Skattrannsóknarstjóri hættir rannsókn á bókhaldi og skattskilum Björns Inga

Björn Ingi Hrafns­son hefur fengið til­kynn­ingu um lok máls­með­ferðar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins.

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafns­son Mynd: RÚV/Skjáskot

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur hætt rann­sókn á bók­haldi og skatt­skilum Björns Inga Hrafns­sonar, rit­stjóra Viljans og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann var til rann­sóknar grun­aður um skattaund­an­skot.

Frá þessu greinir Björn Ingi í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag en hann fékk bréf þess efnis í gær.

Bréfið er dag­sett 30. jan­úar 2019 en í því kemur fram að skatt­rann­sókn­ar­stjóri rík­is­ins hafi á árinu 2018 hafið rann­sókn á bók­haldi og skatt­skilum Björns Inga vegna tekju­ár­anna 2014 til og með 2017. „Sú rann­sókn þykir, að svo komnu máli, ekki gefa til­efni til frek­ari aðgerða af hálfu skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins,“ segir í bréf­inu. Enn fremur kemur fram að með­ferð máls­ins sé þar með lokið hjá emb­ætt­inu.

Björn Ingi segir í stöðu­upp­færsl­unni að fyrir fjög­urra barna fjöl­skyldu­föður sé ekki ein­falt mál að sæta kæru og hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings frammi fyrir alþjóð. Hvað þá að sæta kyrr­setn­ingu allra sinna eigna og geta sig hvergi hrært.

Hann seg­ist ætla að skoða næstu skref með lög­manni sínum. Und­an­farin miss­eri hafi ekki verið auð­veld fyrir sig og tjónið sé mikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár