Héraðsdómur samþykkir flýtimeðferð í dómsmáli VR gegn Fjármálaeftirlitinu

VR gerir kröfu um að ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins verði dæmd ógild.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sam­þykkti í dag flýti­með­ferð í dóms­máli VR gegn Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Í mál­inu stefnir VR Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna til ógild­ingar á stjórn­valds­á­kvörðun. VR gerir kröfu um að dæmd verði ógild ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá 3. júlí síð­ast­liðnum þess efnis að stjórn­ar­menn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna sem til­kynntir voru til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þann 23. mars 2019, séu enn stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóðs­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu VR sem félagið sendi frá þér í dag.

[links]Fram kom í fréttum föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn að full­­trú­ar VR hefðu afhent Hér­aðs­dómi Reykja­vík­­ur stefnu á hend­ur Fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu. Stjórn VR sam­þykkti að stefna stofn­un­inni fyr­ir að við­ur­­­kenna ekki lög­­­mæti ákvörð­unar full­­trúa­ráðs VR um að aft­­ur­­kalla umboð stjórn­­­ar­­manna í Líf­eyr­is­­sjóði verzl­un­­ar­­manna.

„Mark­miðið er fyrst og fremst að fá þenn­an úr­sk­­urð FME dæmd­an ógild­an,“ sagði Ragn­ar Þór í sam­tali við mbl.is og vís­aði til þess að FME lít­ur svo á að ákvörðun um aft­­ur­köll­un­ina væri ekki gild þar sem hún hefði ekki, að mati stofn­un­­ar­inn­­ar, verið tek­in af stjórn VR eins og sam­þykkt­ir Líf­eyr­is­­sjóðs verzl­un­­ar­­manna gera ráð fyr­­ir.

[adspot]

Í til­kynn­ingu VR segir að stjórn­valds­á­kvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hafi verið haldin veru­legum ann­marka, bæði að formi og efni til, og sé þannig ógild­an­leg. „Má þar meðal ann­ars nefna að Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bar að veita VR stöðu aðila í stjórn­sýslu­mál­inu en það var ekki gert. Þá sinnti Fjár­mála­eft­ir­litið ekki til­kynn­ing­ar­skyldu sinni þar sem VR var ekki til­kynnt að málið væri til með­ferðar og ekki heldur um nið­ur­stöðu máls­ins. Þá við­hafði Fjár­mála­eft­ir­litið ekki full­nægj­andi rann­sókn við með­ferð máls­ins. Fjár­mála­eft­ir­litið afl­aði jafn­framt ekki nauð­syn­legra gagna og var ákvörðun þess því byggð á röngum upp­lýs­ingum. Full­nægj­andi rann­sókn hefði leitt í ljós að full­trúa­ráð VR hefur fengið fram­selda heim­ild til þess að skipa stjórn­ar­menn í Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna frá stjórn VR. Þá var VR ekki gef­inn kostur á að kynna sér gögn máls eða koma að frek­ari upp­lýs­ingum um máls­at­vik og var þannig brotið gegn and­mæla­rétti VR. Ljóst er að stjórn­valds­á­kvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var haldin veru­legum ann­mörkum sem leiða til þess að ógilda beri ákvörð­un­ina,“ segir í til­kynn­ingu VR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár