Ríkið greiddi Advania rúman milljarð vegna tölvukerfa í fyrra

Upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækið Advania fékk greiddan rúman millj­arð fyrir rekstur og hýs­ingu tölvu­kerfa rík­is­ins árið 2018. Þar af greiddi ríkið 635 millj­ónir vegna tölvu­kerf­is­ins Orra.

Advania
Advania Mynd: Úr safni

Fjár­sýsla rík­is­ins greiddi fyr­ir­tæk­inu Advania rúman millj­arð vegna tölvu­kerfa í fyrra, þar af 635 millj­ónir vegna tölvu­kerf­is­ins Orra og um 392 millj­ónir vegna ann­arra kerfa, án virð­is­auka­skatts. Advania var hlut­skarp­ast í örút­boði ríks­ins á hýs­ingu og rekstur á tölvu­kerf­inu Orra árið 2015.

Samkvæmt samn­ingnum átti Advania að fá greiddar 7.850.000 krónur, án virð­is­auka­skatts, á mán­uði fyrir dag­legan rekstur og hýs­ingu á Orra. Kostn­aður ríks­ins átti með samn­ingnum að lækka um 94 millj­ónir á ári, úr 198 millj­ónum króna á ári í tæpar 104 millj­ónir króna.

Kostnaðurinn vegna Orra átti að lækka í 104 milljónir króna

[links]Kjarninn greindi frá því í ítar­legri frétta­skýr­ingu í maí 2015 að Fjár­sýsla rík­is­ins hefði ákveðið að ganga til samn­inga við Advania í kjöl­far örút­boðs um dag­legan rekstur og hýs­ingu tölvu­kerf­is­ins Orra sem fór fram á vegum Rík­is­kaupa. Tölvu­kerfið Orri er sam­heiti yfir ýmis kerfi rík­is­ins, til dæmis fjár­hags- og mannauðs­kerfi og ýmis stuðn­ings­kerfi sem því fylgja. Alls nota um 190 stofn­anir rík­is­ins kerfið og um 15 þús­und ein­stak­lingar eru með vef­að­gang að því. Um 19 þús­und manns fá reglu­lega launa­greiðslur sem kerfið ann­ast mán­að­ar­lega.

Þrír aðilar buðu í verk­efn­ið á sínum tíma. Sím­inn bauð hæst um 21 milljón króna, Opin Kerfi buðu 10,3 millj­ónir króna og Advania skil­aði inn sex til­boð­um. Fjár­sýslan tók til­boði Advania upp á 7.850.000 krónur án virð­is­auka­skatts á mán­uði. Advania hafði áður séð um rekstur og hýs­ingu Orra og þegið fyrir það 16,5 millj­ónir króna á mán­uði fyrir utan virð­is­auka­skatt. Því nam samn­ings­lækk­unin 8.650.000 krónum á mán­uði án virð­is­auka­skatts.

Á árs­grund­velli átti kostn­aður rík­is­ins vegna hýs­ingar og rekst­urs Orra því að nærri helm­ing­ast, fara úr 198 millj­ónum á ári í tæpar 104 millj­ónir. Samn­ing­ur­inn var gerður til sex ára með heim­ild til fram­leng­ingar um allt að tvö ár.

Kostnaðurinn vegna Orra 635 milljónir í fyrra

Í svari Fjár­sýslu rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur hins vegar fram að kostn­aður rík­is­ins vegna rekst­urs og hýs­ingar tölvu­kerf­is­ins Orra var 635 millj­ónir króna í fyrra, af því voru 191 millj­ónir króna vegna rekstrar-, við­halds- og hýs­ing­ar­samn­inga og 163 millj­ónir króna vegna upp­færslu kerf­is­ins og annað vegna ýmiss konar þjón­ustu og þró­unar, meðal ann­ars vegna breyt­inga á reikn­ings­skila­að­ferðum rík­is­ins.

Auk þess greiddi stofn­unin Advania 392 millj­ónir króna vegna ann­arra kerfa árið 2018.

Tekjur Advania jukust um 60 prósent árið 2017

Advania varð til eftir hrun, nánar til­tekið árið 2012, þegar nokkur félög voru sam­einuð í eitt stórt upp­­lýs­inga­­fyr­ir­tæki. Á meðal þeirra félaga sem sett voru inn í Advania voru EJS og SKÝRR, sem eitt sinn hét Skýrslu­­vélar rík­­is­ins og var þá opin­bert fyr­ir­tæki. Fyr­ir­tækið er að öllu leyti í eigu sænska félags­ins AdvIn­vest og hefur verið það frá því í apríl 2015.

Árið 2017 námu tekjur Advania 2.804 millj­ónum sænskra króna og juk­ust þær um 60 pró­sent á milli ári. EBITDA fyr­ir­tæks­ins jókst einnig um tæp 60 pró­sent á milli ári og fór úr 162 millj­ónum sænskra króna í 258 millj­ónir sænskra króna árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Upplýsingatækni

AðsentUpplýsingatækni

Haukur Arnþórsson

Upp­lýs­inga­sam­fé­lag fram­tíðar - Þróun á ábyrgð rík­is­ins

Hér verður kynnt til sög­unnar nýtt hug­tak, upp­lýs­inga­sam­fé­lag fram­tíðar. Það er sam­fé­lags­gerð sem gæti mynd­ast með skipu­legri hag­nýt­ingu upp­lýs­inga­tækni og nets­ins. Hún hefur margs konar ein­kenni sem breyta lífi okkar, á heim­ili, í skóla og í vinnu. Ekki verður hér staldrað við þau öll, heldur verður fók­us­inn áfram á hvað ríkið og opin­berir aðilar þurfa að gera til þess að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár