1. maí hátíðarhöld í meira en þrjátíu sveitarfélögum

Verka­lýðs­dag­ur­inn verður hald­inn hátíð­legur í yfir 30 sveit­ar­fé­lögum víða um land í dag. Fyrsta kröfu­gangan var gengin hér á landi þann 1. maí 1923 og hefur dag­ur­inn verið lög­giltur frí­dagur síðan 1966.

Frá 1.maí 2018
Frá 1.maí 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Alþjóð­legur bar­áttu­dagur verka­manna er hald­inn hátíð­legur í meira en þrjá­tíu sveit­ar­fé­lögum um land allt í dag. Dagskrá 1. maí hátíð­ar­hald­anna í Reykja­vík hefst með kröfu­göngu frá Hlemmi klukkan 13:30. Gengið verður niður Lauga­veg­inn, Banka­stræti, Aust­ur­stræti og niður á Ing­ólfs­torg. Úti­fundur hefst síðan á Ing­ólfs­torgi klukkan 14:10 en yfir­skrift fund­ar­ins í ár er „Jöfnum kjörin- sam­fé­lag fyrir alla.“

Fyrsta kröfugangan 1. maí 1923

Fyrsti maí er hald­inn hátíð­legur sem alþjóð­legur dagur verk­manna víða um heim en dag­ur­inn er opin­ber frí­dagur í meira en 80 löndum í Evrópu, Ameríku og Asíu. Upphaf dags­ins má rekja til 4. maí 1886 þegar mann­fjöldi safn­að­ist saman í Chicago í Banda­ríkj­unum til stuðn­ings verk­falli sem hafði haf­ist 1. maí til að krefj­ast átta stunda vinnu­dags. Banda­ríska verka­lýðs­sam­bandið, The American Federation of Labo, ákvað síðar að 1. maí yrði helg­aður bar­átt­unni fyrir styttri vinnu­degi.

Á hund­rað ára afmæli frönsku bylt­ing­ar­innar hélt Annað Alþjóða­sam­bandið, sem var alþjóð­legt sam­band verka­lýðs- og sós­í­alista­flokka, sitt fyrsta þingi í París árið 1889. Á þing­inu var ákveðið að taka upp bar­áttu banda­rísku verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og gera kröf­una um átta stunda vinnu­dag að helstu kröfu verka­fólks á alþjóð­legum bar­áttu­degi, 1. maí. Í fram­haldi af því var svo skorað á verka­lýðs­sam­tök um allan heim að standa fyrir því að verka­fólk legði niður vinnu á þessum degi, 1. maí, til að bera fram kröfur sínar

Hér á landi var fyrsta kröfu­gangan gengin þann fyrsta maí 1923 en það var virkur dagur og þurfti því fólk að taka sér frí úr vinnu ef það vildi taka þátt. Á vef ASÍ segir að kröfur verka­lýðs­ins það ár voru meðal ann­ars krafan um að „þurft­ar­laun“ ættu að vera skatt­laus, kraf­ist var rétt­látrar kjör­dæma­skip­unar, banni við helgi­daga­vinnu og næt­ur­vinnu og atvinnu­bætur greiddar gegn atvinnu­leysi. Fyrsti maí var gerður lög­giltur frí­dagur á Íslandi árið 1966.

Jöfnum kjörin- samfélag fyrir alla

ASÍ, BSRB, BHM og KÍ standa að bar­áttufundi á Ing­ólfs­torgi í dag en yfir­skrift fund­ar­ins er Jöfnum kjörin – sam­fé­lag fyrir alla. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og Sonja Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, munu halda ræður.

Á fund­unum munu tón­list­ar­konan GDRN og Bubbi Morthens sjá um tón­list­ar­at­riði. Þess má geta að Bubbi Morthens tók lagið á bar­áttufundi á Lækj­ar­torgi fyrir 39 árum, þann 1. maí 1980, sama ár fyrsta platan hans Ísbjarn­ar­blús kom út. Bróðir hans Þor­lákur Krist­ins­son var einn fram­sögu­manna kröfufund­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár