Forsætisráðherra vísar samskiptum fréttamanns við Seðlabankann til lögreglu

Þor­steinn Már Bald­vins­son segir RÚV vera ger­anda í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja. Ráðist hafi verið á fyr­ir­tækið og starfs­fólk þess. Engar trún­að­ar­upp­lýs­ingar voru í tölvu­póst­sam­skiptum milli RÚV og bank­ans.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Hringbraut

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur vísað máli vegna mögu­legs upp­lýs­inga­leka frá Seðla­banka Íslands til RÚV til lög­reglu þar sem grunur sé um að lek­inn kunni að fela í sér refsi­verða hátt­semi. Frá þessu var fyrst greint í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi. Bréf þess efnis var sent til emb­ættis lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 11. sept­em­ber 2019.

Um er að ræða upp­lýs­ingar um hús­leit sem fór fram hjá Samherja i mars 2012 en sam­kvæmt frétt mbl.is um málið sýndi rann­sókn innri end­ur­skoð­anda Seðla­bank­ans að þáver­andi fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans, Ingi­björg Guð­bjarts­dóttir, hafi átt í tölvu­póst­sam­skipt­um við starfs­mann RÚV í rúm­an mánuð áður en ráð­ist var í þá hús­leit, sam­kvæmt bréfi sem Seðla­banki Íslands sendi þann 18. ágúst 2019 til for­sæt­is­ráð­herra. I frétt­inni segir að í tölvu­póst­sam­skipt­unum hafi engar trún­aðar­upp­lýs­ing­ar verið en frétta­maður RÚV hafi virst vita af fyr­ir­hug­aðri hús­leit.

Í frétt mbl.is er einnig rætt við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra og einn aðal­eig­anda Samherja, sem segri þar að um mjög rudda­lega fram­kvæmd hafi verið að ræða sem auk þess hafi verið sýnd í beinni útsend­ingu. „Þetta gekk út á það að hluta til að valda tjóni og meiða fólk og þetta hitti mjög marga starfs­menn Sam­herja illa. Það var verið að ráð­ast á fyr­ir­tæki og starfs­fólk þess. Það er ekki annað hægt en að kalla þetta árás og RÚV var ger­andi með Seðla­bank­an­um í þessu máli. Það er í raun það sem er verið að stað­festa.“

Már hefur hafnað því alfarið að RÚV hafi fengið gögn

Þann 8. nóv­em­ber í fyrra kvað Hæsti­réttur Íslands upp dóm í máli Seðla­banka Íslands gegn Sam­herja hf. Í dómnum er stað­fest nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðla­banka Íslands frá 1. sept­em­ber 2016 um að Sam­herji hf. skuli greiða 15 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt til rík­is­sjóðs vegna brota gegn reglum um gjald­eyr­is­mál.

Síðar í þeim mán­uði fór Már Guð­munds­son, þáver­andi seðla­banka­stjóri, í við­tal í útvarps­þátt­inn Sprengisand á Bylgj­unni. Þar sagði hann það af og frá að Samherja-málið hefði komið frá RÚV. Rann­sóknin hafi verið í fullum gangi þegar Kast­ljós hafði sam­band og spurt hvort þetta gæti stað­ist. „Bank­inn varð mjög óró­legur yfir því að þetta gæti mögu­lega spillt fyrir rann­sókn máls­ins. Þau fengu engin gögn frá okk­ur,“ sagði Már. Hann hafi heldur ekk­ert vélað um umfangs­mikla hús­leit sem ráð­ist var í hjá Sam­herja á sínum tíma. „Þetta virkar mjög umfangs­mikið en þegar menn telja að það sé nauð­syn­legt að kom­ast í öll gögn á einum tíma­punkti þá verður það ekki gert nema í umfangs­mik­illi aðgerð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár