Verðhækkun á rafmagni nánast alltaf hagkvæmari en rafmagnsleysi eða skömmtun

Sigurður Jóhann­es­son, doktor í alþjóða­við­skip­skiptum, segir að lítil sem engin hætta sé á raf­magns­skorti á almennum mark­aði hér á landi, að því gefnu að menn sé reiðu­búnir að greiða hærra verð fyrir það.

„Fyrir rétt verð geta stórnot­endur leyst úr hér um bil hvaða skorti sem er á almennum raf­magns­mark­aði á Íslandi með því að láta af hendi brot af raf­magn­inu sem þeir nota. Kaup stórnot­enda á raf­magni, rúmir 4/5 mark­aðs­ins, ógna því ekki almennum mark­aði, heldur mynda þau eins konar örygg­is­net fyrir hann. Lítil sem engin hætta er á raf­magns­skorti á almennum mark­aði hér á landi, að því gefnu að menn séu reiðubúnir til þess að borga meira fyrir raf­magnið – og það vilja flestir miklu fremur en að fá ekk­ert raf­magn. Vandinn virð­ist helst liggja í því að íslenskir stjórnmálamenn vilja ekki láta raf­magns­verð á almennum mark­aði taka fullt mið af fram­boði og eft­ir­spurn.“

Þetta segir Sigurður Jóhann­es­son, doktor í alþjóða­við­skiptum í ítar­legri grein sem kemur til áskrif­enda Vís­bend­ingar í dag, en í grein­inni fjallar hann um mögu­legan skort á raf­magni hér á landi og hvernig hægt sé að afstýra skorti með því hækka raf­magns­verð á almennum mark­aði.

Í grein­inni fjallar hann um nýja spá Lands­nets sem unnin var af verk­fræði­stof­unni Eflu en þar kemur fram að heild­ar­þörf fyrir raf­magn hér á landi verði komin fram úr fram­leiðsl­unni eftir fjögur ár, ef svo fer sem horfir.

Sigurður bendir hins vegar á að þegar rætt er um að raf­magn kunni að vanta á Íslandi eftir nokkur ár þá virð­ist ekki vera gert ráð fyrir því að verð á raf­magni bregð­ist við breyt­ingum á fram­boði og eft­ir­spurn.

„En þegar rætt er um að raf­magn kunni að vanta á Íslandi eftir nokkur ár virð­ist ekki vera gert ráð fyrir að verð á þess­ari vöru bregð­ist við breyt­ingum í fram­boði og eft­ir­spurn. Með öðrum orðum er ekki reiknað með að raf­magns­verð á almennum mark­aði breyt­ist að neinu ráði, hvað annað sem ger­ist. Sagt er að íslenskir stjórnmálamenn legg­ist gegn öllum verð­hækk­unum á almennum mark­aði með raf­magn. Stjórnmálamenn hafa nefni­lega enn mikil ítök á íslenskum raf­magns­mark­aði, þó að hann eigi að heita frjáls, því að ríki og sveit­arfélög eiga flest fyr­ir­tæki sem selja raf­magn hér á landi. Mein­ingin með því að halda raf­magns­verði niðri er góð: Enginn vill borga meira fyrir raf­magnið en hann gerir nú. Það sama á reyndar við um flestar aðrar vörur. En senni­lega veldur fast verð miklu meiri skaða en verð­sveiflur,“ segir Sigurður.[adspot]

Aftur á móti segir Sigurður að nýleg athugun sýni að almenn­ingur þoli töluverðar verð­hækkun án þess að það dragi úr notk­un­inni að nokkru ráði. Breskar rann­sóknir sýni að mun dýr­ara sé fyrir almenn­ing ef veru­legur skortur verði á raf­magni fremur en verð­hækkun.

„En þegar raf­magnið fer alveg er tekið fyrir alla notkun – jafnt þá sem er nánast óþörf og notkun sem neyt­endur mundu borga marg­falt mark­aðs­verð fyrir. Þess vegna er verð­hækkun nánast alltaf miklu hag­kvæm­ari en raf­magns­leysi eða skömmtun. Hærra verð stuðlar líka að lausn vand­ans. Fólk fer að spara raf­magnið. Það kaupir sparperur og slekkur ljósin þegar það fer út úr her­bergi. Eftir að verð hækkar er líka meira upp úr því að hafa að búa til raf­magn. Framboð eykst.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér, en vitnað er til lít­ils hluta grein­ar­innar hér að ofan, sem kemur til áskrif­enda á föstu­dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár