Sýn ofmat tekjur sínar og vanmat kostnað við útsendingu miðla

Sýn sendi frá sér afkomu­við­vörun í dag. Tekjur 2019 verða tæp­lega 400 millj­ónum krónum lægri en áætlað var. Félagið mun kynna stefnu­mótun til fram­tíðar sam­hliða næsta upp­gjöri sínu, sem birt verður í næstu viku.

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Sýn hf. hefur gefið út afkomu­við­vörun þar sem fram kemur að tekjur fyrir árið 2019 vegna fjöl­miðla og fjar­skipta hafi verið ofá­ætl­aðar um tæpar 400 millj­ónir króna í fyrri áætlun og að kostn­aður við útsend­ingar miðla van­á­ætl­aður um 160 millj­ónir króna.

[links]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna þessa segir að fram­kvæmda­stjórn Sýnar sé „búin að breyta upp­gjörum deilda og skerpa á innri ferlum sem mun skila sér í áreið­an­legri spám héðan í frá. Sömu­leiðis hafa aðgerðir sem gripið var til í rekstr­inum í sumar lækkað kostn­að­ar­stig fyr­ir­tæk­is­ins umtals­vert til fram­tíðar.“

Félagið mun birta upp­gjör sitt vegna fyrri hluta árs í næstu viku, nánar til­tekið 28. ágúst. Hluta­bréf í Sýn hafa lækkað um átta pró­sent í Kaup­höll­inni það sem af er degi.

Uppsagnir í síðustu viku

Sýn varð til þegar Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­skipti sam­einað fjöl­miðla­starf­semi inn í rekstur félags­ins sem fól í sér meðal ann­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Miðl­ana höfðu Fjar­skipti keypt af 365 miðl­um. Nafna­breyt­ingin var fram­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­semi hins sam­ein­aða félags.

[adspot]Þrettán manns var sagt upp störfum hjá Sýn í síð­ustu viku. Á meðal þeirra eru dag­skrár­gerð­ar­mað­ur­inn Hjörvar Haf­liða­son, sem hefur starfað í sjón­varpi og útvarpi árum sam­an, og frétta­menn­irnir Kristín Ýr Gunn­ars­dóttir og Sig­hvatur Jóns­son, sem starfa á frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unn­ar.

Munu kynna stefnumótun til framtíðar

Sýn hefur ekki birt upp­gjör sitt vegna ann­ars árs­fjórð­ungs, en mun gera það 28. ágúst, líkt og áður sagði. Félagið skil­aði 670 millj­­ónum króna hagn­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi, sem er hækkun um 619 millj­­ónir króna milli ára. Lyk­ilá­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði á árs­fjórð­ungnum er vegna þess að bók­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­ur­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­ur­­fé­lag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­kvæmt hlut­­deild­­ar­að­­ferð og því ekki hluti af sam­­stæð­u­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nemur bók­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­ónum króna. Án hans hefði verið tap á rekstri Sýnar á árs­fjórð­ungn­­um.

Tekjur Sýnar á tíma­bil­inu voru 4.975 millj­­ónir króna sem er lækkun um eitt pró­­sent frá sama tíma­bili í fyrra, þegar tekjur voru 5.030 millj­­ónir króna. Ef verð­­bólga er tekin inn í dæmið þá var sam­­drátt­­ur­inn í raun­­tekjum meiri en áður­­­nefnt eitt pró­­sent. Kostn­að­­ar­verð jókst að sama skapi og dróst fram­­legð saman um 118 millj­­ónir króna milli ára.

Tekjur Sýnar sam­an­standa úr nokkrum stoð­­um. Sú eina þeirra sem skil­aði meiri tekjum í ár en á sama árs­fjórð­ungi 2018 var sala á inter­­net­­þjón­­ustu. Tekjur vegna fjöl­mið­l­un­­ar, far­síma, fast­línu og vöru­­sölu dróg­ust allar sam­­an.

Von er á ítar­legri kynn­ingu á stefnu­mótun Sýnar í næsta upp­gjöri félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár