Besta platan með Pearl Jam - Vitalogy

Vitalogy var gefin út af Epic Records þann 22. nóv­em­ber 1994, 15 lög á 55 mín­útum og 30 sek­úndum.

Hug­myndin um bestu plöt­una hverju sinni bygg­ist ein­göngu á skoðun minni og þekk­ingu. Skoðunin er oft­ast mjög sterk en þekk­ingin getur verið alla­vega. Þannig hika ég ekki við að til­nefna bestu plöt­una og þá skiptir engu hvort ég þekki allar útgáfur við­kom­andi mjög vel eða bara þessa einu – já eða eitt­hvað þar á milli.

Ég er þess vegna alltaf til í rök­ræður og upp­fræðslu frá les­endum sem annað hvort vita betur eða telja sig vita betur. Aðal­málið er að hlusta á og ræða hljóm­plötur sem heild, bestu plöt­una í hvert skipti.

Hljóm­sveitin Pearl Jam var stofnuð árið 1990 í Seattle, í Washington-ríki Banda­ríkj­anna. Pearl Jam hefur gefið út 10 breið­skífur á ferl­inum:

Ten (1991)

Vs. (1993)

Vitalogy (1994)

No Code (1996)

Yield (1998)

Binaural (2000)

Riot Act (2002)

Pearl Jam (2006)

Backspacer (2009)

Lightn­ing Bolt (2013)

Eftir fjögur ótrú­leg ár voru Pearl Jam-liðar komnir á slæman stað. Tvær plötur í rassvas­anum, Ten (1991) og Vs. (1993), báðar horn­steinar Grunge-stefn­unnar sem hafa sam­tals selst í vel yfir 20 millj­ónum ein­taka. En nú var allt á leið í vaskinn.

Jöwröwmööw

Ég var ekki sér­lega mik­ill Pearl Jam-maður á fyrstu árum bands­ins. Ég hlust­aði á þung­arokk og pönk. Nirvana náði mér á fyrstu sek­únd­unni en restin af Grunge-bönd­unum ekki. Mér fannst þetta frekar lint og ansi til­gerð­ar­legt sem hafði senni­lega með söngstíl­inn að gera. Stálp­aðir menn sem sungu eins og þeir væru linnu­laust sár­k­valdir á sál og lík­ama og not­uðu helst bara eina gerð sér­hljóða sem var ein­hvers­konar blanda af a, o, ö og ú en þó sungið rétt fyrir aftan tungurót­ina. Ætli „öw“ sé ekki ígildi hljóð­rit­unar sem við gætum notað í hall­æri. Ég átti alltaf afar erfitt með að heyra Eddie Vedder jarma „Jöwröwmööw spööwk öööwn clööööwss töwdöööööööw,“ og á raunar enn.

Hröð, kaótísk, ljót og óskiljanleg

Ég fékk Vitalogy í jóla­gjöf árið 1994, mán­uði eftir að hún kom út. Geisla­disk reyndar en hann kom ekki út fyrr en 1. des­em­ber, níu dögum á eftir vín­yl­út­gáf­unni. Vín­yll­inn seld­ist í 34.000 ein­tökum fyrstu vik­una, heims­met sem stóð allt til árs­ins 2014 þegar Jack White gaf út Lazaretto og seldi 40.000. Vitalogy var hitt­ari, ótrú­legt en satt. Eftir brjál­aða vel­gengni og gríð­ar­legt álag frá útgáfu Ten var Pearl Jam að lið­ast í sundur. Meðlimir töl­uð­ust ekki við nema af nauð­syn, valda­bar­átta gerði vart við sig, ótæpi­leg eit­ur­lyfja- og áfeng­is­neysla gerði sam­skiptin enn flókn­ari og svo mætti lengi telja. Þau fáu lög sem samin voru í sam­vinnu urðu til á tón­leika­ferða­lag­inu árið áður, Vedder átti eins og eitt gam­alt lag í fórum sínum en ann­ars varð lítið úr verki fyrr en í hljóð­verið var komið. Þar gerð­ust hlut­irnir hins vegar bæði hratt og harka­lega, eða svo lýsa með­lim­irnir sem og pródús­er­inn Brendan O’Brien ástand­inu núna þegar árin hafa liðið og öld­urnar lægt. Þeir ganga svo langt að segja að gerð plöt­unnar hafi verið knúin áfram af vilja til þess að eyði­leggja allt sem þeir höfðu byggt upp fram að því.

Lögin eru oft hröð, kaó­tísk, ljót og óskilj­an­leg, samin hálf­tíma eða klukku­tíma áður en þau voru tekin upp og allt látið standa. Seint í ferl­inu þurfti trommar­inn Dave Abbruzzese að bregða sér af bæ til að láta taka úr sér nef­kirtla. Í hans fjar­veru varð lagið Satan’s Bed til sem aðstoð­ar­maður Dave tromm­aði inn á teipið. Sú taka stendur og stuttu síðar var Abbruzzese lát­inn fara. Þetta sem og önnur nið­ur­rifs­starfs­semi hefði getað þýtt enda­lok Pearl Jam. Platan er enda afar und­ar­leg á margan hátt, sér í lagi ef hún er borin saman við fyr­ir­renn­ar­ana sem eru í raun ekk­ert annað en frekar fyr­ir­sjá­an­legar rokk­plötur þótt góðar séu. Vitalogy hefði getað fallið vit­lausu megin (eða réttu megin kannski, ef tak­markið var í alvör­unni að skemma fer­il­inn) og floppað.

Hulstrið sem passaði ekki í hillur

Ég man eftir því að hafa tekið plastið utan af disk­inum og furðað mig á umslag­inu. Það var ógeðs­lega flott, eins og gömul bók, en djöf­ull lét ég fara í taug­arnar á mér að það skyldi snúa svona vit­laust. Ég átti þá þegar mörg­hund­ruð diska og sá fram á að þessi myndi annað hvort standa upp úr bunk­anum eða þurfa að snúa rangt. Skýr­ingin er sú að hulstrið er fengið að láni af lækna­vís­inda­bók frá miðri tutt­ug­ustu öld og Jam-liðar vildu halda sem mest í útlit og form bók­ar­innar, fram­leið­endum, búð­ar­eig­endum og mér til ama. En sum sé, aðfanga­dags­kvöld 1994 og ég hálf­svekktur með þessa gjöf. Jólin 1993 hafði ég fengið In Utero með Nirvana í svip­uðum pakka og sat núna með heyrn­ar­tólin á stofu­gólf­inu við Marantz-græjurnar hans pabba í nákvæm­lega sömu aðstæðum og árið áður.

Nema hvað að In Utero var vit­an­lega frá­bær. Nú hafði ég bara fengið eitt­hvað drasl með Pearl Jam. Ég hugs­aði um að skipta gjöf­inni fyrir ein­hvern disk sem mig lang­aði í en féll frá því. Bæði þótti mér vænt um frændur mína sem gáfu mér plöt­una og svo upp­lifði ég þarna þá til­finn­ingu sem við sem njótum tón­listar þekkjum flest: „Hvað ef ég er vanda­málið? Get ég setið hérna á gólf­inu í for­eldra­húsum og púað á hljóm­sveit sem hefur selt 20.000.000 ein­tök af plöt­unum sínum? Hefur fjöld­inn rétt fyrr sér?“ Ég hef alltaf átt erfitt með þá skil­grein­ingu. Þetta lag er til að mynda með 2.259.766.725 áhorf á YouTube þegar þetta er skrifað en gerir nákvæm­lega ekk­ert fyrir mig. Ég próf­aði meira að segja að hlusta 10 sinnum í röð:

Getur fólk í alvöru haft rangt fyrir sér vel á þriðja millj­arð sinnum?

Besta lag Pearl Jam frá upphafi

Fyrsta lagið rann að mig minnir bara fram­hjá mér meðan ég skoð­aði hulstrið. Ekkert slæmt, en ekk­ert frá­bært. Flott gít­arsánd samt. En svo kom lag númer tvö, Spin the Black Circle sem ég vissi ekki þá en hafði verið valið sem fyrsta smá­skífu­lag af plöt­unni.

Óskilj­an­leg ákvörðun hrein­lega, pönk­skotið og alls ekki lík­legt til útvarps­vin­sælda og mjög í takt við allt nið­ur­rifið. En þetta var frá­bært! Heift, áræðni og miklu minna öw! Og þarna var þetta komið. Ég sat og hlust­aði á plöt­una í gegn og trúði því varla að þetta væri Pearl Jam. Nokkur lag­anna eru óskilj­an­leg og rétt að segja leið­in­leg, bæði til­rauna­kennd og voða­leg. En það er bara eitt­hvað svo frá­bært. Hápunkt­arnir eru þó vissu­lega lögin sem virð­ast aðeins meira yfir­veguð og úthugsuð en mig grunar að gald­ur­inn á bak­við þau sé allt brjál­æðið sem knýr hin lögin. Kannski torskilj­an­leg pæl­ing en ég ætla að standa við hana.

Bestu lögin eru Better Man, lagið sem Vedder átti á lager og hafði reyndar samið áður en Pearl Jam varð til, Imm­orta­lity, Corduroy og Not­hing­man, sem mér finnst vera besta lag Pearl Jam frá upp­hafi. Allt frekar afslöppuð og aðgengi­leg lög sem virð­ast standa eins og blóm upp úr óárenni­legum arf­a­num sem þekur jörð­ina allt um kring. Stór­kost­legt jafn­vægi.

Platan seld­ist hratt og hlaut mikið lof, þvert á vænt­ingar margra og kannski fyr­ir­ætl­anir. Sveitin vann sín fyrstu Grammy-verð­laun, Best Hard Rock Performance, fyrir Spin the Black Circle árið 1996 og hlaut fleiri til­nefn­ingar þetta sama ár. Vitalogy hefur aldrei náð að setj­ast á sömu syllu og plöt­urnar tvær sem á undan komu hvað varðar vin­sældir en situr þó ansi örugg­lega í þriðja sæti þegar kemur að sölu og útbreiðslu. Hvað cult-status varðar trónir hún ótví­rætt á hæstu tindum.

Gömlukallaband?

Neibb! Þótt Pearl Jam hafi ekki gefið út breið­skífu síðan 2013 eru þeir langt frá því orðnir gömlu­kalla­band. Þeir við­halda fersk­leik­anum og selja tón­leika­miða í gáma­vís. Í dag eru það aðeins tvö af lög­unum af Vitalogy sem fá mjög reglu­lega spilun á tón­leikum, Corduroy og Better Man, en þó eru þeir mjög dug­legir við að rótera á prógram­inu, svo mjög að varla er til það lag af ferl­inum sem aldrei heyr­ist læf. Næstu afleys­inga­lög af Vitalogy eru Spin the Black Circle og Not­hing­man, Not for You og jafn­vel Last Exit sem öll heyr­ast nokkrum sinnum á hverjum túr. Önnur heyr­ast sjaldnar en fæst aldrei. Meira að segja hið stór­und­ar­lega Bugs fékk síð­ast að hljóma árið 2013 (og reyndar oftar á sól­ótón­leikum hjá Vedder).

Ég þekki seinni ára feril Pearl Jam ekki mjög vel. Það sem ég hef heyrt fellur yfir­leitt í flokk­inn „þetta bætir engu við,“ sem er sagan með margt lista­fólk sem byrjar fer­il­inn á því að slá í gegn. Bandið hefur þó farið minna í taug­arnar á mér eftir því sem árin líða, meira að segja öw og fyrstu plöt­urnar tvær. Þeir halda í heil­indin, fjórir af fimm eru stofn­með­limir og Matt Cameron hefur setið við settið síðan 1998. Það þarf sterk bein til að þola góða daga.

Ég hvet ykkur öll til að hlusta á þetta meist­ara­verk í heild. Hér er mín skoðun en ég skal glaður rök­ræða hana: Vitalogy er besta platan með Pearl Jam

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár