Samkeppniseftirlitið segir að nýtt frumvarp muni rýra kjör almennings

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að nýtt frum­varp, sem meðal ann­ars fellir niður heim­ild þess til að skjóta málum til dóm­stóla, valda miklum von­brigðum. Það mun leggj­ast gegn sam­þykkt þess.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

„Frum­varps­drögin sem kynnt voru í gær valda miklum von­brigðum þar sem í þeim er lögð til veru­leg veik­ing á sam­keppn­is­lögum sem rýra munu kjör almenn­ings.“ Þetta kemur fram í frétt á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem birt var í dag. Tilefnið er fram­lagn­ing nýs frum­varps iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra þar sem lagt er til að koma í veg fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið geti borið nið­ur­stöður áfrýj­un­ar­nefndar undir dóm­stóla og að eft­ir­litið get­i þvingað fram breyt­ingar á skipu­lagi fyr­ir­tækja.

[links]Í frétt eft­ir­lits­ins segir að það sé alvar­legt að með frum­varp­inu sé lagt til að felld verði niður heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til mál­skots til dóm­stóla til að verja hags­muni almenn­ings og fyr­ir­tækja sem mátt hafa þolað skað­legar sam­keppn­is­hindr­anir. „Þannig verður Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gert ókleift að tryggja að hags­munir þess­ara aðila fái fulln­að­ar­úr­lausn fyrir dóm­stólum. Stór fyr­ir­tæki sem eru ósátt við úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála geta borið þá undir hér­aðs­dóm, Lands­rétt og eftir atvikum Hæsta­rétt. Verði frum­varpið að lögum mun hins vegar engin gæslu­maður almanna­hags­muna geta borið úrskurði nefnd­ar­innar undir dóm­stóla. Verður þá skapað kerfi þar sem hags­muna­gæsla öfl­ugra fyr­ir­tækja nýtur að þessu leyti for­gangs og yfir­burða gagn­vart hags­munum neyt­enda og smærri fyr­ir­tækja.“

[adspot]Sam­keppn­is­eft­ir­litið gerir líka athuga­semd við, og telur mikið áhyggju­efni, að lagt sé til að lögð verði niður heim­ild þess til að grípa til íhlut­unar vegna til­tek­inna skað­legra sam­keppn­is­að­stæðna. Heim­ildin gerir eft­ir­lit­inu til dæmis kleift að koma í veg fyrir að fyr­ir­tæki sitji óáreitt að ein­ok­un­ar­hagn­aði almenn­ingi til tjóns. „Þá er líka ljóst að frum­varpið er í beinu ósam­ræmi við aðgerðir á vett­vangi ráðu­neyt­is­ins, í sam­starfi við OECD, sem miðar að því að draga úr sam­keppn­is­hindr­unum, þ. á m. reglu­byrði, sem stafar af lögum og reglum. Sú vinna miðar að því að efla sam­keppni, almenn­ingi til hags­bóta, á meðan til­lögur í frum­varp­inu hafa í veiga­miklum atriðum þver­öfug áhrif, þ.e. veikja sam­keppn­is­lögin og draga úr mögu­leikum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að stuðla að auk­inni sam­keppni.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið seigr að það muni, í umsögn sinni til ráð­herra vegna frum­varps­ins, vara ein­dregið við lög­fest­ingu þess í núver­andi horfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár