Byggingarfyrirtækjum fjölgað hratt á vanskilaskrá

Á síð­ast­liðnu ári hefur bygg­ing­ar­fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fjölgað um tíu pró­sent. Alls skuld­uðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki bönkum 168 millj­arða króna í ágúst.

Mikill upp­gangur hefur verið í bygg­ing­ar­geir­anum á síð­ustu árum og búast má við fjölda nýrra bygg­inga á næstu árum. Skuldir bygg­inga­geirans við bank­ana hafa auk­ist und­an­farin ár og námu þær um 168 millj­örðum króna í lok ágúst síð­ast­liðnum. Þá hefur bygg­ing­ar­fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fjölgað um tæp tíu pró­sent á und­an­förnu ári. Þetta kemur fram í nýjum Fjár­mála­stöðug­leiki Seðla­bank­ans.

Ferðaþjónusta og fasteignamarkaðurinn helstu áhættuþættirnir

Í Fjár­mála­stöð­ug­leik­anum kemur fram að óvissa um fram­vindu efna­hags­mála bæði hér á landi og erlendis hafi auk­ist á liðnum mán­uðum. Alþjóðlegar hag­vaxt­ar­horfur hafa versnað og spár gera ráð fyrir að inn­lendur hagvöxtur verði óveru­legur eða lítil­lega nei­kvæður á þessu ári. Samkvæmt spá Seðla­bank­ans er útlit fyrir vægan efna­hags­samdrátt á þessu ári en bjart­ari tíð á því næsta.

Samkvæmt Seðla­bank­anum tengj­ast helstu áhættu­þættir inn­an­lands stöðu ferða­þjónust­unnar og mark­aði með íbúðar- og atvinnuhúsnæði en sam­spil er á milli þess­ara áhættuþátta. [adspot]

Offramboð í kortunum

[links]Framboð íbúðarhúsnæðis á höfuð­borg­ar­svæð­inu hefur auk­ist veru­lega á síðustu miss­erum og spáð er að fjöldi nýrra íbúða komi inn á mark­að­inn á næstu þremur árum. Nýbygg­ingar hafa hins vegar selst hægar en áður, einkum mið­svæðis í Reykjavík. 

Samhliða þess­ari mikilu fjölgun nýbygg­inga hefur dregið úr skammtímaútleigu íbúða á höfuð- borg­ar­svæð­inu. Sú þróun ætti að leiða til þess að íbúðir sem áður voru nýttar í skammtímaútleigu komi á sölu eða í langtímaleigu. Seðla­bank­anum telur að fram­boð og lækkun nafn­verðs gætu því fylgt í kjölfarið en í því felst áhætta fyrir fjár­mála­kerfið. Því beinir Seðla­bank­inn því til lána­stofn­an­ana að búa sig undir að nýbygg­ingar selj­ist hægt, veð­setn­ing­ar­hlutföll fast­eigna­veðlána hækki og útlánatöp vegna íbúðarhúsnæðis auk­ist.

Raunvöxtur útlána til byggingargeirans 16 prósent

Enn fremur hefur hægt veru­lega á hækkun íbúð­ar­verðs á síð­ustu miss­erum. Á árunum 2016 og 2017 hækk­aði íbúðaverð á höfuð­borg­ar­svæð­inu umfram bæði laun og leigu­verð og langt umfram bygg­ing­ar­kostnað.

Nú hefur þessi þróun hins vegar snúist við. Í lok ágúst hafði launavísitalan hækkað um 4,3 pró­sent á síð­ast­liðnum 12 mánuðum, vísitala leigu­verðs um 3,7 pró­sent og vísitala bygg­ing­ar­kostn­aðar um 4,6 pró­sent, en vísitala fast­eigna­verðs hafði hækkað um 3,6 pró­sent.

Á sama tíma er útlánavöxtur bank­anna til bygg­inga­geirans enn kröftugur og skuldir geirans auk­ist und­an­farin ár. Í Fjár­mála­stöð­ug­leik­anum kemur fram að þær námu um 168 millj­arðar króna í lok ágúst eða rúmlega 6 pró­sent af útlánum til við­skipta­vina.

Raunvöxtur útlána KMB til grein­ar­innar hefur verið nær stöðugt yfir 10 pró­sent á ársgrund­velli frá árinu 2016. Í lok ágúst mæld­ist hann um 16 pró­sent sam­an­borið við rúmlega 15 pró­sent í árslok 2018 Bank­arnir eiga því mikið undir stöðug­leika og hag­stæðri verð­þróun á mark­aðnum.

Fjölgað á vanskilaskrá

Fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá hefur fjölgað um rúm 4 pró­sent frá því í lok maí á þessu ári og er fjölgunin hlut­falls­lega mest meðal fyr­ir­tækja í bygg­inga­geir­anum og ferða­þjónustu. Und­an­farið ár hefur bygg­inga­fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fjölgað um tæp 10 pró­sent og ferða­þjónustu­fyr­ir­tækjum um 15 pró­sent.

Í Fjár­mála­stöðu­leik­anum kemur fram að þó að fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fjölgi hefur gjald­þrotum fyr­ir­tækja fækkað milli ára og er fjöldi gjald­þrota, það sem af er ári, svip­aður því sem hann var á sama tímabili árið 2017.

Að lokum eru vís­bend­ingar um að hægja fari á bygg­ingu hús­næðis á næstu árum. Talið er að fjöldi erlendra starfs­manna í bygg­ing­ar­iðn­aði hafa náð hámarki ásamt því að sem­ents­sala er farin að drag­ast saman. Þetta gæti bent til þess að hægja fari á bygg­ingu húsnæðis á næstu árum 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár