Ríkislögmaður ver hagsmuni ríkisins vegna þrots Pressunnar

Einar Karl Hall­varðs­son hrl., rík­is­lög­maður, stað­festir að mál sé núna í dóms­kerf­inu þar sem bús­stjóri Pressunnar vill láta rifta greiðslum til rík­is­sjóðs, sem Pressan skuld­aði við fall fyr­ir­tæk­is­ins. Sviðin jörð van­efnda í tengslum við rekst­ur­inn.

Bús­stjóri Pressunnar, gjald­þrota fjöl­miðla­fyr­ir­tækis, telur að rifta þurfi greiðslum til kröfu­hafa félags­ins skömmu áður en félagið fór í þrot, og þar á meðal eru greiðslur í rík­is­sjóð vegna skulda á opin­berum gjöldum.

Einar Karl Hall­varðs­son hrl., rík­is­lög­maður, stað­festi í sam­tali við Kjarnann að rift­un­ar­mál vegna greiðslna frá Press­unni væri nú komið inn á borð dóm­stóla, sem tengd­ist hags­munum rík­is­sjóðs, en hann varð­ist frek­ari frétta af mál­inu og vís­aði á bús­stjór­ann.

Árum saman hafði fjár­munum sem til­heyrðu rík­is­sjóði, líf­eyr­is­sjóðum og stétta­fé­lögum, það er launa­tengdum gjöldum, ekki verið skilað með lög­bundnum hætti í rekstri Pressunnar, og því var félagið í reynd rekið ólög­lega miss­erum saman, en tók á sama tíma þátt við­skiptum á mark­aði, þar á meðal aug­lýs­inga­mark­aði.

Slíkt er óheim­ilt sam­kvæmt lög­um, og refs­ing við­lögð við því að standa ekki skil á þessum gjöld­um, fyrir ábyrgð­ar­menn rekst­urs­ins.

Eins og greint hefur verið frá á vef Kjarnans þá vill Kristján Thorlacius hrl., bús­stjóri Pressunnar, láta rifta gjörn­ingum fyrir þrot fyr­ir­tæk­is­ins upp á um 400 millj­ónir króna. Málin eru nú komin inn á borð dóm­stóla, en hafa ekki verið til lykta leidd enn. Fá þeir sem eiga hags­muna að gæta vegna rift­un­ar­mál­anna frest til að skila inn grein­ar­gerðum, áður en málin verða form­lega tekin fyrir.

Málin eru höfðuð þar sem það er mat slita­bús­stjóra Pressunnar að jafn­ræðis meðal kröfu­hafa hafi ekki verið gætt við ráð­stöfun á fjár­munum félags­ins, í fyrr­nefndum málum, enda var fjár­hagur félags­ins fyrir löngu kom­inn í upp­nám áður en það fór form­lega í þrot.

Sam­tals var kröfum upp á 315 millj­ónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 millj­ónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Pressunn­ar.

Kröfu­lýs­inga­frestur í þrotabú DV rann út í maí. Meðal krafna voru meðal ann­ars yfir 50 millj­óna for­gangs­kröfur vegna van­gold­inna launa og líf­eyr­is­greiðslna.

Almennar kröfur voru upp á 183,5 millj­ónir króna og var stærsta krafan frá Toll­stjóra vegna opin­berra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síð­ast­liðn­um.

Rétt áður en Pressan varð gjald­þrota, keypti félagið Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem Sig­urður G. Guð­jóns­son hrl. á, stóran hluta af eignum Pressunn­ar.

Meðal ann­ars voru það DV, Pressan, Eyj­an, Bleikt og 433.­is. Síðan þá hafa flestir fjöl­miðl­arnir farið undir vef DV.­is.

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­­ónir króna frá því að félagið hóf starf­­semi í sept­­em­ber 2017 og fram að ára­­mót­­um.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­­urður G. Guð­jóns­­son lög­­­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svar­s­­maður Frjálsrar fjöl­mið­l­unar hjá Fjöl­miðla­­nefnd.

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­­semi í sept­­em­ber 2017. Heild­­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­­ónir króna en skatt­inn­­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­mið­l­unar metnar á 529 millj­­ónir króna. Þar af eru óefn­is­­legar eignir bók­­færðar á 470 millj­­ónir króna.

Skuldir félags­­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­sam­­steypa lands­ins, voru 542 millj­­ónir króna um síð­­­ustu ára­­mót og var stofnað til þeirra á síð­­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­­laus, á að greið­­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­­­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­­ónir króna í árs­­lok 2017. Eigið fé félags­­ins var nei­­kvætt um 13,3 millj­­ónir króna um síð­­­ustu ára­­mót, inn­­greitt hlutafé var 30 millj­­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­­ónir króna í hand­­bæru fé.

Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var lengst af helsti for­svars­maður Pressunnar og stærsti eig­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár