Sex ríkisforstjórar með hærri laun en forsætisráðherra

Laun banka­stjóra Lands­bank­ans hafa hækkað mest allra rík­is­for­stjóra, eða um 82 pró­sent, frá því að banka­ráð bank­ans tók yfir ákvörðun um launa­kjör hans. Átta rík­is­for­stjórar eru með hærri laun en flestir ráð­herrar.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Stjórnarráðið/Sigurjón

Alls eru átta for­stjórar eða fram­kvæmda­stjórar rík­is­fyr­ir­tækja með hærri mán­að­ar­laun en ráð­herrar lands­ins, að for­sæt­is­ráð­herra und­an­skildum. Sex þeirra eru með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­steins Víglunds­sonar, þing­manns Við­reisnar, um launa­breyt­ingar for­stjóra og fram­kvæmda­stjóri rík­is­fyr­ir­tækja.

[links]Mán­að­ar­laun allra ráð­herra nema Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, að fastri mán­að­ar­legri kostn­að­ar­greiðslu með­taldri, eru 1.866 þús­und krónur. Katrín hefur tæp­lega 200 þús­und krónum meira í laun á mán­uði, eða 2.061 þús­und krónur.

Lögum um kjara­ráð var breytt í ágúst 2009. Þá ákvað rík­is­stjórn­ Jó­hönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, í kjöl­far hruns­ins og þeirra aðhalds­að­gerða sem ­rík­is­sjóður þurfti að grípa til, að kjara­ráð myndi einnig „ákveða ­laun og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra hluta­fé­laga og ann­ars konar félaga, einka­rétt­ar­eðl­is, sem eru að meiri hluta í eigu rík­is­ins og félaga sem eru að ­meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­grein falla.“

Sam­kvæmt lög­unum átti kjara­ráð að gæta þess að „ákveða laun og ­starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra hluta­fé­laga og ann­ars konar félaga, einka­rétt­ar­eðl­is, sem eru að meiri hluta í eigu rík­is­ins og félaga sem eru að ­meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­grein falla.“

[adspot]Ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­ar­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Í kjöl­farið hækk­uðu laun margra rík­is­for­stjóra veru­lega.

Birna með hæstu launin

Í svari Bjarna til Þor­steins kemur fram að hæst laun­að­asti for­stjóri rík­is­fyr­ir­tækis í apríl síð­ast­liðnum hafi verið Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka. Hún er með 3.865 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en laun hennar hafa lækkað um tæpa milljón frá því í júní 2017, þegar ákvarð­anir um laun rík­is­for­stjóra voru færðar frá kjara­ráði og yfir til stjórna fyr­ir­tækja sem ríkið á. Laun hennar voru lækkuð síðla árs í fyrra. Hinn rík­is­banka­stjór­inn, Lilja Björk Ein­ars­dóttir sem stýrir Lands­bank­anum, kemur þar á eftir með 3.800 þús­und krónur á mán­uði. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, var með 3.405 þús­und krónur í laun á mán­uði og Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets, með 2.880 þús­und krónur.

For­stjóri Isavia fékk greitt 2.508 þús­und krónur í laun í apríl en ekki er til­greint hvort að um sé að ræða greiðslur til Björns Óla Hauks­sonar, sem lét að störfum 17. apríl síð­ast­lið­inn, eða þeirra sem önn­uð­ust dag­legan rekstur þar til að Svein­björn Ind­riða­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs fyr­ir­tæk­is­ins, var ráð­inn í starf for­stjóra í sumar.

[adspot]For­stjóri Íslands­pósts var með 2.121 þús­und krónur í mán­að­ar­laun í apríl en Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, sem hafði gegnt því starfi árum saman, til­kynnti að hann myndi hætta í mars 2019. Nýr for­stjóri, Birgir Jónsson, var ráð­inn í lok maí.

Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri RÚV, þáði 1.979 þús­und krónur í mán­að­ar­laun í apríl síð­ast­liðnum og Tryggvi Þór Har­alds­son, for­stjóri Rarik, var með 1.935 þús­und krónur á mán­uði.

Laun hækkuðu um 82 prósent

Tilefni fyr­ir­spurnar Þor­steins var að fá fram svör frá ráð­herra um launa­breyt­ingar rík­is­for­stjóra frá því að ákvörðun um laun þeirra var færð undan kjara­ráði og til stjórna rík­is­fyr­ir­tækja um mitt ár 2017. Í svar­inu kemur í ljós að laun banka­stjóra Lands­bank­ans hækk­uðu mest frá þeim tíma og fram í apríl síð­ast­lið­inn, eða um 1.711 þús­und krónur. Það er launa­hækkun upp á 82 pró­sent á tæpum tveimur árum.

For­stjóri Lands­virkj­unar hækk­aði um 63 pró­sent í launum á sama tíma­bili, eða um 1.316 þús­und krónur á mán­uði.

For­stjóri Lands­nets fékk einnig afar ríf­lega hækkun, alls upp á 1.153 þús­und krónur, eða 67 pró­sent.

Laun þriggja fram­kvæmda­stjóra lækk­uðu á tíma­bil­inu. Mest lækk­uðu laun banka­stjóra Íslands­banka, eða um 946 þús­und krónur á mán­uði. Laun fram­kvæmda­stjóra Nýs Lands­spít­ala ohf. og fram­kvæmda­stjóra Þró­un­ar­fé­lags Kefla­víkur lækk­uðu einnig á tíma­bil­inu, en um minni upp­hæðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár