Fyrsta lækkun í hlutdeild nýbygginga síðan 2010

Fjölgun nýbygg­inga á síð­ustu árum hefur ekki verið nóg til að sporna gegn hækk­andi með­al­aldri íbúða í kaup­samn­ingum. Hlutfall nýbygg­inga af kaup­samn­ingum það sem af er ári er 11 pró­sent sem er tölu­verð lækkun frá því í fyrra.

Hlut­deild nýbygg­inga í kaup­samn­ingum það sem af er ári nemur 11 pró­sentum og hefur lækkað nokkuð frá því í fyrra. Þetta er fyrsta lækk­unin í hlut­falli nýbygg­inga síðan árið 2010. Á síð­ustu tveimur árum hefur sam­keppni á mark­aði nýbygg­inga auk­ist en merki þess má sjá í lengri með­al­sölu­tíma nýrra íbúða ásamt auknu hlut­falli þeirra sem selj­ast undir ásettu verði.

Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. [adspot]

Hlutdeild nýbygginga breyst mikið

Á síð­ustu 13 árum hefur hlut­deild nýbygg­inga í kaup­samn­ingum tekið miklum breyt­ingum. Kaup og sala á nýbygg­ingum, sem eru í mesta lagi tveggja ára gamlar, minnk­aði ört í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árin 2008 og 2009, eftir að hafa fjölgað nokkuð umfram ann­ars konar fast­eigna­við­skipti í góð­ær­inu á undan.

Á árunum 2010 til 2018 jókst hlut­fall nýbygg­inga hins vegar aftur og fór úr þremur pró­sentum í 15 pró­sent, sam­hliða auk­inni íbúða­upp­bygg­ingu. Það sem af er ári hefur hlut­fallið þó lækkað frá því í fyrra, en það er fyrsta lækk­unin milli ára síðan í efna­hags­hrun­inu.

Meðalaldur íbúða 36 ár

Í skýrsl­unni er þróun nýlegra íbúða sem hlut­fall af kaup­samn­ingum, íbúðir sem eru yngri en tíu ára, einnig skoðuð en hún er tölu­vert ólík þróun nýbygg­inga. Hlutfall nýlegra íbúða hefur lækkað nokkuð stöðugt á hverju ári frá 2007 og hefur nú nær helm­ing­ist úr 32 pró­sent niður í 17 pró­sent ef marka má kaup­samn­inga það sem af er ári.

Skýrslu­höf­undar benda því á að íbúða­upp­bygg­ing síð­ustu ára virð­ist ekki hafa náð að sporna gegn öldrun íbúða, en með­al­aldur þeirra í kaup­samn­ingum hefur farið stöðugt hækk­andi á síð­ustu tólf árum. Með­al­ald­ur­inn hefur hækkað úr 28 árum í 36 ár frá árinu 2007.

Verðmunur nýbyggina og annara íbúða kominn niður í 9 prósent

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að sam­hliða auknum fjölda nýbygg­inga hefur verð­munur þeirra og ann­arra íbúða minnkað úr 30 pró­sentum niður í 9 pró­sent á árunum 2014 til 2018. Þessi þróun gefur til kynna að selj­endur nýrra íbúða hafi þurft að láta undan þrýst­ingi frá kaup­endum og gefa afslátt af íbúðum sínum í auknum mæli til þess að geta selt þær.

Hlutfall nýrra íbúða sem selj­ast undir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur farið úr 22 pró­sentum í júlí 2017 í 52 pró­sent síð­ast­lið­inn júlí. Til sam­an­burðar hefur sam­svar­andi hlut­fall gam­alla íbúða hald­ist nokkuð stöðugt í 80 pró­sent síð­ustu fimm árin, ef frá er talin tíma­bundin lækkun árið 2017 sem gekk skjótt til baka.

Á síð­ustu tveimur árum hefur með­al­sölu­tími nýrra íbúða einnig auk­ist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Með­al­sölu­tím­inn hefur farið úr 129 dögum í júlí 2017 upp í 214 daga í júlí síð­ast­liðnum. Á sama tíma hefur með­al­sölu­tími ann­arra íbúða hald­ist nokkurn veg­inn stöð­ugur í 70–90 dögum.

Samkvæmt Íbúða­lána­sjóði bendir þetta allt til að virk­ari sam­keppni sé nú á mark­aði nýbygg­inga kaup­endum í hag.

Líkur á fyrirhuguðum fasteignakaupum minnkað lítillega

Líkur ein­stak­linga á að kaupa sér fast­eign á næstu sex mán­uðum hefur lækkað lít­il­lega frá því í mars í fyrra, bæði utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og innan þess, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar sem Zenter gerði fyrir Íbúða­lána­sjóðs. 

Þessar nið­ur­stöður eru nokkuð á skjön við vísi­tölu fyr­ir­hug­aðra hús­næð­is­kaupa frá Gallup, sem mældi mikla hækkun á þeim mæli­kvarða milli mars og júní í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár