Verkfall SAS hefur áhrif á 60 þúsund farþega í dag

Um 1.500 flug­menn flug­fé­lags­ins SAS í Noregi, Sví­þjóð og Dan­mörku eru enn í verk­falli en ekki hefur tek­ist að leysa deil­una sem uppi er um kjör þeirra. Talið að verk­fallið kosti félagið allt að 100 millj­ónir sænskra króna á dag.

Verkfall um 1500 flug­manna hjá SAS í Noregi, Svíþjóð og Danmörku sem hófst aðfara­nótt föstu­dags stendur enn yfir. SAS hefur þurft að aflýsa þús­undum flug­ferða um helg­ina en áætlað er að verk­fallið hafi áhrif á rúm­lega sex­tíu þús­und far­þega í dag. Alls er búið að aflýsa 667 flug­ferðum í dag og 546 flug­ferðum á morgun. Frá þessu er greint á vef E24.

Talið að verkfallið kosti félagið allt að 100 milljónir sænskra króna á dag

Verk­fallið hófst á föstu­dag eftir að samn­inga­við­ræður flug­manna og SAS fóru út um þúfur aðfara­nótt föstu­dags en á­grein­ingur er um vinnu­tíma, vakta­fyrir­komu­lag og laun. Ekki taka allir flug­menn SAS þátt í verk­falls­að­gerðum heldur aðeins þeir norsku, sænsku og dönsku. Þetta hefur valdið mis­skiln­ingi meðal far­þega sem halda að allt flug hafi verið fellt niður.

Í umfjöllun E24 segir að danski bank­inn Sydbank hefur áætlað að verk­föllin kosti flug­fé­lagið á bil­inu 60 til 80 millj­ónir sænskra króna á dag en fjár­mála­fyr­ir­tækið DNB markets hefur fengið það út að verk­fallið kosti félagið 75 til 100 millj­ónir sænskra króna á dag. Þá ætlar DNB markets að ef verk­fallið varir í 15 daga þá muni kostn­að­ur­inn verða meira en heild­ar­hagn­aður flug­fé­lags­ins í ár er áætl­aður.

Knu­t Mor­ten Jo­han­sen, upp­­­lýs­inga­­full­­trú­i SAS, segir í sam­tali við E24 að for­svar­s­­menn fé­lags­ins séu að leggja allt sitt af mörkum til að kom­ast að sam­komu­lagi við verka­lýðs­hreyf­ingu flug­mann­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár