Stöðnun á fasteignamarkaðnum

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,2 pró­sent milli maí og júní. Verð á fjöl­býli hækk­aði um 0,3 pró­sent og verð á sér­býli lækk­aði um 0,5 pró­sent.

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,2 pró­sent milli maí og júní sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Verð á fjöl­býli hækk­aði um 0,3 pró­sent og verð á sér­býli lækk­aði um 0,5 pró­sent.

Þegar horft er yfir 12 mán­aða tíma­bil þá hefur verð á fjöl­býli hækkað um 3,4 pró­sent og verð á sér­býli um 1,8 pró­sent. Vegin árs­hækkun hús­næð­is­verðs nemur nú 3,4 pró­sent, sem er 0,4 pró­sentu­stiga lækkun frá fyrri mán­uði.

Samkvæmt Hagsjá Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans er fast­eigna­mark­aður í algerri kyrr­stöðu og telur hún þessar tölur vera enn ein birt­ing­ar­mynd á því að fast­eigna­mark­að­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé í mik­illi kyrr­stöðu.

Við­skipti með fjöl­býli skipta lang­mestu máli við mæl­ingar á þróun fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt Hag­fræði­deild Land­bank­ans. Þannig voru við­skipti með fjöl­býli um 82 pró­sent allra við­skipta með íbúð­ar­hús­næði á árinu 2018. Á síð­ustu sex mán­uðum hefur verð á fjöl­býli hækkað um 1 pró­sent og skiptir 1 pró­sent verð­lækkun í febr­úar miklu í því sam­bandi. Sam­svar­andi tala fyrir árið 2018 var 1,9 pró­sent og 11,9 pró­sent fyrir árið 2017.

Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hækk­aði um 0,37 pró­sent milli mán­aða í júni og 3 pró­sent á einu ári, eða nokkuð minna en fast­eigna­verð á sömu 12 mán­uðum. Hag­fræði­deild Lands­bank­ans bendir á að raun­verð fast­eigna hafi því breyst lítið milli mán­aða, nema hvað raun­verð sér­býlis hefur gefið nokkuð eftir. Horft yfir lengra tíma­bil hefur hóf­leg hækkun fast­eigna­verðs síð­ustu mán­uði náð að halda nokkurn veg­inn í við þróun verð­bólg­unnar án hús­næð­is­kostn­aðar. Því hefur raun­verð íbúð­ar­hús­næðis verið nokkuð stöðugt. Raunverð fór hæst í októ­ber 2007 fyrir hrun en lækk­aði svo mikið. Það náði aftur sama stigi í apríl 2017 og hefur síðan hækkað um tæp 10 pró­sent.

Árs­hækkun raun­verðs er orðin hóf­legri en áður. Þannig var raun­verð fast­eigna nú í júní um 0,2 pró­sent hærra en í júní 2018. Hækkun raun­verðs síð­ustu 12 mán­uði er mun minni en árin tvö þar á undan. Sam­svar­andi tölur voru 4,1 pró­sent fyrir júní 2018 og 25 pró­sent fyrir júní 2017.

Við­skipti með íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júní voru mun minni en verið hefur lengi að und­an­skildum des­em­ber á síð­asta ári. Fjöldi við­skipta fyrstu sex mán­uði árs­ins 2019 var um 4 pró­sent minni og á sama tíma fyrir ári og við­skiptin í júní í ár voru um 23 pró­sent minni en í júní 2018. Það má því segja að fast­eigna­mark­að­ur­inn hafi gefið tölu­vert eftir hvað fjölda við­skipta varðar, sam­kvæmt Hag­fræði­deild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár