Aðeins ein dýrategund ber ábyrgð á COVID-19: Maðurinn

„Það er ein dýra­teg­und sem ber ábyrgð á far­aldri COVID-19 – við,“ skrifa nokkrir af fremstu sér­fræð­ingum heims í líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika. Heims­far­aldrar síð­ustu ára eru að þeirra sögn bein afleið­ing mann­anna verka.

Stórtækur landbúnaður og kjötframleiðsla ógnar vistkerfum jarðar.
Stór­tækur land­bún­aður og kjöt­fram­leiðsla ógnar vist­kerfum jarðar. Mynd: EPA

Faraldur kór­ónu­veirunnar ógnar heil­brigði og efna­hag alls mann­kyns. En þetta verður að öllum lík­indum ekki í síð­asta sinn sem ban­væn veiru­sýk­ing mun herja á okkur – ekki nema að tekið verði á rót vand­ans: Hömlu­lausri eyði­legg­ingu nátt­úr­unnar.

Þetta er mat sér­fræð­inga í líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika sem allir eru í hópi þeirra fremstu á því sviði. „Það er ein dýra­teg­und sem ber ábyrgð á far­aldri COVID-19 – við,“ segja þeir. Heims­far­aldrar síð­ustu ára og ára­tuga eru að þeirra sögn bein afleið­ing mann­anna verka, aðal­lega þeirra fjár­mála- og efna­hags­kerfa sem byggð hafa verið upp. Kerfa sem byggja á hag­vexti, sama hvað hann kostar. Núna er tæki­færið til að „hætta að sá fræjum fyrir far­aldra fram­tíð­ar­innar,“ segja vís­inda­menn­irnir.

[adspot]

Í ítar­legri sam­an­tekt Guardian um kenn­ingar og rann­sókn­ar­nið­ur­stöður pró­fess­or­anna Josef Settele, Sandra Díaz og Eduardo Brondizio, er m.a. fjallað um nið­ur­stöður umfangs­mik­illar rann­sóknar þeirra á lýð­heilsu. Nið­ur­staðan var sú að sam­fé­lögum manna væri stefnt í hættu með hraðri eyði­legg­ingu vist­kerfa jarðar.

Annar þáttur rann­sókn­ar­innar er í þann mund að hefj­ast og verður hann leiddur af fjórða sér­fræð­ingnum, Peter Daszak. Vís­inda­menn­irnir fjórir birtu sam­eig­in­lega grein í dag þar sem segir: „Hömlu­laus skóg­areyð­ing, stjórn­laus vöxtur stór­tæks land­bún­aðar, námu­vinnslu og inn­viða­upp­bygg­ingar ásamt hag­nýt­ingu villtra dýra, hefur skapað kjörað­stæður fyrir fjölda sjúk­dóma.“

Benda þeir á að um 70 pró­sent sjúk­dóma sem leggj­ast á menn eigi upp­runa sinn í dýrum. Og sífellt fleira fólk er í mik­illi nálægð við dýr vegna fyrr­greindra ástæðna. Veld­is­vöxtur í þétt­býl­is­myndun og flug­ferða­lögum varð svo til þess að „mein­laus veira í asískum leð­ur­blökum kall­aði for­dæma­lausar þján­ingar yfir fólk, stöðvun hag­kerfa og sam­fé­laga um allan heim“. Þetta er þáttur manns­hand­ar­innar í far­aldri og COVID-19 gæti verið „aðeins byrj­unin“.

Vís­inda­menn­irnir telja að far­aldrar eigi eftir að verða tíð­ari í fram­tíð­inni, breið­ast hraðar út og hafa meiri efna­hags­legar afleið­ingar. Þeir gætu banað fleirum ef ekki verður farið gríð­ar­lega var­lega í ákvarð­ana­tökum. „Heilsa fólks er nátengd heilsu dýra­lífs, heilsu búfén­aðar og heilsu umhverf­is­ins. Þetta er í raun eitt og hið sama.“

Inger Andersen, yfir­maður umhverf­is­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, sagði í mars að nátt­úran væri „að senda okkur skila­boð“ með far­aldri kór­ónu­veirunnar. Hún sagði að ef okkur auðn­ast ekki að hugsa betur um jörð­ina tæk­ist okkur ekki að hugsa betur um heilsu fólks.

António Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði í síð­ustu viku að stjórn­völd yrðu að nota tæki­færið og „byggja upp betri heim“ eftir að far­aldr­inum lýkur. Veröld sem byggir á sjálf­bærni og sterkum sam­fé­lögum.

Maðurinn sem fann upp hug­takið „líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki“ árið 1980, Thomas Lovejoy, sagði um helg­ina: „Far­ald­ur­inn er ekki hefnd nátt­úr­unnar. Við gerðum þetta ein og hjálp­ar­laust.“

Í grein sér­fræð­ing­anna fjög­urra segir: „Við getum komið út úr þessu ástandi sterk­ari en nokkru sinni fyrr með því að velja aðgerðir sem vernda nátt­úr­una svo að nátt­úran geti hjálpað til við að vernda okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár