Advania verður að fullu í sænskri eigu

Fram­taks­sjóður Íslands hefur sam­þykkt að selja 32 pró­sent hlut sinn í Advania til sænsku félags­ins AdvIn­vest. Sænska félagið verðu í kjöl­farið skuld­bundið til að gera öðrum hlut­höfum Advania yfir­tökutil­boð og verður vænt­an­lega eini eig­andi félags­ins eftir að því ferli lýkur. Því mun Advania, sem byggir á ára­tuga­löngum íslenskum grunni, verða að fullu í sænskri eigu.

Advania varð til eftir hrun þegar nokkur félög voru sam­einuð í eitt stórt upp­lýs­inga­fyr­ir­tæki. Á meðal þeirra félaga sem sett voru inn í Advania voru EJS og SKÝRR, sem eitt sinn hét Skýrslu­vélar rík­is­ins og var þá opin­bert fyr­ir­tæki.

Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá Fram­taks­sjóði Íslands og AdvIn­vest vegna við­skipt­anna segir að Advania verði áfram „íslenskt fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar á Íslandi, enda leggur AdvIn­vest áherslu á að byggja upp starf­semi Advania á Íslandi auk þess að tví­skrá félagið í kaup­höll í Reykja­vík og Stokk­hólmi.“

Við hluta­fjár­aukn­ingu Advania á síð­asta ári fram­seldi Fram­taks­sjóður Íslands rétt sinn til aukn­ingar til AdvIn­vest og skuld­batt sig til að tryggja þeim meiri­hluta með sölu eigin hluta. AdvIn­vest tryggði hluta­fjár­aukn­ingu félags­ins og eign­að­ist í kjöl­farið 58 pró­sent hlut í félag­inu. Beringer Finance var ráð­gjafi kaup­enda í við­skipt­unum.

Thomas Ivarsson, stjórn­ar­for­maður Advania og einn eig­enda AdvIn­vest segir að trú þeirra á Advania hafi styrkst eftir kynni sín af fyr­ir­tæk­inu. „Við leggjum áfram áherslu á að byggja upp starf­semi Advania á Íslandi sam­hliða alþjóð­legri starf­semi félags­ins. Þá er stefnt að því að Advania verði tví­skráð í kaup­höll á Íslandi innan tveggja ára og í kjöl­farið í Stokk­hólmi.“

Herdís Fjelsted, fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, segir að inn­koma nýrra fjár­festa í tveggja millj­arða hluta­fjár­aukn­ingu félags­ins hafi verið mik­il­vægt skref í að efla félagið sem hefur skilað sér í verð­mæt­ara félagi. „Sam­starfið við þá hefur gengið vel og með­eig­endur okkar sem kaupa allan hlut okkar félag­inu eru að okkar mati traustir eig­endur sem vinna munu að fram­gangi félags­ins í sam­ræmi við þau mark­mið sem við höfum haft um að félagið verði á end­anum skráð í kaup­höll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár