Vill rifta gjörningum fyrir fall Pressunnar

Gjald­þrot fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunnar hefur dregið dilk á eftir sér, enda starf­aði félagið miss­erum saman án þess að standa skil á lög­bundnum gjöldum, svo sem greiðslum til líf­eyr­is­sjóða, rík­is­ins og stétt­ar­fé­laga.

Skipta­stjóri þrota­bús fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunnar, sem var tekið til gjald­þrota­skipta í des­em­ber í fyrra, vill láta rifta ráð­stöf­unum á fjár­munum upp á sam­tals um 400 millj­ónir króna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Málin hafa þegar verið þing­fest í hér­aði en ekki til lykta leidd, en að mati skipta­stjóra, Krist­jáns B. Thorlacius hrl., var jafn­fræðis ekki gætt meðal kröfu­hafa félags­ins í þeim til­vikum þar sem nú hefur verið óskað eftir riftun.

Kristján varð­ist frétta af mál­inu, í sam­tali við Kjarnann, og vildi ekki veita upp­lýs­ingar um þessi rift­un­ar­mál sem Kjarninn hefur heim­ildir fyrir að nú séu komin inn á borð dóm­stóla.

Samtals var kröfum upp á 315 millj­ónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 millj­ónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Pressunnar.

Kröfu­lýs­inga­frestur í þrotabú DV rann út í maí. Meðal krafna voru meðal ann­ars yfir 50 millj­óna for­gangs­kröfur vegna van­gold­inna launa og líf­eyr­is­greiðslna.

Almennar kröfur voru upp á 183,5 millj­ónir króna og var stærsta krafan frá Toll­stjóra vegna opin­berra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síð­ast­liðnum.

Rekstur Pressunnar hafði lengi verið í full­komnu upp­námi áður en félagið var loks tekið til gjald­þrota­skipta, enda skuld­aði félagið meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðum, stétt­ar­fé­lögum og hinu opin­bera hund­ruð millj­óna króna.

Slíkt er vita­skuld óheim­ilt sam­kvæmt lögum, og refs­ing við­lögð við því að standa ekki skila á þessum gjöldum, fyrir ábyrgð­ar­menn rekst­urs­ins.

Rétt áður en Pressan varð gjald­þrota, keypti félagið Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem Sigurður G. Guð­jóns­son hrl. á, stóran hluta af eignum Pressunnar.

Meðal ann­ars voru það DV, Pressan, Eyjan, Bleikt og 433.is. Síðan þá hafa flestir fjöl­miðl­arnir farið undir vef DV.is.

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­ónir króna frá því að félagið hóf starf­semi í sept­em­ber 2017 og fram að ára­mót­um.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­urður G. Guð­jóns­son lög­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svars­maður Frjálsrar fjöl­miðl­unar hjá Fjöl­miðla­nefnd.

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­semi í sept­em­ber 2017. Heild­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­ónir króna en skatt­inn­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­miðl­unar metnar á 529 millj­ónir króna. Þar af eru óefn­is­legar eignir bók­færðar á 470 millj­ónir króna.

Skuldir félags­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins, voru 542 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og var stofnað til þeirra á síð­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­laus, á að greið­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðl­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­ónir króna í árs­lok 2017. Eigið fé félags­ins var nei­kvætt um 13,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót, inn­greitt hlutafé var 30 millj­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­ónir króna í hand­bæru fé.

Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var lengst af helsti for­svars­maður Pressunnar og einn stærsti eig­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár