Atvinnuleysi nánast það sama og í fyrra

Atvinnu­leysi stóð nokkurn veg­inn í stað frá fyrsta árs­fjórð­ungi 2018 en mælt atvinnu­leysi var 0,1 pró­sentu­stigi hærra í ár.

Atvinnu­leysi stóð nokkurn veg­inn í stað frá fyrsta árs­fjórð­ungi 2018. Mælt atvinnu­leysi var 0,1 pró­sentu­stigi hærra á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019, sem er innan skekkju­marka. Hlutfall starf­andi stóð einnig í stað frá síð­asta ári. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Samkvæmt Hag­stof­unni reynd­ist atvinnu­þátt­taka á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019 vera að jafn­aði 81 pró­sent af mann­fjölda, eða að með­al­tali um 205.700 manns. Þar af töld­ust að með­al­tali 6.200 manns vera atvinnu­lausir eða um 3 pró­sent. Á sama tíma voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnu­mark­aði sam­kvæmt starfa­skrán­ingu Hag­stof­unnar eða um 1,5 pró­sent starfa, sam­an­ber áður útgefnar tölur. Atvinnu­lausir eru því um tvö­falt fleiri en fjöldi lausra starfa.

Um 48.900 mannst töld­ust utan vinnu­mark­aðar á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019. Um 30 pró­sent þeirra voru eft­ir­launa­þegar eða um 14.400 manns. Þar á eftir voru náms­menn, um 12.000 manns að með­al­tali eða um fjórð­ungur.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019 voru að jafn­aði 183.100 manns á aldr­inum 16 til 74 ára við vinnu í hverri viku árs­fjórð­ungs­ins og var með­al­heild­ar­fjöldi vinnu­stunda þeirra 38,8 klukku­stundir. Þeir sem voru í fullu starfi unnu þó ívið meira eða að með­al­tali um 44 stundir í við­mið­un­ar­vik­unni, en heild­ar­fjöldi vinnu­stunda í hluta­starfi var að með­al­tali um 22,6 klukku­stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár