FA: Verið að veikja stöðu Samkeppniseftirlitsins

Félag atvinnu­rek­enda hefur skilað inn umsögn um drög að frum­varpi til breyt­inga á sam­keppn­is­lögum en FA leggst ein­dregið gegn afnámi heim­ildar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að bera ákvarð­anir áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála undir dóm­stóla.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA. Mynd: Hringbraut

Félag atvinnu­rek­enda leggst ein­dregið gegn afnámi heim­ildar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins (SE) til að bera ákvarð­anir áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála (ÁNS) undir dóm­stóla. Þetta kemur fram í umsögn FA um drög að frum­varpi ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, til breyt­inga á sam­keppn­is­lögum.

Í umsögn FA segir að með slíkri laga­breyt­ingu sé verið að „veikja stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í þágu fyr­ir­tækja sem hafa brotið eða vilja brjóta sam­keppn­is­lög en slík brot eru skað­leg bæði neyt­endum og smærri og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Með því að sam­þykkja umrædda breyt­ingu væri Alþingi að ganga erinda stór­fyr­ir­tækja sem vilja kom­ast hjá rétt­mætum afleið­ingum sam­keppn­islaga­brota sinna og við­halda hátt­semi sem skaðar allan almenn­ing. Þannig tæki þingið sér stöðu gegn almenn­ingi í land­inu, sem og gegn smærri og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem hvað mesta hags­muni eiga af því að farið sé að ákvæðum sam­keppn­islaga.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið gagn­rýndi frum­varps­drögin á dög­unum en í frétt eft­ir­lits­ins sem birt­ist í vik­unni kemur fram að drögin hafi valdið miklum von­brigðum þar sem í þeim sé lögð til veru­leg veik­ing á sam­keppn­is­lögum sem rýra muni kjör almenn­ings.

[links]Í umsögn FA er fjallað um það hvernig kæru­mál séu rekin gagn­vart sam­keppn­is­yf­ir­völdum. „Í dag er staðan sú að nið­ur­stöður SE eru kær­an­legar til ÁNS. Aðild þriðja aðila, t.d. kær­anda, að þessum málum er tak­mörkuð á þessum stigum. Fyrir ÁNS eiga aðild sá aðili sem ákvörðun bein­ist gegn og svo SE sem tók umrædda ákvörðun, en ekki kvart­andi/kær­andi eða neyt­endur. Nið­ur­stöðu ÁNS, hver svo sem hún er, má bera undir dóm­stóla. Alla jafna geta aðeins þeir aðilar sem hafa beina og lögvarða hags­muni af þeirri nið­ur­stöðu borið úrskurði undir dóm­stóla. Þeir aðilar sem ekki hafa slíka hags­muni geta ekki átt slíka aðild og yrði málum, sem höfðuð væru af slíkum aðilum fyr­ir­sjá­an­lega vísað frá dómi. Slíkir aðilar væru í mörgum til­fellum keppi­nautar hins brot­lega sem og sam­tök neyt­enda og aðrir sem gæta réttar þolenda brot­anna, sem ekki gætu borið rétt­mæti nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar undir dóm­stóla. Hin brot­legu fyr­ir­tæki geta hins vegar borið nið­ur­stöður ÁNS undir dóm­stóla, séu þær þeim ekki að skapi.“

Telja að heimildin tryggi hagsmuni fyrirtækja og neytenda

FA færir fyrir því rök að íslenskt rétt­ar­far hafi ákveðna sér­stöðu að þessu leyti; dóma­fram­kvæmd hafi tak­markað aðild og aðgengi að dóm­stólum veru­lega umfram það sem leiða megi beint af texta laga um með­ferð einka­mála. „Sérstakt laga­á­kvæði um aðild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að dóms­málum til ógild­ingar á nið­ur­stöðum ÁNS vinnur gegn þessum mein­bugi og tryggir þar með hags­muni fyr­ir­tækja, neyt­enda og alls almenn­ings,“ segir í umsögn­inni.

Þar segir jafn­framt að til­gangur frum­varps­drag­anna hvað varðar aðgengi að dóm­stólum sé aug­ljós. Verið sé að nota fram­an­greindan rétt­ar­far­sann­marka til þess að búa til skálka­skjól fyrir þá aðila sem brjóta sam­keppn­is­lög en koma sér hjá afleið­ingum gjörða sinna fyrir ÁNS. „Sé slíkur aðili svo „lán­samur“ að fá ranga nið­ur­stöðu ÁNS um sak­leysi sitt mun sú nið­ur­staða verða end­an­leg fyrir þann aðila þar sem íslenskar rétt­ar­fars­reglur stæðu í vegi þess að aðrir gætu borið hina röngu nið­ur­stöðu undir dóm­stóla. Enn verri er sú stað­reynd að hin ranga nið­ur­staða ÁNS yrði í fram­haldi for­dæm­is­gef­andi í sam­bæri­legum málum og því gild­andi réttur á við­kom­andi sviði. Það þýddi í raun að borg­ar­arnir þyrftu að búa við við­var­andi órétt sökum þess að rangri nið­ur­stöðu ÁNS væri ekki hægt að hnekkja. Hér er um að ræða drauma­land þeirra sem kjósa að brjóta sam­keppn­is­lög og hafa ábata af slíkum brotum. Að sama skapi er þetta martröð þeirra sem trúa á virka sam­keppni, heil­brigða við­skipta­hætti og eðli­legt og virkt rétt­ar­ríki þar sem óréttur fær ekki óhindr­aða fram­göngu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár