Forgangsatriði hjá ríkisstjórninni að hlífa fjármagnseigendum

Samkvæmt ASÍ virð­ist það vera for­gangs­at­riði hjá rík­is­stjórn­inni að hlífa fjár­magns­eig­endum við að greiða sitt til sam­fé­lags­ins eins og launa­fólki ber að gera. Á meðan bóli ekk­ert á skatta­lækk­unum fyrir lág­tekju­fólk.

„Nú tæpum 5 mán­uðum eftir und­ir­ritun kjara­samn­inga eru einu skatta­til­lögur stjórn­valda áform um breyt­ingar á fjár­magnstekju­skatti þannig að fjár­magns­eig­endur þurfi ekki að greiða skatt af öllum fjár­magnstekjum heldur ein­ungis raun­vöxtum.“ Þetta kemur fram ályktun mið­stjórnar ASÍ í dag en greint var frá henni í til­kynn­ingu frá sam­band­inu í dag.

Samkvæmt ASÍ virð­ist því for­gangs­at­riði hjá rík­is­stjórn­inni að hlífa fjár­magns­eig­endum við að greiða sitt til sam­fé­lags­ins eins og launa­fólki ber að gera. Á meðan bóli ekk­ert á skatta­lækk­unum fyrir lág­tekju­fólk.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að frá vor­mán­uðum hafi verka­lýðs­hreyf­ingin ítrekað kallað eftir til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar um skatta­lækk­anir fyrir lág­tekju­fólk. „Mið­stjórn ASÍ hefur nú þrotið þol­in­mæðin og krefst þess að rík­is­stjórnin sýni á spilin.“

Í yfir­lýs­ingu stjórn­valda í tengslum við kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru 4. apríl segir:

  1. Komið verði á fót þriggja þrepa skatt­kerfi með nýju lág­tekju­þrepi. Miðað er við að sú aðgerð auki ráð­stöf­un­ar­tekjur tekju­lægsta hóps­ins um tíu þús­und krónur á mán­uði.
  2. Skatt­leys­is­mörk hald­ist föst að raun­virði á inn­leið­ing­ar­tíma­bil­inu og að því loknu hækki per­sónu­af­sláttur og skatt­þrep umfram verð­bólgu sem nemi fram­leiðni­aukn­ingu.

„Við und­ir­ritun samn­inga var lögð mikil áhersla á þetta atriði og var það for­senda þess að kjara­samn­ingar við Samtök atvinnu­lífs­ins voru und­ir­rit­aðir og síðar sam­þykktir af félögum stétt­ar­fé­lag­anna. Þrátt fyrir ítrek­aðar kröfur um að sjá til­lög­urnar eru þær ekki enn komnar fram og krefst mið­stjórn ASÍ þess að þær líti dags­ins nú þegar,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár