Björn Ingi segir kyrrsetningu hafa valdið sér fjártjóni og vandræðum

Rit­stjóri Viljans segir að íþyngj­andi og órétt­mæt kyrr­setn­ing eigna hans sé ástæða fjár­hags­vand­ræða sem hann hafi átt við. Hann býst við að tjón sitt verði bætt af hinu opin­bera.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafns­son. Mynd: RÚV/Skjáskot

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans, segir að fjár­hags­vand­ræði sín hafi fyrst og fremst stafað af „afar íþyngj­andi kyrr­setn­ing­ar­að­gerð sem Toll­stjóra­emb­ættið gerði á öllum mínum eigum að kröfu Skatt­rann­sókn­ar­stjóra á sínum tíma. Eignir fyrir vel á annað hund­rað millj­ónir króna voru kyrr­settar um langt skeið með til­heyr­andi fjár­tjóni og vand­ræðum fyrir mig, svo sem nærri má geta.“

[links]Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hann birti í Facebook í dag. Tilefni skrifa hans er frétt sem birt­ist á Stund­inni í gær þar sem greint var frá því að Björn Ingi hefði haft tæp­lega 2,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun í fyrra. Þá var farið yfir það í frétt­inni að Björn Ingi hefði verið grun­aður um brot vegna bók­halds og skatt­skila á árunum 2014 til 2017.

Björn Ingi segir í stöðu­upp­færsl­unni að fréttir af fjár­hags­vand­ræðum hans í Stund­inni séu orðnar ótelj­andi og að sér­stakt rann­sókn­ar­efni sé sú „áhersla sem þar er lögð á að setja mín per­sónu­legu mál í nei­kvætt ljós aftur og aftur. Nú eru tólf ár liðin frá því ég hætti afskiptum af stjórn­málum, en af frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar að dæma mætti ætla að ég hafi átt sæti í rík­is­stjórn Íslands allan þann tíma.“

Segist saklaus uns sekt sannast

Kyrr­setn­ingin toll­stjóra á eigum hans upp á 115 millj­ónir króna var til­komin vegna skatt­rann­sókn­ar­innar á Birni Inga, sem felld var niður í lok jan­úar síð­ast­lið­ins.

[adspot]Hann segir að í kjöl­far þess hafi tekið við ferli við að vinda ofan af afleið­ingum þessa. „Það er viða­mikið verk­efni og tíma­frekt. Krafa um nauð­ung­ar­upp­boð, sem Stundin hefur sagt frá, kemur að lang­mestu leyti til af áætl­unum á mig en ekki raun­veru­legri skuld og eru þau mál nú í kæru­með­ferð. Ætti leið­rétt nið­ur­staða úr þeim málum að liggja fyrir á næstu vikum. Lögmaður minn hefur auk­in­heldur lýst því yfir að farið verði fram á það við emb­ætti Rík­is­lög­manns, að mér verði bætt það mikla tjón sem staf­aði af hinni órétt­mætu kyrr­setn­ing­ara­gerð og er það mál í ferli.“

Krafan um nauð­ung­ar­upp­boð er í fjórum eignum Björns Inga að Más­stöðum í Hval­firði og var upp­boðið aug­lýst í síð­asta mán­uði. Gerð­ar­beið­endur eru auk sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rík­is­skatt­stjóri, Hval­fjarð­ar­sveit og Vátrygg­inga­fé­lag Íslands.

Björn Ingi seg­ist hvetja til þess að var­lega verði farið í kyrr­setn­ing­ar­að­gerðir í fram­tíð­inn að hálfu hins opin­bera. „Hver maður er sak­laus uns sekt hans sann­ast, þótt ekki geri allir fjöl­miðlar mikið með þá mik­il­vægu meg­in­reglu rétt­ar­rík­is­ins. Ein­stak­lingur má sín lít­ils gegn kerf­inu við slíkar aðstæður og þótt ég hafi alltaf vitað að sann­leik­ur­inn kæmi fram að lokum, var ömur­legt fyrir mig og fjöl­skyldu mína að þurfa að búa við óvissu og óör­yggi jafn lengi og raun bar vitni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár