„Þægilegra fyrir fákeppnismógúla landsins að þessi bankaráðsformaður segði sem minnst“

Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, svarar ummælum Halldórs Benja­míns Þor­bergs­sonar, fram­kvæmda­stjóra SA, um að við­brögð Gylfa hafi ekki sæmt stöðu hans.

Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands
Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands Mynd: Birgir.

„Sjálf­sagt væri þægi­legra fyrir fákeppn­is­mó­gúla lands­ins að þessi banka­ráðs­for­maður segði sem minnst eða tal­aði kannski bara einu sinni á ári um árs­reikn­ing bank­ans. Enda hætt við að á hann sé hlustað eins og fram­kvæmda­stjór­inn bendir á.“

Þetta skrifar Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands, í stöðu­færslu á Facebook og vísar þar í ummæli fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins um við­brögð Gylfa við nýju frum­varpi um breyt­ingar á sam­keppn­is­lög­gjöf­inni. 

[links]Gylfi gagn­rýndi frum­varp stjórn­valda harð­lega í gær og sagði hann meðal ann­ars að ráð­herr­arnir væru að láta blauta drauma fákeppn­is­mó­gúla ræt­ast. „Þetta eru ekki ný bar­áttu­mál mógúl­anna, hug­myndir í þessa veru hafa oft verið viðr­aðar áður en ekki fengið braut­ar­gengi vegna harðrar and­stöðu. Nú sjá þeir hins vegar greini­lega lag til að knýja þetta fram,“ sagði Gylfi meðal ann­ars.

Hlustað á hann sem formann bankaráðs

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að við­brögð Gylfa sæmi ekki stöðu hans. „Það er hryggi­legt og ekki sæm­andi for­manni banka­ráðs Seðla­banka Íslands að lýsa afstöðu sinni með þessum hætti,“ segir Halldór.

Hann segir að Gylfi verði að gæta þess að vegna stöðu hans sé á hann hlustað og að orð hans hafi áhrif bæði hér á landi og erlendis.

„Það stendur upp á hann að skýra hvernig þetta sam­ræm­ist stöðu hans og ég vænti þess að gengið verði eftir þeim skýr­ingum,“ segir Halldór.[adspot]

Hefur skilning á draumförum mógúla og martröðum neytenda

Í nýrri færslu á Facebook svarar Gylfi ummælum Halldórs í Frétta­blað­inu í dag og segir að hann tali frekar í krafti þess að hafa verið á árum áður for­maður stjórnar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og ráð­herra sam­keppn­is­mála sem og háskóla­kenn­ari fremur en for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans. 

„Hefur for­mað­ur­inn því ágæta þekk­ingu á sam­keppn­is­málum, m.a. skiln­ing á draum­förum mógúla og martröðum neyt­enda. En for­mað­ur­inn bíður jafn­spenntur eftir þessum skýr­ingum sem von virð­ist á og fram­kvæmda­stjór­inn,“ skrifar Gylfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár