Toppnum náð í byggingariðnaðinum og erlendu starfsfólki fækkar

Hægt er að meta horfur í bygg­ing­ar­iðn­aði með því að skoða magn bygg­ing­ar­hrá­efnis sem flutt er til lands­ins og mæla fjölda erlendra starfs­manna í grein­inni.

Inn­flutn­ings­magn bygg­ing­ar­hrá­efnis hefur auk­ist með nokkuð stöð­ugum hætti á árunum 2013 til 2018 en aukn­ingin var mest í fyrra. Það sem af er ári hefur þó dregið nokkuð úr inn­flutn­ingi en sam­drátt­ur­inn er sá mesti sem mælst hefur frá árinu 2010. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Magn inn­flutn­ings á bygg­ing­ar­hrá­efnum getur gefið góða vís­bend­ingu um vænt umsvif íbúð­ar­upp­bygg­ingar hér á landi í náinni fram­tíð. Þar sem bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn reiðir sig að miklu leyti á inn­flutn­ing gætu slíkar tölur bent á þann fjölda verk­efna sem bíða íslenskra bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja hverju sinni.

Í skýrsl­unni segir að þrátt fyrir sam­drátt­inn sé enn meira flutt inn af bygg­ing­ar­hrá­efni en árið 2017.

Erlendu vinnuafli fer fækkandi

Þá kemur fram að einnig sé hægt að meta horfur í bygg­ing­ar­iðn­aði með því að mæla fjölda erlendra starfs­manna í grein­inni. Þar sem þeir séu gjarnan hreyf­an­leg­asta vinnu­aflið í grein­inni fjölgar þeim jafnan ört þegar nóg er til af verk­efnum hjá bygg­ing­ar­fyr­ir­tækjum og fækkar sömu­leiðis hratt þegar verr árar.

[adspot]

„Á svip­uðum tíma og inn­flutn­ingur bygg­ing­ar­hrá­efna náði met­hæðum var fjöldi erlendra starfs­manna í bygg­ing­ar­geir­anum einnig í hámarki. Með­fylgj­andi mynd sýnir þró­un­ina, en fjöldi starfs­manna í grein­inni með erlent lög­heim­ili rúm­lega nífald­að­ist frá árs­byrjun 2015 til árs­loka 2017, frá rúm­lega hund­rað manns og upp í þús­und. Frá því hefur þeim farið fækk­andi jafnt og þétt, en ef tekið er til­lit til árs­tíða­breyt­inga hefur fjöldi erlendra bygg­ing­ar­starfs­manna minnkað niður í rúm­lega átta hund­ruð manns í ár,“ segir í skýrsl­unni.

Upp­lýs­ingar um bæði inn­flutn­ing á bygg­ing­ar­hrá­efnum og fjölda erlendra starfs­manna í bygg­ing­ar­iðn­aði benda til þess að toppnum á starf­sem­inni hefur verið náð í bili, sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði. Enn fremur sýni nýj­ustu tölur að bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki hafi flutt inn minna af hrá­efnum og erlendum starfs­mönnum, sem bendi til þess að þau geri ráð fyrir færri verk­efnum á næst­unni. Þannig mætti búast við minni íbúða­upp­bygg­ingu í náinni fram­tíð en und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir tölu­verða starf­semi ef miðað er við síð­ustu tíu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár