Sjóður Goldman Sachs og aðrir fjárfestar vilja eignast meirihluta í Advania

Hópur fjár­festa hefur gert bind­andi kauptil­boð í meiri­hluta hluta­fjár í Advania, sem byggir á íslenskum grunni og rekur stóra starfs­stöð hér­lendis. Advania velti 76 millj­örðum króna í fyrra.

Sjóður í stýr­ingu banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs hefur gert bind­andi kauptil­boð í meiri­hluta í upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæk­inu Advania, sem á djúpar rætur á Íslandi en er með höf­uð­stöðvar í Stokk­hólmi, ásamt danska fjár­fest­inga­sjóðnum VIA Equity, lyk­il­stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins á Norð­ur­lönd­unum og nokkrum smærri hlut­höfum. VIA Equity hefur verið í eig­enda­hópi Advania í rúm tvö ár. Kaupin eru háð sam­þykki sam­keppn­is­yf­ir­valda. Hjá Advania, sem byggir með ann­ars á fyr­ir­tækj­unum EJS og Skýrr, vina nú um 1.400 manns í 27 löndum. Velta fyr­ir­tæk­is­ins hefur vaxið í kringum 20 pró­sent á ári síð­ast­lið­inn fimm ár og árleg velta nú er um fimm millj­arðar sænskra króna, eða um 76 millj­arðar íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Markmið nýs eig­enda­hóps er að stuðla að frek­ari vexti.

Ekki er til­greint í til­kynn­ingu nákvæm­lega hversu stóran hlut sjóður Goldman Sachs mun kaupa ef af við­skipt­unum verður.

[adspot]Advania varð til eftir hrun, nánar til­tekið árið 2012, þegar nokkur félög voru sam­einuð í eitt stórt upp­­lýs­inga­­fyr­ir­tæki. Á meðal þeirra félaga sem sett voru inn í Advania voru EJS og SKÝRR, sem eitt sinn hét Skýrslu­­vélar rík­­is­ins og var þá opin­bert fyr­ir­tæki. Lyk­il­fjár­festir þá var Fram­taks­sjóður Íslands en hann seldi hlut sinn til sænska félags­ins AdvIn­vest í í apríl 2015.

Fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn VIA equity og stærsti líf­eyr­is­sjóður Dan­merkur, PFA, keyptu svo 30 pró­sent hlut í móð­ur­fé­lagi Advania haustið 2018.

Frétta­blaðið greindi frá því í apríl í fyrra að sjóðir á vegum fjár­fest­inga­bank­ans Rothschild & Co og eigna­stýr­ing­ar­fé­lags­ins LGT Capital Partners hefðu samið um kaup á hlutum danskra líf­eyr­is­sjóða í VIA equity fond III, sem átti þá tæp­lega fjórtán pró­senta óbeinan hlut í Advania.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Upplýsingatækni

AðsentUpplýsingatækni

Haukur Arnþórsson

Upp­lýs­inga­sam­fé­lag fram­tíðar - Þróun á ábyrgð rík­is­ins

Hér verður kynnt til sög­unnar nýtt hug­tak, upp­lýs­inga­sam­fé­lag fram­tíðar. Það er sam­fé­lags­gerð sem gæti mynd­ast með skipu­legri hag­nýt­ingu upp­lýs­inga­tækni og nets­ins. Hún hefur margs konar ein­kenni sem breyta lífi okkar, á heim­ili, í skóla og í vinnu. Ekki verður hér staldrað við þau öll, heldur verður fók­us­inn áfram á hvað ríkið og opin­berir aðilar þurfa að gera til þess að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár