Björn Ingi kærir fyrir fjársvik

Fyrr­ver­andi for­svars­menn Pressunnar hafa kært for­svars­menn Dalsins fyrir fjár­svik.

Björn Ingi Hrafns­son hefur ásamt við­skipta­fé­laga sínum, Arnari Ægissyni, kært for­svars­menn Dalsins ehf., þá Árna Harð­ar­son og Halldór Krist­manns­son, og lög­mann þeirra, Bjarka Diego, til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir fjár­svik, skila­svik og skjala­brot.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Í kærunni er því lýst „hvernig hinir kærðu hafi blekkt Björn Inga og Arnar til að und­ir­rita sam­komu­lag um riftun á kaup­samn­ingi um alla hluti í Birtingi, undir því yfir­skini að um mála­mynda­gern­ing væri að ræða, en svo notað umrætt skjal til að yfir­taka kaup­samn­ing um Birting og þann hlut, sem Pressan ehf. hafði þegar greitt fyrir, án end­ur­gjalds með því að beita blekk­ingum og rang­færslu skjala, þrátt fyrir að gjald­þrot Pressunnar væri yfir­vof­andi og óum­flýj­an­legt“ eins og það er orðað í Frétta­blað­inu.

Í umfjöllun sinni vitnar Frétta­blaðið til kærunnar, og er því lýst hvernig sú hug­mynd hafi vaknað hjá Árna Harð­ar­syni að gera mála­mynda­sam­komu­lag um riftun á kaup­samn­ingi um Birting sem geymt yrði á skrif­stofu Bjarka Diego lög­manns.

Bjarki var sjálfur dæmdur í fang­elsi tveggja og hálfs árs fang­elsi í máli sem beind­ist að stjórn­endum Kaup­þings vegna mark­aðs­mis­notk­unar.

Í kærunni, sem Frétta­blaðið fjallar um, er það sagt hafa verið gert í þeim eina til­gangi að sýna „kröfu­höfum Pressunnar fram á að Pressan ætti ekki þessa eign og semja yrði um skuldir,“ segir í Frétta­blað­inu.

Í svari Árna Harð­ar­sonar við tölvu­pósti Björns Inga, sem vitnað er til í Frétta­blað­inu, þar sem rift­un­ar­skjalið er til umræðu, segir: „Eins og við ræddum áðan þá geymir Bjarki skjalið en við gætum þurft að sýna það ákveðnum aðilum og gerum það þá á skrif­stofu BBA en við skulum ekki senda þetta á milli í meilum.“

Umræddur póstur var sendur 8. maí 2017. „Tíu dögum síðar var starfs­mönnum Pressunnar til­kynnt að kaupin hefðu gengið til baka og þann 31. maí var til­kynnt á starfs­manna­fundi Birtings að Dalurinn væri orð­inn eig­andi Birtings að öllu leyti,“ segir í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár