Gylfi Magnússon: Láta blauta drauma fákeppnismógúla rætast

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, hefur gagn­rýnt harð­lega nýtt frum­varp iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra þar sem boð­aðar eru miklar breyt­ingar á sam­keppn­is­lög­gjöf­inni.

Gylfi Magnússon
Gylfi Magn­ús­son Mynd: Skjáskot/Alþingi


Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, gagn­rýnir að með nýju frum­varpi iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sé lagt til að koma í veg fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið geti borið nið­ur­stöður áfrýj­un­ar­nefndar undir dóm­stóla og að eft­ir­litið geti þvingað fram breyt­ingar á skipu­lagi fyr­ir­tækja. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag.

„Þetta eru ekki ný bar­áttu­mál mógúl­anna, hug­myndir í þessa veru hafa oft verið viðr­aðar áður en ekki fengið braut­ar­gengi vegna harðrar and­stöðu. Nú sjá þeir hins vegar greini­lega lag til að knýja þetta fram,“ skrifar Gylfi. [adspot]

Fyrirtæki meti sjálft hvort að skilyrði undanþágu fyrir samstarf séu uppfyllt

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, lagði fram frum­varp um breyt­ingar á sam­keppn­is­lögum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag. Frum­varpið er liður í aðgerðum stjórn­valda til stuðn­ings lífs­kjara­samn­ings aðila vinnu­mark­að­ar­ins frá því í vor og miða breyt­ingar að því að ein­falda fram­kvæmd sam­keppn­islag­anna og auka skil­virkni.

Með frum­varp­inu er meðal ann­ars lagt til að veltu­mörk til­kynn­ing­ar­skyldra sam­runa hækki og breyt­ingar lagðar til á máls­með­ferð sam­runa­mála.

Jafn­framt eru lagðar til breyt­ingar á fram­kvæmd und­an­þága frá sam­keppn­is­lögum þess efnis að fyr­ir­tæki meti sjálf hvort skil­yrði und­an­þága séu upp­fyllt.

Þá er lagt til að heim­ildir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til íhlut­unar í starf­semi fyr­ir­tækja án þess að þau hafi gerst brot­leg verði felld út sem og heim­ildir eft­ir­lits­ins til að skjóta úrskurðum áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála til dóm­stóla verði felldar brott. Í frum­varp­inu er enn fremur lagt til að for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verði skip­aður tíma­bundið til 5 ára í senn og að aðeins verði heim­ilt að skipa sama mann­inn tvisvar í emb­ætti.

Ekki nýtt baráttumál mógúlanna

Gylfi gagn­rýnir í færslu sinni að koma eigi að koma veg fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið geti þvingað fram breyt­ingar á skipu­lagi fyr­ir­tækja þegar ekk­ert annað virð­ist duga til að ná fram eðli­legri sam­keppni. Auk þess sé með frum­varp­inu lagt til að fella burt heim­ildir eft­ir­lits­ins til að skjóta úrskurðum áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála til dóm­stóla sem Gylfi segir að gæti meðal ann­ars að hags­munum brota­þola. 

Hann segir að hug­myndir í þessu veru hafi oft verið viðr­aðar áður en ekki fengið braut­ar­gengi vegna harðar and­stöðu. „„Einfalda fram­kvæmd sam­keppn­islag­anna og auka skil­virkni“ hljómar ein­hvern veg­inn betur en „Láta blauta drauma fákeppn­is­mó­gúla ræt­ast með því að draga tenn­urnar úr sam­keppn­is­eft­ir­liti á Íslandi eins og frekast er unnt“,“ skrifar Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár