Björn Ingi stofnar nýjan „borgaralega sinnaðan“ fjölmiðil

Fyrr­ver­andi stjórn­andi og aðal­eig­andi Pressu­sam­stæð­unnar, sem fór í þrot í fyrra, hefur stofnað nýjan fjöl­miðil.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafns­son. Mynd: RÚV/Skjáskot

Björn Ingi Hrafns­son hefur stofnað nýjan vef­miðil, Viljinn.is. Hann greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Þar segir að form­leg opnun verði á næstu dögum en mið­ill­inn hefur enn sem komið er ekki verið skráður hjá fjöl­miðla­nefnd.

Á heima­síðu mið­ils­ins kemur fram að Björn Ingi sé rit­stjóri hans og að útgef­andi sé Hrafn Björns­son, faðir hans. Rétthafi léns­ins er fyr­ir­tækið Glerfilmur ehf. í eigu Hrafns. Þar segir enn fremur að uppi séu „kjörað­stæður fyrir nútíma­legan og borg­ara­lega sinn­aðan vef­miðil sem hefur góða blaða­mennsku að höf­uð­mark­miði og veitir almenn­ingi þá mik­il­vægu þjón­ustu að sía það mark­verð­asta úr upp­lýs­inga­flóð­inu og vera allt í senn virk frétta­veita og um leið vett­vangur fyrir þjóð­fé­lags­um­ræð­una og aðgangur að hag­nýtum og nauð­syn­legum upp­lýs­ingum.

[links]Viljinn er slíkur mið­ill. Hann hefur skoðun á málum, vill að betur sé hugað að eldri borg­urum og barna­fjöl­skyldum, vill huga að gömlum og góðum gildum og telur að gera þurfi stór­á­tak í hús­næð­is­málum til að skapa sátt milli kyn­slóð­anna. Viljinn er öðrum þræði hug­veita fyrir áhuga­verðar til­lögur um það sem betur má fara og mun m.a. gang­ast fyrir ráð­stefnum, skoð­ana­könn­unum og fleiru.“

Viljinn verður fjár­magn­aður með sölu aug­lýs­inga og beinum stuðn­ingi les­enda.

Stýrði Pressunni

Björn Ingi, sem er fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var lengst af helsti for­svars­maður Pressu­sam­stæð­unnar og einn stærsti eig­andi. Hann missti yfir­ráð yfir henni í fyrra og Pressan var tekin til gjald­þrota­skipta í des­em­ber 2017.

Kjarninn greindi frá því í októ­ber að skipta­stjóri þrota­bús Pressunn­ar vilji láta rifta ráð­stöf­unum á fjár­munum upp á sam­tals um 400 millj­ónir króna.

Málin hafa þegar verið þing­fest í hér­aði en ekki til lykta leidd, en að mati skipta­stjóra, Krist­jáns B. Thorlacius hrl., var jafn­fræðis ekki gætt meðal kröfu­hafa félags­ins í þeim til­vikum þar sem nú hefur verið óskað eftir rift­un.

Krist­ján varð­ist frétta af mál­inu, í sam­tali við Kjarn­ann, og vildi ekki veita upp­lýs­ingar um þessi rift­un­ar­mál sem Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir að nú séu komin inn á borð dóm­stóla.

amtals var kröfum upp á 315 millj­ónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 millj­ónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Pressunn­ar.

[adspot]Kröfu­lýs­inga­frestur í þrotabú DV rann út í maí. Meðal krafna voru meðal ann­ars yfir 50 millj­óna for­gangs­kröfur vegna van­gold­inna launa og líf­eyr­is­greiðslna.

Almennar kröfur voru upp á 183,5 millj­ónir króna og var stærsta krafan frá Toll­stjóra vegna opin­berra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síð­ast­liðn­um.

Rekstur Pressunnar hafði lengi verið í full­komnu upp­námi áður en félagið var loks tekið til gjald­þrota­skipta, enda skuld­aði félagið meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóð­um, stétt­ar­fé­lögum og hinu opin­bera hund­ruð millj­óna króna.

Slíkt er vita­skuld óheim­ilt sam­kvæmt lög­um, og refs­ing við­lögð við því að standa ekki skila á þessum gjöld­um, fyrir ábyrgð­ar­menn rekst­urs­ins.

Rétt áður en Pressan varð gjald­þrota, keypti félagið Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem Sig­urður G. Guð­jóns­son hrl. á, stóran hluta af eignum Pressunn­ar.

Meðal ann­ars voru það DV, Pressan, Eyj­an, Bleikt og 433.is. Síðan þá hafa flestir fjöl­miðl­arnir farið undir vef DV.is.

[adspot]Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­­ónir króna frá því að félagið hóf starf­­semi í sept­­em­ber 2017 og fram að ára­­mót­­um.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­­urður G. Guð­jóns­­son lög­­­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svar­s­­maður Frjálsrar fjöl­mið­l­unar hjá Fjöl­miðla­­nefnd.

Ný kennitala og tap

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­­semi í sept­­em­ber 2017. Heild­­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­­ónir króna en skatt­inn­­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­mið­l­unar metnar á 529 millj­­ónir króna. Þar af eru óefn­is­­legar eignir bók­­færðar á 470 millj­­ónir króna.

Skuldir félags­­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­sam­­steypa lands­ins, voru 542 millj­­ónir króna um síð­­­ustu ára­­mót og var stofnað til þeirra á síð­­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­­laus, á að greið­­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­­­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­­ónir króna í árs­­lok 2017. Eigið fé félags­­ins var nei­­kvætt um 13,3 millj­­ónir króna um síð­­­ustu ára­­mót, inn­­greitt hlutafé var 30 millj­­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­­ónir króna í hand­­bæru fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár