Segir Björn Inga hafa hótað sér, reynt að greiða skuldir með steikum og reynt „að klastra saman ríkisstjórn“

Árni Harð­ar­son svarar kæru Björn Inga Hrafns­sonar með yfir­lýs­ingu þar sem hann ásakar m.a. Björn Inga um fjár­drátt og hót­anir.

Árni Harðarson og Björn Ingi Hrafnsson
Árni Harð­ar­son og Björn Ingi Hrafns­son Mynd: Samsett

Árni Harð­ar­son, sem Björn Ingi Hrafns­son hefur kært fyrir fjár­svik, segir Björn Inga ítrekað hafa haft í hót­unum við sig per­sónu­lega og aðra eig­endur Dalsins, sem ætl­uðu að kaupa fjöl­miðla­veldi hans í fyrra.

[links]Markmið þeirra hót­ana hafi verið að kom­ast hjá „skoðun opin­berra aðila á bók­haldi og fjár­reiðum Press­unar og tengdra miðla.“ Þá segir Árni að Björn Ingi hafi reynt að greiða fá að greiða fyrir hlutafé í Press­unni með steikum frá veit­inga­hús­inu Argent­ínu, að Björn Ingi hafi fengið per­sónu­lega greiddar 80 milj­ónir króna þegar hann seldi allar eignir DV og Pressunnar og að í smá­skila­boðum sem hann hafi sent Árna á kjör­degi í fyrra hafi Björn Ingi sagt: „Er núna að klastra saman rík­is­stjórn og langar að koma á friði okkar í millum“. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Árni hefur sent frá sér vegna fréttar um kæru Björns Inga á hendur honum, Halldóri Krist­manns­syni og lög­manni þeirra, Bjarka Diego, til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir fjár­svik, skila­svik og skjala­brot.

[adspot]Greint var frá kæru Björns Inga og við­skipta­fé­laga hans Arnars Ægis­sonar í Frétta­blað­inu í morgun. Í henni er m.a. lýst „hvernig hinir kærðu hafi blekkt Björn Inga og Arnar til að und­ir­rita sam­komu­lag um riftun á kaup­samn­ingi um alla hluti í Birt­ing­i, undir því yfir­skini að um mála­mynda­gern­ing væri að ræða, en svo notað umrætt skjal til að yfir­taka ­kaup­samn­ing um Birt­ing og þann hlut, sem Pressan ehf. hafði þeg­ar greitt fyr­ir, án end­ur­gjalds með því að beita blekk­ingum og rang­færslu skjala, þrátt fyrir að gjald­þrot Pressunn­ar væri yfir­vof­andi og óum­flýj­an­legt.“ Kjarninn greindi frá frétt Frétta­blaðs­ins í morgun.

Yfirlýsing Árna er í heild sinni hér að neðan:

„Björn Ingi Hrafns­son hefur ítrekað haft í hót­unum við mig per­sónu­lega og aðra eig­endur Dalsins með það að mark­miði að kom­ast hjá skoðun opin­berra aðila á bók­haldi og fjár­reiðum Press­unar og tengdra miðla. Félög sem Björn Ingi var í for­svari fyrir skilja eftir sig hund­ruði millj­óna í skuldir, m.a. til opin­berra aðila og líf­eyr­is­sjóða. Málefni umræddra félaga eru nú til skoð­unar hjá skipta­stjóra Press­unar, sem meðal ann­ars hefur til skoð­unar hvort kröfu­höfum hafi verið mis­munað og hvort Björn Ingi hafi dregið sér fé úr þessum félögum eins og fyrr­ver­andi stjórn Press­unar hefur rök­stuttan grun um. .

Björn Ingi hefur hótað mér nokkrum sinnum þegar a) Dalurinn vildi ekki láta hann per­sónu­lega fá meiri pen­ing b) þegar hann sá að Dalurinn vildi ekki setja meiri pen­ing í að bjarga illa reknum einka­banka hans í formi Pressunnar og c) þegar Dalurinn vildi ekki láta hann fá hlutafé sitt í Press­unni eftir að hann seldi allar eigur þess (fyrir það átti m.a. að greiða með steikum á Argent­ínu fyrir 6 millj­ónir króna). Ekki í fyrsta sinn sem Björn Ingi bíðst til að greiða skuldir sínar með inn­eignum en hann greiddi einmitt fyrir ein­býl­is­hús sitt í Graf­ar­holti með aug­lýs­ingum í miðlum Press­unar eins og áður hefur komið fram í fjöl­miðlum.

Björn Ingi biðst formlega afsökunar

Og nú er Björn Ingi búinn að kæra. 29. Október 2017 sendi Björn Ingi mér svo­fellt texta­skila­boð í fram­haldi af því að ég lét í ljós van­þóknun mína á hótun hans um kæru vegna nákvæm­lega þeirra mála er hér fjallar um: „Ég skal biðja þig afsök­unar á því hér og nú og form­lega. Það var ekki verð­skuldað og mér þykir fyrir því“. (Í næstu skila­boðum stóð reyndar „Er núna að klastra saman rík­is­stjórn og langar að koma á friði okkar í millum“)

Björn Ingi heldur því vænt­an­lega fram núna að ein­hver hafi þvingað hendur hans á lykla­borð­inu þarna eða hvað?

Hið rétta í mál­inu er að Björn Ingi borg­aði ekki kaup­verðið fyrir Birting frekar en aðrar skuldir og eig­endur Birtings vildu rifta, sem er oft það sem ger­ist þegar kaup­andi borgar ekki og það vita þeir sem hafa átt í við­skiptum við Björn Inga að hann borgar ekki sér­stak­lega vel eða mikið til baka. Björn Ingi sam­þykkti þá riftun skrif­lega, þó hann sjái kannski eftir því í dag því þá gat hann ekki selt Birting um leið og hann seldi allar aðrar eignir félags sem hann átti minni­hluta í.

Björn Ingi fékk per­sónu­lega greiddar 80 millj­ónir þegar hann seldi allar eignir DV og Pressunnar eins og með­fylgj­andi kaup­samn­ingar bera skýr­lega með sér. Í mínum huga er þetta borð­leggj­andi fjár­dráttur. Á sama tíma er hann ósáttur við að bera per­sónu­lega ábyrgð á 50 milljón króna láni til hans einka­hluta­fé­lags. Af hverju er hann það. Ætlaði hann aldrei að greiða þetta lán til baka? Dæmi nú hver fyrir sig en ég hef ekki áhyggjur af þeirri fjöl­miðlafléttu sem Björn Ingi er að reyna setja upp í þeim til­gangi að hefna sín á mönnum sem hann telur sig eiga sök­ótt við. Ég legg að sjálf­sögðu öll gögn sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur áhuga á að sjá fram til sak­sókn­ara. Þau gögn eru Birni Inga ekki til fram­dráttar.“

Kaup­samn­ingur um útgáfu­rétt­indi DV.

Kaup­samn­ingur um útgáfu­rétt­indi Pressunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár