Telur að Samband íslenskra sveitarfélaga sé komið á hálan ís

Vigdís Hauks­dóttir segir að nú skuli „hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál trim­mað upp á sveita­stjórn­ar­stig­inu.“ Hún veltir því fyrir sér hvort sveita­stjórn­ar­stigið sé komið á leik­skóla­stig með því að búa til hegð­un­ar­reglur fyrir kjörna full­trúa.

Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauks­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lagði fram bókun á fundi borg­ar­ráðs í gær þar sem hún lýsir furðu yfir tveimur dag­skrár­liðum í fund­ar­gerð Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga en í þeim liðum er fjallað um siða­nefnd sam­bands­ins og hegð­un­ar­reglur fyrir kjörna full­trúa. Fund­ur­inn sam­bands­ins var hald­inn þann 30. ágúst síð­ast­lið­inn.

Vigdís spyr í bókun sinni hvort þetta hafi verið brýnu málin af þeim 38 dag­skrár­liðum sem farið var í. „Það er greini­lega mikið að gera hjá siða­nefnd en hún hefur fundað fjórum sinnum frá 10. apríl,“ segir í bókun Vigdísar.

Þá fer Vigdís yfir fund­ar­gerð sam­bands­ins og gerir dag­skrár­lið fimm að umtals­efni sem ber heitið Hegð­un­ar­reglur fyrir kjörna full­trúa. Þar voru lögð fram „drög um fagteymi sam­bands­ins vegna brota á hegð­un­ar­reglum fyrir kjörna full­trúa“ dags. 20. ágúst 2019 og „upp­færðar hegð­un­ar­reglur“ dags. 21. ágúst 2019. Siða­nefnd var falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta stjórn­ar­fund ásamt kostn­að­ar­mati vegna máls­ins.

Vigdís telur að Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga sé komið á hálan ís og „langt, langt fram úr hlut­verki sínu.“

[adspot]

Spyr hvort sveitastjórnarstigið sé komið á leikskólastig

„Hegð­un­ar­reglur fyrir kjörna full­trúa? Er sveita­stjórn­ar­stigið komið á leik­skóla­stigið með fullri virð­ingu fyrir leik­skóla­börnum. Nú stendur til að fjötra mál­frelsi kjör­inna full­trúa bæði með siða­reglum og hegð­un­ar­reglum góða fólks­ins. Undir hvora regl­una fellur það þegar t.d. kjör­inn full­trúi ullar á annan? Óskað er eftir að borg­ar­ráð fái drög að þessum hegð­un­ar­reglum og brota á þeim fyrir kjörna full­trúa. Ekki er hægt að fjötra mál­frelsi kjör­inna full­trúa með heima­til­búnum reglum sem eiga sér ekki laga­stoð. Það sann­að­ist í nýlegu máli þegar rann­sókn­ar­réttur ráð­húss­ins var virkj­aður fyrir upp­lognar sakir í ímynd­uðu ein­elt­is­máli gegn kjörnum full­trúa,“ kemur fram í bókun Vigdísar.

Hagur sveitarfélaga að stuðla að öryggi kjörinna fulltrúa

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Pírata lögði fram gagn­bókun þar sem segir að í kjöl­far #metoo hafi það afhjúp­ast að þörf sé á að kjörnir full­trúar rétt eins og aðrir hugi að því hvort fram­koma þeirra og hegðun sé að valda öðrum van­líðan eða sé hrein­lega áreitni eða ofbeldi.

„Siða­nefnd Sambands Íslenskra sveit­ar­fé­laga er leið­bein­andi fyrir sveit­ar­fé­lög um setn­ingu siða­reglna og hefur nú unnið drög að leið­bein­andi hegð­un­ar­reglum sem sveit­ar­fé­lög gætu sett sér kjósi þau það. Akureyri hefur þegar sett sér slíkar reglur og fleiri sveit­ar­fé­lög huga að því og er það vel. Það er hagur sveit­ar­fé­laga að stuðla að öryggi kjör­inna full­trúa. Ekki kemur á óvart að full­trúi Mið­flokks­ins sé ekki hlynntur slíku ef horft er til fram­göngu sumra full­trúa þess flokks und­an­farið og Klaust­ur­málið,“ segir í bók­un­inni.

„Klausturmál trimmað upp á sveitastjórnarstiginu“

Vigdís brást við og hélt því fram í annarri gagn­bókun að afhjúp­unin væri algjör. „Nú skal hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál trim­mað upp á sveita­stjórn­ar­stig­inu. Minnt er á að vara­for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga situr í borg­ar­ráði. Er þetta stefna sam­bands­ins? Áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins fer ekki niður á sama plan og meiri­hlut­inn að ræða kyn­ferð­is­af­brot kjör­inna full­trúa á vinstri vægnum þrátt fyrir að slíkt er stað­reynd,“ segir hún.

Hún telur gagn­bókun meiri­hlut­ans dæma sig sjálf og að hegð­un­ar­reglur fyrir kjörna full­trúa eigi ekk­ert skylt við gróft ofbeldi. Slíkt eigi heima hjá lög­regl­unni og þá hugs­an­lega í fram­haldi af því hjá dóm­stólum. Verið sé að næra dóm­stól göt­unnar með ólög­bundnum hegð­un­ar­reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár