Stjórnmálamenn verði að láta sig EES-málefni meiru varða

Í nýrri skýrslu um EES-samn­ing­inn segir að ráð­herrar og alþing­is­menn verði að láta sig EES-mál­efni meiru varða. Skýrslu­höf­undar leggja til að komið verði á fót sér stjórn­stöð EES-mála innan stjórn­sýsl­unnar sem fylgist með öllu er varðar mála­flokk­inn.

Björn Bjarnason, formaður starfshópsins.
Björn Bjarna­son, for­maður starfs­hóps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er alfarið á ábyrgð íslenskra stjórnvalda að hafa auga með öllum hrær­ingum á þessum vett­vangi í ljósi hags­muna Íslands. Engum öðrum er það skylt.“ Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps utan­rík­is­ráð­herra um EES-samn­ing­inn sem birt var í dag.

Í skýrsl­unni segir að stjórn­mála­menn, ráð­herrar og alþing­is­menn, verði að láta sig EES-mál­efni meiru varða. Starfs­hóp­ur­inn leggur til að komið verði á fót stjórn­stöð EES-mála innan stjórn­sýsl­unnar sem fylgist með öllu er varðar mála­flokk­inn. [adspot]

Þrettán þingmenn óskuðu eftir skýrslunni

Í apríl 2018 ósk­uðu þrettán þing­menn eftir skýrslu frá utan­rík­is­ráð­herra um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópska efna­hags­svæð­inu og þau áhrif sem EES-samn­ing­ur­inn hefði haft hér á landi. Í kjöl­farið skip­aði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, starfs­hóp sem hefur nú skilað skýrslu um EES-samn­ing­inn. Starfs­hóp­inn skip­uðu þau Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og mennta­mála­ráð­herra, og lög­fræð­ing­arnir Kristrún Heim­is­dóttir og Bergþóra Hall­dórs­dóttir.

Í skýrsl­unni segir að allir við­mæl­endur starfs­hóps­ins, að und­an­skildum full­trúum íslensku sam­tak­anna Frjálst land og norsku sam­tak­anna Nei til EU, telji að EES-samn­ing­ur­inn lifa góðu lífi og að hann sé til veru­legs gagns og ávinn­ings fyrir þá sem innan ramma hans starfa.

Íslenskt hagkerfi stækkað og lífskjör batnað

Í skýrslu starfs­hóps­ins segir að með aðild­inni að EES, þann 1. janúar 1994, hafi þjóðin verið end­an­lega leyst úr efna­hags­legum fjötrum og í dag sé hag­rænn bati Íslands af aðild­inni mik­ill. Evrópska efna­hags­svæðið er um þessar mundir lang­mik­il­væg­asti mark­aður Íslands. Þangað fór um 77 pró­sent vöruútflutn­ings árið 2018 og frá ríkjum ESB og EES/EFTA- ríkjanna kemur um 61 pró­sent vöruinn­flutn­ings til Íslands.

Þá teygi bein og óbein áhrif samn­ings­ins sig inn á öll svið samfélags­ins jafnt hjá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Til að mynda hafi tugþúsundir Íslend­inga nýtt sér réttinn sem EES-aðildin veitti þeim meðal ann­ars til afla sér mennt­unar eða leita sér lækn­inga í öðrum löndum.

Alls hafa um 40.000 Íslend­ingar notið þess sem í boði undir evrópskri sam­starfsáætlun í menntamálum, Erasmus+. Þá hafa verið gefin út hund­ruð þúsunda evrópskra sjúkra­trygg­inga­korta til Íslend­inga í áranna rás, þar af um 150 þúsund á árunum 2016, 2017 og 2018.

Enn­fremur hafi ein­stak­lingar notið góðs af þeim kröfum sem kveðið er á um í samnignum um persónuvernd, umhverf­ismál, félagsmál og neyt­endamál.

Laumi inn íþyngjandi heimasmíðuðum ákvæðum

Í skýrsl­unni segir að þótt kostir sam­eig­in­lega mark­að­ar­ins séu ótvíræðir kunni kröfurnar um eins­leitni og aðild að honum einnig að vera íþyngj­andi. Gallar við aðild­ina snúi að því sama og almennt sætir gagnrýni í Evrópu, að með þungu skrifræði og eft­ir­lits­kerfi seilist emb­ætt­is­menn án lýðræð­is­legs umboðs til meiri valda en góðu hófi gegni.

Í umræðum á Alþingi og almennum reglum á vett­vangi stjórnsýslunnar er lögð áhersla á að við inn­leið­ingu EES-gerða eigi ekki að ganga lengra en þær krefj­ast við að íþyngja þeim sem gert er að starfa eftir regl­unum. Samkvæmt skýrsl­unni er þó pottur brot­inn í þessum efnum og er það gjarnan kallað „gullhúðun“ þegar stjórnvöld ein­stakra ríkja herða á íþyngj­andi reglum EES-gerða til að ná fram sérgreindum mark­miðum á heima­velli.

Fulltrúar iðn­aðar og atvinnulífs hér á landi hafa meðal ann­ars gagnrýnt inn­leið­ingu EES-reglna með þeim rökum að íslensk stjórnvöld „laumi“ í EES-frumvörp íþyngj­andi heima­smíðuðum ákvæðum.

Tekið er þó fram í skýrsl­unni að skyldur vegna aðild­ar­innar vegi ekki þyngra en ávinn­ing­ur­inn sé lögð rækt við þau tæki­færi sem eru fyrir hendi til gæslu sérgreindra hags­muna. Bent er hins vegar á í skýrsl­unni að í þessum efnum ger­ist þó ekk­ert af sjálfu sér heldur megi rekja þróunina til þess að kjörnir full­trúar og stjórnvöld í hverju landi snúist ekki gegn henni af nægi­legum þunga.

Ábyrgð stjórnvalda að hafa augu með hræringum í Evrópusambandinu

Í skýrsl­unni eru teknar saman um upp­lýs­ingar um þát­töku Íslands í sér­fræð­inga­hópum og laga­setn­ing­ar­nefndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Íslend­ingar hafa rétt til að sækja fundi í sam­tals 649 mis­mun­andi hópum og nefndum. Sérfræð­ingahóparnir eru 465 og laga­setn­ing­ar­nefnd­irnar 184

Bráðabirgða­nið­ur­stöður í sept­em­ber 2019 sýna hins vegar að Ísland tekur þátt, reglu­lega eða eftir atvikum, í 64 laga­setn­ing­ar­nefndum af 184 eða í tæp­lega 35 pró­sent og í 181 sérfræð­ingahópi af 465 eða um 39 pró­sent.

„Það er alfarið á ábyrgð íslenskra stjórnvalda að hafa auga með öllum hrær­ingum á þessum vett­vangi í ljósi hags­muna Íslands. Engum öðrum er það skylt,“ segir í skýrsl­unni

Stór hluti samningsins innanríkismál

Að lokum telur starfs­hóp­ur­inn upp fimmtán atriði um úrbætur hér á landi er varða EES-samn­ing­inn. Þar á meðal telur hóp­ur­inn að binda verði enda á stjórnlaga­þrætur vegna EES-aðild­ar­innar, ann­að­hvort með því að við­ur­kenna að hún hafi áunnið sér stjórnlaga­sess eins og aðrar óskráðar stjórnlaga­reglur eða með því að skrá ákvæði um aðild­ina í stjórnar­skrána. Samkvæmt starfs­hópnum veikir vafi um að stjórnar­skrá Íslands heim­ili fulla aðild að EES-sam­starf­inu stöðu Íslend­inga gagn­vart sam­starfsríkjum, einkum Noregi og Liechtenstein

Þá tekur starfs­hóp­ur­inn það fram að við­ur­kenna skal í verki að samn­ing­ur­inn móti allt þjóð­lífið en ekki megi skil­greina hann sem erlenda ásælni. Raunar verði að við­ur­kenna að stór hluti EES-sam­starfs­ins sé alfarið inn­an­rík­is­mál.

Stjórnstöð EES-mála verði sett á fót

Skýrslu­höf­undar telja því að leggja beri grunn að meiri festu í allri stjórn og með­ferð EES-mála hér á landi. Að komið verði á fóti stjórn­stöð EES-mála innan stjórn­sýsl­unnar með föstu starfs­liði sem fylgist við­var­andi með öllu er varðar mála­flokk­inn á mót­unar- og fram­kvæmd­ar­stigi. Með því verði málefn­unum gert hærra undir höfuð innan ráðuneyta með þjálfuðu starfsfólki og töku ákvarð­ana á pólitískum for­sendum.

„Reynslan sýnir að með málefna­legri eft­ir­fylgni ná EES/EFTA-ríkin veru­legum árangri í þágu hags­muna sinna,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár