Það helsta hingað til: Ríkisforstjórarnir og þingmennirnir á háu laununum

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Eitt það fyr­ir­ferða­mesta hefur snú­ist um miklar launa­hækk­anir sem æðstu emb­ætt­is­menn og rík­is­for­stjórar hafa fengið á und­an­förnum árum.

Hvað?

Rík­is­starfs­menn hafa verið leið­andi í launa­þróun á und­an­förnum árum. Sumir slíkir hópar hafa hækkað í launum um tugi pró­senta í einu. Frægasta dæmið um slíkt var þegar kjara­ráð ákvað að opin­bera, á kjör­dag 2016, að laun for­­­seta Íslands, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna og laun ráð­herra yrðu hækkuð umtals­vert. Sam­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­arra ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­­lega 1,5 millj­­­ónir en laun for­­­seta voru tæpar 2,5 millj­­­ón­­­ir.

[links]Laun þing­­­­manna hækk­­­­uðu hlut­­­­falls­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­sent.

Skömmu áður, eða um sum­arið 2016, höfðu laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum, og laun aðstoð­ar­manna ráð­herra sem miða við skrif­stofu­stjóra­launin, verið hækkuð um allt að 35 pró­sent. Þau urðu þá um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Til við­bótar höfðu laun ýmissa for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja hækkað um tugi pró­senta eftir að ákvörðun um þau var færð undan kjara­ráði um mitt ár 2017, og yfir til póli­tískt skip­aðra stjórna fyr­ir­tækj­anna. Þessar hækk­anir gerð­ust þrátt fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefði beint þeim til­mælum til stjórna fyr­ir­tækj­anna að hækka launin ekki óhof­lega.

Af hverju?

Það stóðu yfir við­kvæmar kjara­við­ræður og ljóst að allar kröfur verka­lýðs­hreyf­inga myndu taka mið af þeim gríð­ar­legu hækk­unum sem orðið höfðu á launum æðstu emb­ætt­is­manna og for­stjóra lands­ins, sem voru þó þegar með ein hæstu laun í íslensku sam­fé­lagi fyrir þær hækk­anir.

Fyrir lá að íslenskt efna­hags­líf myndi ekki ráða við slíkar hækk­anir þvert yfir allan skal­ann og því var skýrt krafa sett fram um að undið yrði ofan af hinum miklu hækk­unum, ann­ars yrði erfitt að ná saman við gerð kjara­samn­inga. Litið var á hækk­an­irnar sem hreina sjálftöku.

Hver varð niðurstaðan?

Hún var alls­konar. Þann 13. mars síð­ast­lið­inn var birt bréf Lárusar Blöndal, for­manns Banka­­sýslu rík­­is­ins, og Jóns Gunn­­ars Gunn­­ar­s­­son­­ar, for­­stjóra stofn­un­­ar­inn­­ar, til Bjarna Bene­dikts­­son­­ar. Í því kom fram að laun banka­­stjóra rík­­is­­bank­anna, Íslands­­­banka og Lands­­bank­ans, yrðu lækk­­uð. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka mun fá 3,65 millj­ónir króna á mán­uði eftir þá lækkun, en laun hennar árið 2018 voru 5,3 millj­ónir króna.

[adspot]Heild­­ar­­laun banka­­stjóra Lands­bank­ans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, urðu 3,5 millj­ónir króna við þá breyt­ingu, en hún var með 3,8 millj­ónir króna fyrir hana.

Kast­ljósið hafði verið mjög á tveimur rík­is­for­stjórum sem höfðu fengið ríf­legar launa­hækk­anir. Annar þeirra var Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia. Laun hans hækk­uðu um 43,3 pró­sent frá miðju ári 2017, úr 1,75 millj­ónum króna í 2,5 millj­ónir króna á mán­uði. Björn Óli missti starf sitt sem for­stjóri Isavia fyrr í þessum mán­uði.

Stjórn­ar­for­maður Isavia á þessum tíma var Ingi­mundur Sig­ur­páls­son. Hann var líka for­stjóri Íslands­pósts, rík­is­fyr­ir­tækis sem glímdi við gríð­ar­lega rekstr­ar­erf­ið­leika og þurfti meðal ann­ars að fá mörg hund­ruð milljón króna lán hið minnsta frá rík­is­sjóði í lok síð­asta árs til að lifa af. Lán sem fyr­ir­tækið getur ekki greitt til baka. Þrátt fyrir þessa stöðu var ákveðið að hækka laun Ingi­mundar tví­vegis á síð­asta ári. Þau voru í mars 2.052 þús­und krónur á mán­uði og höfðu hækkað um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar þau voru 1.436 þús­und krónur á mán­uði. Ingi­mundur hætti sem for­stjóri Íslands­pósts um miðjan mars.

Þá ákvað Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fyrr í apríl að gera tvær breyt­ingar á frum­varpi til breyt­inga á lögum vegna brott­falls laga um kjara­ráð, sem er nú til með­ferðar Alþing­is.

[adspot]Önnur breyt­ingin er sú að launa­hækkun kjör­inna full­trúa – þing­manna og ráð­herra – sem átti að koma til fram­kvæmda 1. júlí næst­kom­andi mun ekki verða. Þess í stað verði ráð­herr­anum veitt heim­ild í eitt skipti til að hækka laun laun þjóð­kjör­inna full­trúa þann 1. jan­úar 2020 til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum þann 1. júlí 2020.

Auk þess er lagt til að ákvæði um heim­ild ráð­herra til að hækka laun 1. jan­úar til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum 1. júlí verði fellt út en ákvæðið er í nokkrum greinum frum­varps­ins.

En ekki hefur verið þverpóli­tískur vilji hjá þing­mönnum og ráð­herrum um að draga ein­fald­lega til baka þær miklu hækk­anir sem þeir fengu á kjör­dag 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár