Hugmyndir um ör- eða heimasláturhús slegnar út af borðinu

Tillaga sem byggir á því að bændum verði heim­ilt að slátra, vinna og selja neyt­endum milli­liða­laust afurðir úr eigin bústofni rúm­ast ekki innan lög­gjaf­ar­innar og alþjóð­legar skuld­bind­inga Íslands.

Hug­myndir um svokölluð örslát­ur­hús eða heima­slát­ur­hús rúm­ast ekki innan gild­andi lög­gjafar á Íslandi og alþjóð­legra skuld­bind­inga. Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Bjarna Jónssyni, vara­þing­manni VG, um slátrun sauð­fjár og sölu afurða beint til neyt­enda.

Bjarni spurði hvort ráð­herra hefði í hyggju að breyta reglum um örslát­ur­hús og auka frelsi sauð­fjár­bænda til að slátra eigin lömbum og selja afurðir þeirra beint til neyt­enda og hvort hann teldi svig­rúm innan gild­andi lög­gjafar til þess að gera slíkar breyt­ingar.

Í svar­inu segir að ráð­herra telji mik­il­vægt að leita leiða til að auka verð­mæta­sköpun hjá bændum. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar komi fram að Ísland eigi að vera leið­andi í fram­leiðslu á heil­næmum land­bún­að­ar­af­urðum og að áhersla verði lögð á nýsköpun og vöru­þróun til að stuðla að byggða­festu, auka verð­mæta­sköpun og nýta tæki­færi sem byggj­ast á áhuga á mat­ar­menn­ingu með sjálf­bærni og gæði að leið­ar­ljósi.

„Við skoðun á því hvaða leiðir eru færar til að gera breyt­ingar á reglum um slátrun sem miða að því að auka tæki­færi til verð­mæta­sköp­unar er mik­il­vægt að kanna svig­rúm til þess innan gild­andi reglu­verks um mat­væla­ör­yggi og neyt­enda­vernd og þeim alþjóða­skuld­bind­ingum sem Ísland hefur und­ir­geng­ist á við­kom­andi sviði,“ segir í svar­inu.

Tillaga um örsláturhús tekin til skoðunar

Samkvæmt ráð­herra hefur ráðu­neytið síð­ustu mán­uði í sam­ráði við Mat­væla­stofnun og Bænda­sam­tök Íslands leitað leiða til að auka verð­mæta­sköpun hjá bændum í tengslum við slátrun. Sér­stak­lega hafi verið tekin til skoð­unar til­laga um svokölluð örslát­ur­hús eða heima­slát­ur­hús. Tillagan byggir á því að bændum verði heim­ilt að slátra, vinna og selja neyt­endum milli­liða­laust afurðir úr eigin bústofni.

Eftir að sam­ráð var haft við nágranna­þjóðir, svo sem Noreg, Þýska­land og Finnland, og skoðun á við­kom­andi lög­gjöf sem gildir á svið­inu var það nið­ur­staðan að sú útfærsla af örslát­ur­húsi eða heima­slát­ur­húsi sem var til skoð­unar rúmist ekki innan lög­gjaf­ar­innar og alþjóð­legar skuld­bind­inga Íslands.

„Má þar nefna að í reglu­gerð Evr­ópu­þings­ins og ráðs­ins (EB) nr. 854/2004 um sér­tækar reglur um skipu­lag opin­bers eft­ir­lits með afurðum úr dýra­rík­inu sem ætl­aðar eru til mann­eldis, sem inn­leidd var hér á landi með reglu­gerð nr. 105/2010, er kveðið á um skoðun opin­bers dýra­læknis fyrir og eftir slátrun. Mik­il­vægt er að allar breyt­ingar til að auka verð­mæta­sköpun hjá bændum sam­rým­ist fram­an­greindum skuld­bind­ingum.

Í reglu­gerð 856/2016, um lítil mat­væla­fyr­ir­tæki og hefð­bundin mat­væli, eru sér­stök ákvæði varð­andi lítil slát­ur­hús. Markmið reglu­gerð­ar­innar er m.a. að auð­velda slát­ur­húsum að upp­fylla kröfur í holl­ustu­hátta- og eft­ir­lits­reglu­gerðum. Lítil reynsla er komin á fram­kvæmd reglu­gerð­ar­innar en talið er að þar geti falist ákveðin sókn­ar­færi til auk­innar verð­mæta­sköp­unar,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár