fjöl­miðla­mark­aði segir okkur tvennt; að hann ótt­ast að fjöl­miðlar aðrir en þeir sem eru honum þókn­an­legir – sjálf­stæðir fjöl­miðlar eða Rík­is­út­varpið – fái vald til að flytja okkur fréttir af hlut­lægni þar sem okkar hags­munir eru í fyr­ir­rúmi. Hins­vegar bendir þetta til þess að hann sé ver­ald­lega sinn­aður gaukur sem skilur ekki mik­il­vægi menn­ing­ar­verð­mæta sem ekki er hægt að kaupa og selja,“ segir Steinunn Ólína meðal ann­ars í pistl­inum.

Stjórn RÚV ákvað að fram­lengja umsókn­ar­frest, til að sækja um starf útvarps­stjóra, en gagn­rýnt hefur verið listi yfir umsækj­endur var ekki birtur opin­ber­lega. Umsókn­ar­frestur er til 9. des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár