Heildarlaun félagsmanna VR að meðaltali 652 þúsund krónur

Heild­ar­laun félags­manna VR voru 652 þús­und krónur að með­al­tali í febr­úar síð­ast­liðnum en mið­gildi heild­ar­launa var 600 þús­und.

Heild­ar­laun félags­manna VR voru 652 þús­und krónur að með­al­tali í febr­úar síð­ast­liðnum en mið­gildi heild­ar­launa var 600 þús­und. Grunn­laun voru að með­al­tali 644 þús­und en mið­gildi grunn­launa var 591 þús­und. Þetta er nið­ur­staða launa­rann­sóknar VR á launum í febr­úar 2019.

Í frétt VR um málið kemur fram að launa­rann­sókn VR byggi á nið­ur­stöðum í reikni­vél­inni Mín laun á Mínum síðum á vef félags­ins. Félags­menn skrá starfs­heiti sitt og vinnu­tíma í reikni­vél­ina og fá birtan sam­an­burð sinna launa við félags­menn í sams­konar starfi. Miðað er við að lág­marki 60 pró­sent starfs­hlut­fall sem reiknað er upp í fullt starf og er allur sam­an­burður því á grund­velli a.m.k. 100 pró­sent starfs­hlut­falls. Launa­rann­sókn fyrir febr­úar 2019 byggir á tæp­lega 11 þús­und skrán­ingum en félags­menn VR í þeim mán­uði voru um 36 þús­und.

Launa­reikni­vélin á vef VR hefur verið í þróun í tæp þrjú ár en þetta er í fyrsta skipti sem nið­ur­stöður hennar eru birtar, sam­kvæmt VR. Mark­miðið með hönnun á launa­reikni­vél­inni var að hún tæki við af launa­könnun VR en félagið hefur staðið fyrir árlegri könnun á launa­kjörum félags­manna sinna í tvo ára­tugi. Í ljósi þess að nú eru birtar nið­ur­stöður af Mínum síðum var ekki gerð launa­könnun árið 2019.

„Launa­rann­sókn VR sýnir grunn- og heild­ar­laun eftir starfs­stéttum, óháð atvinnu­greinum, sem og starfs­stéttum innan atvinnu­greina. Laun eru birt ef sex eða fleiri félags­menn hafa skráð við­kom­andi starfs­heiti í launa­reikni­vél­ina á Mínum síðum og er það í sam­ræmi við það sem gert hefur verið í launa­könnun VR og launa­könn­unum ann­arra stétt­ar­fé­laga und­an­farin ár. Við bendum á mik­il­vægi þess að skoða fjórð­ungs­mörk og mið­gildi launa í töfl­unum,“ segir í frétt VR.

Útreikn­ingur launa byggir á félags­gjöldum, það er ein­göngu þeim launum sem greidd eru félags­gjöld af. Samkvæmt VR eru inni í birtum launa­tölum því ekki öku­tækja­styrkir, dag­pen­ingar eða aðrar slíkar greiðslur. Grunn­laun eru reiknuð á grund­velli heild­ar­launa og yfir­vinnu­tíma sem félags­menn skrá í reikni­vél­ina, ef svo ber undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár