Sigríður formaður hæfisnefndar um skipun seðlabankastjóra

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands verður for­maður þriggja manna hæf­is­nefndar sem fer yfir umsóknir um stöðu seðla­banka­stjóra.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað þriggja manna hæf­is­nefnd til að meta hæfni þeirra umsækj­enda sem sótt hafa um emb­ætti seðla­banka­stjóra.

Formaður nefnd­ar­innar verður Sigríður Bene­dikts­dóttir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, sem skipuð er án til­nefn­ingar og er jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar. Sigríður sat einnig í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010.

[adspot]Með henni í nefnd­inni verða Eyjólfur Guð­munds­son, rektor Háskól­ans á Akureyri, til­nefndur af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins, og Þórunn Guð­munds­dóttir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður banka­ráðs, til­nefnd af banka­ráði Seðla­banka Íslands.

Alls sóttu 16 um starf seðla­banka­stjóra, en Már Guð­munds­son lætur af störfum í ágúst næst­kom­andi. Hann hefur þá setið þau tvö fimm ára skip­un­ar­tima­bil sem lög heim­ila honum að sitja.

Ráðgert er að end­an­leg nið­ur­staða hæfn­is­nefndar liggi fyrir eigi síðar en 15. júní næst­kom­andi.

Umsækj­endur um emb­ætti seðla­banka­stjóra:

  • Arnór Sig­hvats­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra
  • Ásgeir Jóns­son, dós­ent og for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands
  • Ásgeir Brynjar Torfa­son, lektor við Háskóla Íslands
  • Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrrv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra
  • Gunnar Har­alds­son, hag­fræð­ing­ur
  • Gylfi Arn­björns­son, hag­fræð­ing­ur
  • Gylfi Magn­ús­son, dós­ent
  • Hannes Jóhanns­son, hag­fræð­ing­ur
  • Jón Dani­els­son, pró­fess­or
  • Jón G. Jóns­son, for­stjóri banka­sýslu rík­is­ins
  • Sal­vör Sig­ríður Jóns­dótt­ir, nemi
  • Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs-, við­skipta- og fjar­stýr­ingar í Seðla­banka Íslands
  • Vil­hjálmur Bjarna­son, lekt­or
  • Þor­steinn Þor­geirs­son, sér­stakur ráð­gjafi á skrif­stofu seðla­banka­stjóra
  • Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár