Minnsta aukning umferðar á Hringveginum síðan 2012

Í júlí jókst umferð um Hring­veg­inn um 1,4 pró­sent sem er minnsta aukn­ing í umferð í mán­uð­inum síðan 2012. Með fækkun ferða­manna á þessu ári er búist við minnstu aukn­ingu í umferð á Hring­veg­inum í sjö ár.

Útlit er fyrir minni aukningu í umferð á þessu ári en síðustu sjö ár. Umferðin á Hringveginum jókst um 1,4 prósent í júlí en það er jafnframt minnsta aukning í umferðinni í þessum mánuði síðan árið 2012. Af fimm skilgreindum svæðum Vegagerðarinnar var einungis aukning um tvö þeirra eða á Vesturlandi um 6,1 prósent og í grennd við höfuðborgarsvæðið um 3,3 prósent. Um önnur svæði varð samdráttur og mestur varð hann á Austurlandi þar sem varð 6,9 prósent samdráttur,

Ekki verið minni aukning síðan 2012

Nú hefur umferð um landið aukist um 4,2 prósent frá áramótum sem samkvæmt Vegagerðinni er nákvæmlega sama staða og var uppi á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist um Vesturland og minnst um Austurland en þar mælist 3,1 prósent samdráttur og er það eina svæðið þar sem umferð hefur dregist saman frá áramótum.

Aftur á móti stefnir í að umferðin aukist um 2,7 prósent það sem af er ári, hegði hún sér líkt og venja er til. Gangi þessi spá hins vegar eftir þarf að leita aftur til ársins 2012 til finna minna aukningu í umferð milli ára á Hringveginum.

Þrír af hverjum fimm ferðamönnum ferðast um landið á bílaleigubíl

Meirihluti ferðamenn sem heimsækja Íslands heimsækja fleiri staði en aðeins höfuðborgarsvæðið en samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Ferða­mála­stofu framkvæmdi um ferða­hegðun og við­horf erlenda ferða­manna árið 2018 kom fram að þrír af hverjum fjórum ferðamönnum sem heimsækja landið skoða Suðurlandið. Þá heimsækja nærri þrír af hverjum fimm Reykjanesið, tæp­lega helm­ingur ferðamanna fer Vestur, ríf­lega heimsækir fjórð­ungur Norðurlandið, tæp­lega fjórð­ungur Aust­ur­landið og einn af hverj­u­m ­tíu Vest­firð­i.[adspot]

Þá sögðust um þrír af hverjum fimm svar­endum í könnunni hafa ferð­ast um landið á bíla­leigu­bíl, tæp­lega þriðj­ungur í skipu­lagðri rútu­ferð og um 15 pró­sent í áætl­un­ar­bif­reið.

Fáum dylst þó að ferða­mönnum hér á landi hefur fækkað á þessu ári en frá ára­mótum hafa 900 þús­und erlendir far­þegar farið frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 12,4 pró­sent fækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra og gæti það þar leið­andi að ein­hverju leyti skýrt minni aukn­ingu í umferð á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár