Réttindi Íslendinga sem flytja til Bretlands eftir Brexit skerðast

Sendiráð Íslands í London segir að rétt­indi Íslend­inga sem búsettir eru í Bret­landi fyrir Brexit muni ekki skerð­ast í kjöl­far útgöngu. Sendi­ráðið segir það hins vegar áhyggju­efni hversu fáir Íslend­ingar hafi sótt um svo­kall­aðan Settled Status.

Íslend­ingar, sem og aðrir rík­is­borg­arar frá ríkjum innan EES, sem flytja til Bret­lands eftir 31. októ­ber á þessu ári þurfa að greiða fyrir þjón­ustu í breska heil­brigð­is­kerf­inu (NHS) í kjöl­far fyr­ir­hug­aðrar útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sendi­ráðs Íslands í London.

Breskir fjöl­miðlar hafa greint frá því í vik­unni að frjáls för fólks kunni að stöðvast strax í kjöl­far útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu í lok októ­ber. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá breska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu á það hins vegar ekki við um EES-rík­is­borg­ara sem flytja til Bret­lands fyrir þann tíma. Að sama skapi hafa fjöl­miðlar greint frá því að rík­is­borgar frá ríkjum innan EES þurfi að greiða fyrir þjón­ustu í breska heil­brigð­is­kerf­inu í kjöl­far Brexit en sam­kvæmt sendi­ráði Íslands á það ekki við sem búsettur eru í Bret­landi fyrir útgöngu.

Þurfa að hafa réttindi til búsetu

Stefán Haukur Jóhann­es­son, sendi­herra Íslands í London, segir það aftur á móti áhyggju­efni hversu fáir íslenskir rík­is­borgar hafa sótt um svo­kall­aðan Settled Status en hingað til hafa ein­göngu borist um 200 umsóknir frá Íslend­ingum. Umsókn­ar­frestur er til 31. des­em­ber 2020 en Stefán Haukur hvetur Íslend­inga að draga það ekki of á lang­inn að sækja um þar sem afgreiðslu­tími umsókn­anna gæti verið langur.

„Við mælum ein­dregið með því að fólk sæki um sem allra fyrst þar sem óvissa ríkir enn um útfærslu á útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þó að samn­ingar hafi náðst við bresk stjórn­völd um rétt­indi borg­ara eftir Brexit þá þurfa allir sem hér dvelja og hyggj­ast gera svo áfram að hafa rétt­indi til búsetu, þ.e. settled status eða pre-settled status,“ segir Stefán Haukur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár