17 milljarða ávinningur af starfi VIRK

Með­al­sparn­aður á hvern ein­stak­ling sem þiggir þjón­ustu hjá starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðnum VIRK var 12,7 millj­ónir króna í fyrra. Alls hafa 15.000 manns leitað til sjóðs­ins frá stofnun hans árið 2008.

Ávinn­ingur af starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs­ins VIRK var 17,2 millj­arðar króna árið 2018 en rekstr­ar­kostn­aður sjóðs­ins nam 3,1 millj­örðum það ár. Þetta kemur fram í skýrslu sem Vig­fús Ásgeirs­son, trygg­inga­stærð­fræð­ingur hjá Talna­könnun hf., vann fyrir VIRK. Þá var einnig reikn­aður með­al­sparn­aður á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling frá VIRK en hann nam 12,7 millj­ónum króna í fyrra.

15.000 manns leitað til VIRK frá upphafi

VIRK hefur það hlut­verk að efla starfs­getu ein­stak­linga í kjöl­far veik­inda eða slysa og hjálpa ein­stak­lingum að fóta sig á vinnu­mark­aði. Starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð­ur­inn starfar eftir lögum um atvinnu­tengda starfsend­ur­hæf­ingu og starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóða frá 2012, en var stofn­aður árið 2008 sem sjálfs­eign­ar­stofnun af sam­tökum stétt­ar­fé­laga og atvinnu­rek­enda. Líf­eyr­is­sjóðir bætt­ust svo í hóp­inn árið 2012 og rík­is­valdið hefur haft aðkomu að sjóðnum síðan 2015.

VIRK hefur fengið Talna­könnun til að greina árangur og ávinn­ing af starf­semi sinni síð­ustu sex ár en matið er byggt á óper­sónu­grein­an­legum gögnum úr upp­lýs­inga­kerfi VIRK ásamt öðrum upp­lýs­ingum og er miðað við til­teknar for­sendur um afdrif ein­stak­linga án þjón­ustu VIRK. Samkvæmt skýrsl­unni er ávinn­ingur af starfi VIRK met­inn á 17,2 millj­arða króna í fyrra en árið 2017 var ávinn­ing­ur­inn met­inn á 14,1 millj­arð króna.

74 prósent einstaklinga í vinnu, atvinnuleit, eða námi

Frá árinu 2008 og til loka árs­ins 2018 höfðu tæp­lega 15.000 manns leitað til VIRK. Samkvæmt heima­síðu sjóðs­ins eru aðstæður ein­stak­ling­anna sem leita til VIRK mis­jafnar en yfir 70 pró­sent þeirra sem leita til VIRK hafa ekki starfs­getu vegna and­legra sjúk­dóma eða stoð­kerf­is­vanda­mál.[adspot]

Af þeim ein­stak­lingum sem luku þjón­ustu hjá VIRK í fyrra eru 74 pró­sent annað hvort að öllu eða ein­hverju leyti virkir í vinnu, atvinnu­leit eða námi. Þá eru um 70 pró­sent þeirra sem útskrif­ast hafa frá VIRK nú á vinnu­mark­aði.

Þá er öllum ein­stak­lingum sem útskrif­ast frá VIRK boðið að taka þátt í þjón­ustukönnun en sam­kvæmt henni hefur þjón­usta VIRK haft tölu­verð áhrif á sjálfs­mynd, starfs­getu og lík­am­lega og and­lega heilsu svar­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár