Nýr kjarasamningur samþykktur hjá öllum félögum SGS

Kjara­samn­ingur Starfs­greina­sam­bands Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins var sam­þykktur af 19 verka­lýðs­fé­lögum, þar á meðal Eflingu. Kjörsókn var í heild­ina 12,8 pró­sent, alls sögðu 80,06 pró­sent já við samn­ingnum en 17,3 pró­sent sögðu nei.

Kjara­samn­ingur Starfs­greina­sam­bands Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins var sam­þykktur með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í atkvæða­greiðslu. Starfs­greina­sam­bandið hélt utan um sam­eig­in­lega raf­ræna atkvæða­greiðslu meðal átján félaga um nýjan samn­ing, en AFL Starfs­greinafélag sá sjálft um sína atkvæða­greiðslu. Kjörsókn var í heild­ina 12,8 pró­sent.

Alls sögðu 80,06 pró­sent sögðu já við samn­ingnum en 17,3 pró­sent sögðu nei. Þá tóku 2,61 pró­sent ekki afstöðu. Atkvæða­greiðslan stóð yfir á tímabil­inu 12. til 23. apríl og voru 36.835 manns á kjör­skrá. [adspot]

Niðurstöður afgerandi í öllum félögum nema einu

Í frétta­til­kynn­ingu frá SGS segir að nið­ur­stöðurnar hafi verið afger­andi í öllum félögunum nema einu en í 17 af 19 félögum var samn­ing­ur­inn sam­þykktur með yfir 70 pró­sent atkvæða.

Samn­ing­ur­inn á hinum almenna vinnu­mark­aði, sem und­ir­rit­aðir voru 3. apríl síðast­lið­inn, telst því sam­þykktur hjá eft­ir­far­andi félögum: AFLi Starfs­greinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Eflingu stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vest­ur­lands, Stéttarfélag­inu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bol­ung­arvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sand­gerðis, Verkalýðsfélagi Snæ­fell­inga, Verkalýðsfélagi Suð­ur­lands, Verkalýðsfélagi Vest­firð­inga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélag­inu Hlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár